Fréttablaðið - 09.03.2019, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 09.03.2019, Blaðsíða 24
Þrjár stelp ur á aldr in­um níu og tíu ára munu skipta með sér hlut­verki Matt hild ar í sam­nefndum söngleik, þær Erna Tóm as dótt ir, Ísa­ bel Dís Sheeh an og Salka Ýr Ómars­ dótt ir. Þegar blaðamann ber að garði hafa þær torgað allnokkrum rjómabollum og hlaupa fullar af orku um Stóra svið Borgarleikhúss­ ins, príla, hoppa, öskra og syngja. Þær voru valdar úr hópi 1.119 barna sem mættu í áheyrnarprufur fyrir tæpu ári. Auk þeirra leika sex­ tán börn í sýningunni. Það yngsta er átta ára og það elsta tólf ára. Börnin hafa stundað stífar æfingar fyrir söngleikinn frá því í byrjun janúar og nú nálgast frumsýning, 15. mars er stóri dagurinn. Þó að í vikunni á undan verði forsýningar og generalprufa sem eru ekki síður teknar alvarlega. Blaðamaður gerði heiðarlega til­ raun til þess að beisla rjómabollu­ orkuna og kynnast aðalleikkonun­ um betur og settist niður með þeim Ernu, Ísabel og Sölku Ýri ásamt leik­ stjóranum, Bergi Þór Ingólfssyni. Ísabel: Ég geng í Vesturbæjar­ skóla og er í fimmta bekk. Erna: Ég er níu ára gömul og er í Barnaskólanum í Reykjavík. Salka Ýr: Ég bý í Garðabæ og geng í Hofsstaðaskóla. Ég er líka í fimmta bekk. Bergur Þór: Ég er á þriðja bekk vanalega, úti í sal í Borgarleikhús­ inu! Stelpurnar skella upp úr. Ísabel, það er fallegt nafn. Ísabel: Já, takk. Pabbi minn skírði mig Ísabel af því hann átti mótorhjól sem hét Ísabel. Hann er bandarískur. Söngleikurinn um Matthildi er byggður á samnefndri skáldsögu Roalds Dahl. Matthildur er bókelsk, leifturklár með ríkt ímyndunarafl. Foreldrar hennar eru hins vegar óhef laðir og yfirborðskenndir og sýna henni litla elsku en ægilegan yfirgang. Ísabel: Þetta er allt svo óréttlátt. Það eru eiginlega allir í kringum hana vondir við hana. Það eru fáeinir sem standa með henni. Erna: Foreldrunum er alveg sama um hversu frábær og klár hún er. Þeir eru sjálfir heimskir, mamman vill til dæmis frekar að stelpur hugsi um útlitið en að þær lesi bækur. Ísabel: Sagan um Matthildi snýst um að gefast ekki upp og vera sjálf­ stæð. Taka sitt pláss. Erna: Maður verður að vera maður sjálfur. Salka Ýr: Og ekki leyfa neinum að komast upp með að vera leiðinlegur við mann og fara illa með mann. Ef manni tekst vel að vera maður sjálf­ ur þá gengur lífið bara miklu betur. Þið eruð búnar að æfa á hverjum degi frá því í janúar? Ísabel: Sumar æfingar hafa verið erfiðar en þær eru allar skemmti­ legar. Erna: Mér finnst stundum eitt­ hvað erfitt. En það er samt skemmti­ legt. Og það er alls ekki langt í frum- sýningu. Hvað segir leikstjórinn um frumsýninguna? Farsælast að vera maður sjálfur Þær Ísabel, Erna og Salka Ýr skipta með sér hlutverki Matthildar í samnefndum söngleik. Þær eru sammála um það að meginboðskapur sögunnar um Matthildi sé að farsælast sé að vera maður sjálfur og láta ekkert buga sig. Salka Ýr, Ísabel, Bergur Þór og Erna á Stóra sviði Borgarleikhússins. Það var mikið fjör hjá stelpunum þegar blaðamaður leit í heimsókn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Salka Ýr Óm- arsdóttir er í 5. bekk í Hofs- staðaskóla í Garðabæ. Ísbel er í Vesturbæjarskóla og í fimmta bekk. Erna er níu ára gömul, spilar á selló og finnst gaman að lesa. Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is Ísabel: Hann segir bara allt gott! Erna: Að vera Matthildur, vera maður sjálfur. Ekki að vera að spá í leikstjóranum á sviðinu. Ísabel: Bannað að hlýða leikstjór­ anum. Bergur Þór: Já, leikstjórinn segir að áhorfandinn sjái ef leikarinn er að hugsa um leikstjórann á sýning­ unni. Ef rödd leikstjórans er að tala við þig á sýningunni. Salka Ýr: Þá sjá þeir ekki Matt­ hildi á sviðinu! Ísabel: Heldur leikara að leika Matthildi. Salka Ýr: Þau sjá leikara vera að hugsa um leikstjórann. Erna: Reyna að gera nákvæmlega það sem leikstjórinn segir. Bergur Þór: Þið eruð þrjár … Salka Ýr: Frábærar stúlkur. Bergur Þór: Ólíkar stúlkur. Þær hafa allar sitt fram að færa, hafa áhuga á misjöfnum hlutum. Þær hafa mismunandi bakgrunn, eiga ólík líf. Salka Ýr: Já, rétt hjá þér. Bergur: Þetta á vel við í dag. Eins og stelpurnar segja, við þurfum að segja frá ef eitthvað er rangt Við þurfum að læra að þiggja aðstoð ef hún er einhvers staðar til staðar. Þegar við verðum vör við rangindi og óréttlæti þá þurfum við að bregð­ ast við því. Matthildur bregst við því á þann hátt að hún þróar með sér ofurkrafta. Matthildur segir satt, segir frá og lagar óréttlætið. Búið þið yfir ofurkröftum? Ísabel: Já, eða sko, nei. Erna: Nei, engum ofurkröftum, sem ég veit um. Ísabel: Við erum að þróa þá, með því að leika í Matthildi. Erna: Við reyndum að finna sjötta skilningarvitið. Æfa það. Reyndum að loka fyrir öll hin skiln­ ingarvitin. Salka: En það var ekki hægt. Erna: En við náðum ekki að loka fyrir þau öll. Bergur: Til þess að geta þekkt fimm skilningarvit vorum við að reyna að finna út hvað sjötta skiln­ ingarvitið gæti verið. Salka Ýr: Við gætum sett sokka á hendurnar, haldið fyrir nefið og lokað fyrir augun. Bergur Þór: Og sett tunguna í poka. Stelpurnar hlæja og halda áfram að velta því fyrir sér hvernig þær gætu lokað á skilningarvitin fimm með nýstárlegum aðferðum. Loka­ niðurstaðan er háheimspekileg og sú að það sé bara ekki hægt að úti­ loka tilfinninguna við að gera til­ raunirnar. Bergur Þór: Það ber að taka fram að þessar æfingar voru ekki gerðar! Hafið þið önnur áhugamál en leik- list? Salka Ýr: Ég var í fimleikum. Frá tveggja ára aldri, ég stundaði líka ballett í nokkur ár. Erna: Ég var líka í ballett, líka í fimleikum og hef spilað á selló frá því ég var þriggja ára. Ég var líka í kór. Ég fer líka oft á myndlistarnám­ skeið og oft á sinfóníutónleika. Mér finnst gaman að lesa. Ísabel: Mér finnst líka gaman að lesa, ég var í djassballett og ballett og líka einu sinni í fimleikum. Hvað viljið þið gera þegar þið eruð orðnar stórar? Ísabel: Ég ætla að verða leikkona. Salka Ýr: Ég líka, ég ætla að verða leikkona. Erna: Ég ætla að verða fjöllista­ kona. Ég er hrifin af mörgum list­ greinum og vil gera alls konar list. 9 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð HELGIN 0 9 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :3 7 F B 1 1 2 s _ P 0 8 9 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 8 7 -4 9 7 C 2 2 8 7 -4 8 4 0 2 2 8 7 -4 7 0 4 2 2 8 7 -4 5 C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 1 1 2 s _ 8 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.