Fréttablaðið - 09.03.2019, Blaðsíða 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta-
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
Eins og málið lítur
út á þessu stigi er
það auðvitað grafalvarlegt.
Helga Vala Helga-
dóttir, formaður
stjórnskipunar-
og eftirlits-
nefndar
1 mánuður er
liðinn frá hvarfi fjöl-
skylduföðurins Jóns
Þrastar Jónssonar í
Dublin. Fjölskyldan
leitar hans ákaft og
biðlar til Íra.
Sólveig Anna Jónsdóttir
formaður Ef lingar
sagði gærdaginn
„mjög merki
legan dag“, en
þá hófst verk fall
700 hótel starfs
manna innan
Eflingar verka lýðs
félags. Verkfallið stóð til mið
nættis. Fé lags dómur kvað upp
úr skurð sinn í fyrradag þess efnis
að at kvæða greiðsla Eflingar um
verk falls boðunina stæðist lög.
Tryggvi Gunnarsson
umboðsmaður Alþingis
telur til efni til
að kalla eftir
upp lýsingum
um hver hlutur
starfs manna
gjald eyris eftir lits
Seðla banka Ís
lands var í að upp lýsa
starfs mann Ríkis út varpsins þegar
bankinn fram kvæmdi hús leit hjá
sjávar út vegs fyrir tækinu Sam herja
árið 2012.
Eyþór Arnalds
oddviti Sjálfstæðisf lokks
í Reykjavík
var vonsvikinn
þegar borgar
stjórn felldi
tillögur flokks
ins til að liðka
fyrir kjaravið
ræðum á þriðjudag,
svokallaðan „kjarapakka“ um
lækkun út svars, rekstrar gjalda
heimilanna og byggingarréttar
gjalda.
Þrjú í fréttum
Verkfall, leki og
kjarapakki
TÖLUR VIKUNNAR 03.03.2019 TIL 9.03.2019
31,1%
landsmanna er andvígt
fyrirhuguðum verkföllum
en rúmur helmingur fylgj-
andi samkvæmt könnun
Fréttablaðsins. 20
dag
ar
eru þar til
frestur WOW
air til að ná
samningum við
Indigo Partners
um kaup þess
síðarnefnda á
félaginu rennur
út.
42 ár
eru síðan jafn mörg
mislingasmit hafa
verið staðfest á
Íslandi og undan-
farnar vikur.
UMBOÐSAÐILI RAM TRUCKS Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
RAM 3500 - HÖRKUTÓL SEM ENDIST
ramisland.is
EIGUM ÖRFÁA BÍLA TIL AFGREIÐSLU STRAX.
BJÓÐUM UPP Á 35” TIL 42” BREYTINGAPAKKA.
35” - 37” BREYTTUR
UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI
40” - 42” BREYTTUR
STJÓRNSÝSLA Már Guðmundsson
seðlabankastjóri mun sitja fyrir
svörum á opnum fundi stjórn
skipunar og eftirlitsnefndar á
fimmtudaginn í næstu viku. Á fundi
nefndarinnar síðastliðinn miðviku
dag fór umboðsmaður Alþingis
hörðum orðum um stjórnsýslu
bankans á tímum gjaldeyrishafta,
og gagnrýndi meðal annars opin
berar yfirlýsingar forsvarsmanna
bankans um þá sem sættu eftirliti
og upplýsingagjöf við fjölmiðla um
húsleitina hjá Samherja árið 2012.
„Eins og málið lítur út á þessu
stigi er það auðvitað grafalvarlegt.
Við bíðum þó eftir svörum og skýr
ingum frá fulltrúum Seðlabankans
í næstu viku og eftir það ætti staðan
að vera aðeins skýrari,“ segir Helga
Vala Helgadóttir, formaður stjórn
skipunar og eftirlitsnefndar. Hún
segir málið hafa verið lengi hjá
nefndinni og að fundur nefndar
innar með fulltrúum Seðlabankans
sé löngu ákveðinn.
Á fyrrnefndum fundi nefndar
innar sagði umboðsmaður það
ekki samræmast hlutverki for
svarsmanna eftirlitsstofnana að
lýsa opinberlega efasemdum um
sakleysi manna eftir að mál þeirra
hafi verið felld niður vegna galla á
regluverki eða annarra formgalla.
Umboðsmanni varð einnig tíð
rætt um þau orð Más Guðmunds
sonar í bréfi til forsætisráðherra,
sem birt var á vef bankans í lok
febrúar, að húsleitin hjá Samherja
árið 2012 hefði haft ákveðin fæl
ingaráhrif.
Í bréfinu er fælingarmætti hús
leitarinnar lýst þannig að tekist hafi
að stöðva útstreymi aflandskróna
og bæta virkni skilaskyldu. Með
húsleitinni hafi verið send skýr
skilaboð um að Seðlabankanum
hafi verið alvara með því að fram
fylgja höftunum.
Í máli umboðsmanns kom einn
ig fram að hann teldi ástæðu til að
kanna nánar hver hafi verið hlutur
starfsmanna gjaldeyriseftirlits
Seðlabankans í að upplýsa starfs
mann Ríkisútvarpsins um fyrirhug
aða húsleit en við íþyngjandi rann
sóknarúrræði eins og húsleit ríkir
þagnarskylda á starfsmönnum sem
að henni koma, ekki aðeins vegna
rannsóknarhagsmuna heldur einnig
vegna réttar borgaranna til að teljast
saklausir uns sekt þeirra er sönnuð.
Umboðsmaður sagði Samherja
málið og framkvæmd gjaldeyris
eftirlitsins gefa tilefni til að huga
betur að aðgreiningu verkefna hjá
stofnunum sem er falið eftirlitshlut
verk og vald til að beita viðurlögum.
Slík verkefni fari ekki endilega vel
saman við önnur verkefni viðkom
andi stofnunar.
Þessum vanda er einnig lýst í
fyrrnefndu bréfi Más til forsætis
ráðherra. Hann greinir þar frá því
þegar starfsmenn bankans svari
upplýsingabeiðnum fjölmiðla með
vísan til þagnarskylduákvæða sé
því jafnan verr tekið en í tilvikum
annarra eftirlitsstofnana, lög
reglu og saksóknara. Það kunni
að skýrast af því að starfsmenn
bankans tjái sig gjarnan opinber
lega um önnur verkefni bankans
eins og peningastefnu og fjármála
stöðugleika. Þá segir í bréfinu að
Seðlabankinn eigi erfiðara með að
draga sig inn í skel þar sem þögn sé
gjarnan túlkuð sem svo að hlutir
þoli ekki dagsljósið og neikvæð
smitáhrif á aðra starfsemi geti haft
neikvæð smitáhrif í meiri mæli en í
tilvikum sérhæfðari eftirlitsstofn
ana, lögreglu og saksóknara.
adalheidur@frettabladid.is
Seðlabankastjóri boðaður
á opinn fund í næstu viku
Már Guðmundsson seðlabankastjóri mætir á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á fimmtudaginn í
næstu viku. Umboðsmaður Alþingis var harðorður um stjórnsýslu eftirlits bankans fyrr í vikunni. For-
maður nefndarinnar segir málið virðast grafalvarlegt og væntir skýringa á fundi með bankastjóranum.
Búast má við að Már Guðmundsson fái erfiðar spurningar á opnum fundi í næstu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
9 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
9
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
8
7
-1
8
1
C
2
2
8
7
-1
6
E
0
2
2
8
7
-1
5
A
4
2
2
8
7
-1
4
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
1
2
s
_
8
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K