Fréttablaðið - 09.03.2019, Blaðsíða 52
Staða skólastjóra í Foldaskóla
Skóla- og frístundasvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu skólastjóra við Foldaskóla. Foldaskóli er elsti hverfisskólinn í Grafar-
vogi, stofnaður árið 1985. Í skólanum eru um 500 nemendur í 1.-10. bekk. Við skólann er starfrækt einhverfudeild og Foldaskóli
er safnskóli unglingadeilda í Hamra-, Húsa- og Foldahverfi og er um helmingur nemenda á því skólastigi. Skólinn er Græn-
fánaskóli og tekur þátt í verkefninu Heilsueflandi skóli. Einkunnarorð skólans eru siðprýði, menntun og sálarheill. Skólinn
vinnur í anda uppeldis til ábyrgðar og Olweusaráætlunar gegn einelti og verið er að innleiða leiðsagnarmat. Skólinn hefur á
að skipa vel menntuðu starfsfólki, mikið samstarf er við félagsmiðstöð, frístundaheimili og nærsamfélagið. Við skólann starfar
öflugt foreldrafélag.
Leitað er að einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum, hefur víðtæka þekkingu á skólastarfi og metnaðarfulla skólasýn.
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið grunnskólakennari, greinargerð um framtíðarsýn
umsækjanda á skólastarfið, upplýsingar um framsækin verkefni sem umsækjandi hefur leitt og annað er málið varðar.
Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2019. Umsóknarfrestur er til og með 24.mars 2019.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna Skólastjórafélags Íslands.
Umsækjendur eru beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf.
Nánari upplýsingar veita Soffía Vagnsdóttir, skrifstofustjóri grunnskólahluta fagskrifstofu, og Ragnheiður E. Stefánsdóttir,
mannauðsstjóri, sími 411 1111. Netföng: soffia.vagnsdottir@reykjavik.is / ragnheidur.e.stefansdottir@reykjavik.is
Meginhlutverk skólastjóra er að:
• Veita skólanum faglega forystu og móta framtíðarstefnu
hans innan ramma laga og reglugerða og í samræmi við
aðalnámskrá grunnskóla og stefnu Reykjavíkurborgar.
• Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi
skólans.
• Bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum, vin-
nutilhögun og starfsþróun.
• Bera ábyrgð á samstarfi aðila skólasamfélagsins
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
• Viðbótarmenntun í stjórnun eða stjórnunarreynsla á
grunnskólastigi.
• Reynsla af faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar í
skólastarfi.
• Stjórnunarhæfileikar.
• Færni í áætlanagerð og fjármálastjórnun.
• Færni til að leita nýrra leiða í skólastarfi og leiða framsæk-
na skólaþróun.
• Lipurð og hæfni í samskiptum.
Dómsmálaráðuneytið auglýsir
Lögfræðingur/sérfræðingur
á sviði útlendingamála
Dómsmálaráðuneytið auglýsir eftir reynslumiklum lögfræðingi/sérfræðingi til starfa á skrifstofu
réttinda einstaklinga. Skrifstofa réttinda einstaklinga annast stefnumótun, frumvarpasmíði, mótun
reglugerða og reglna og ber ábyrgð á stjórnsýslu í þeim málaflokkum sem undir skrifstofuna heyra.
Skrifstofan annast jafnframt almennt stjórnsýslueftirlit með stjórnsýslustofnunum sem undir skrif-
stofuna heyra.
Leitað er að einstaklingi til að sinna verkefnum tengdum vinnu við málefni útlendinga. Í starfinu felst
vinna við stefnumótun í málefnum útlendinga og greiningarvinna, þ. á m. að fylgjast með breytingum
og þróun í málefnum flóttamanna og umsækjenda um alþjóðlega vernd. Í starfinu felst einnig vinna
við gerð frumvarpa, reglugerða og reglna og samskipti og samstarf við stofnanir og aðra aðila sem
koma að málaflokknum innlenda sem erlenda. Þá felast einnig í starfinu ýmis önnur tilfallandi verk-
efni á málefnasviði skrifstofunnar.
Menntunar– og hæfniskröfur
• Fullnaðarnám í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi eða önnur menntun sem nýtist í starfi
• Að minnsta kosti þriggja ára starfsreynsla
• Þekking og reynsla af störfum innan stjórnsýslunnar kostur
• Þekking og reynsla af málefnasviði ráðuneytisins, sérstaklega af málefnum útlendinga er kostur
• Þekking eða reynsla af stefnumótun og verkefnastjórnun kostur
• Mjög gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Mjög góð enskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Góð kunnátta á einu Norðurlandamáli er kostur
• Frumkvæði, drifkraftur og jákvæðni
• Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum
Laun greiðast samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag há-
skólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðs hafa gert.
Um er að ræða fullt starf í krefjandi starfsumhverfi þar sem reynir á öguð vinnubrögð, ábyrgð og
sjálfstæði. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Umsókn skal fylgja starfsferilskrá
og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að
gegna starfinu.
Umsóknir skulu fylltar út á Starfatorgi og er umsóknarfrestur til 25. mars nk.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að
umsóknarfrestur rennur út.
Nánari upplýsingar veitir Berglind Bára Sigurjónsdóttir,
skrifstofustjóri í síma 545 9000
Dómsmálaráðuneytið
Vegagerðin vinnur að öruggum og greiðum samgöngum í þágu
samfélagsins alls. Vegagerðin vinnur að uppbyggingu
samgöngukerfisins með lagningu vega og þjónustu við vegakerfi
landsins, þróun almenningssamgangna og samþættingu
mismunandi samgönguforma.
Nú vantar okkur öflugan forstöðumann fjárhagsdeildar til að taka
þátt í þessu verkefni með okkur.
Starfsmenn fjárhagsdeildar starfa víðsvegar um landið en starf
forstöðumanns er í Reykjavík.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði fjármála
• Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi
• Farsæl og árangursrík reynsla af stjórnun
• Reynsla og þekking í uppgjörum og bókhaldi
• Góð færni í framsetningu fjármálaupplýsinga
• Reynsla af breytingastjórnun
• Framúrskarandi samskiptafærni
• Frumkvæði, metnaður og fagmennska í starfi
• Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
• Góð kunnátta í talaðri og ritaðri íslensku og ensku
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður sem hentar jafnt
báðum kynjum.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi
stéttarfélags og umsóknarfrestur er til og með 25. mars 2019.
Nánari upplýsingar um starfið veita Ruth Elfarsdóttir
framkvæmda stjóri fjármálasviðs (ruth.elfarsdottir@vegagerdin.is)
og Sigurbjörg J. Narby Helgadóttir mannauðsstjóri
(sigurbjorg.helgadottir@vegagerðin.is) og í síma 522 1000
Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem
fram kemur rökstuðningur um hæfi til að gegna umræddu starfi.
Umsóknir berist Vegagerðinni á netfangið starf@vegagerdin.is
Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að
umsóknarfrestur rennur út.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
hefur verið tekin.
Forstöðumaður
fjárhagsdeildar hjá
Vegagerðinni
Rekstrarstjóri SVA
og ferliþjónustu
A k u r e y r a r b æ r • G e i s l a g a t a 9 • S í m i 4 6 0 1 0 0 0 • a k u r e y r i . i s
Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir að
ráða rekstrarstjóra hjá SVA og ferliþjónustu. Æskilegt er að
viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Starfssvið
• Daglegur rekstur og umsjón með þjónustu SVA og ferli-
þjónustu.
• Fer með verkstjórn SVA og ferliþjónustu.
• Gerð vaktaskýrslna, uppsetning vaktarúlla í vinnustund og
utanumhald um breytingará vöktum.
• Samstarf og samskipti við hagsmunaaðila sem að mála-
flokkunum koma.
• Stefnumótun og þróunarvinna innan málaflokksins.
• Gerð og framkvæmd rekstrar- og fjárhagsáætlana ásamt
forgangsröðun verkefna.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Gerð krafa um háskólamenntun á sviði viðskipta, rekstrar
eða sambærilegri menntun sem nýtist í starfi.
• Meirapróf og rútupróf kostur.
• Reynsla af verkstjórn æskileg.
• Góð almenn tölvukunnátta.
• Þekking á SAP bókhaldsforitinu, One System skjala-
kerfinu, Vinnustund og Vakakerfi í ferliþjónustu kostur.
• Lipurð í samskiptum og þjónustulund.
• Frumkvæði, skipulögð og sjálfstæð vinnubragða.
• Vilji til nýsköpunar og innleiðingu nýrra hugmynda og
vinnubragða.
• Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott
orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan
hans samrýmist starfinu.
Nánari upplýsingar um starfið er að finna á heimasíðu Ak-
ureyrarbæjar, www.akureyri.is þar sem sótt er um rafrænt
Umsóknarfrestur er til og með 20. mars 2019
0
9
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
8
7
-7
F
C
C
2
2
8
7
-7
E
9
0
2
2
8
7
-7
D
5
4
2
2
8
7
-7
C
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
1
2
s
_
8
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K