Fréttablaðið - 09.03.2019, Síða 24
Þrjár stelp ur á aldr inum níu og tíu ára munu skipta með sér hlutverki Matt hild ar í samnefndum söngleik, þær Erna Tóm as dótt ir, Ísa
bel Dís Sheeh an og Salka Ýr Ómars
dótt ir. Þegar blaðamann ber að
garði hafa þær torgað allnokkrum
rjómabollum og hlaupa fullar af
orku um Stóra svið Borgarleikhúss
ins, príla, hoppa, öskra og syngja.
Þær voru valdar úr hópi 1.119
barna sem mættu í áheyrnarprufur
fyrir tæpu ári. Auk þeirra leika sex
tán börn í sýningunni. Það yngsta
er átta ára og það elsta tólf ára.
Börnin hafa stundað stífar æfingar
fyrir söngleikinn frá því í byrjun
janúar og nú nálgast frumsýning,
15. mars er stóri dagurinn. Þó að í
vikunni á undan verði forsýningar
og generalprufa sem eru ekki síður
teknar alvarlega.
Blaðamaður gerði heiðarlega til
raun til þess að beisla rjómabollu
orkuna og kynnast aðalleikkonun
um betur og settist niður með þeim
Ernu, Ísabel og Sölku Ýri ásamt leik
stjóranum, Bergi Þór Ingólfssyni.
Ísabel: Ég geng í Vesturbæjar
skóla og er í fimmta bekk.
Erna: Ég er níu ára gömul og er í
Barnaskólanum í Reykjavík.
Salka Ýr: Ég bý í Garðabæ og geng
í Hofsstaðaskóla. Ég er líka í fimmta
bekk.
Bergur Þór: Ég er á þriðja bekk
vanalega, úti í sal í Borgarleikhús
inu!
Stelpurnar skella upp úr.
Ísabel, það er fallegt nafn.
Ísabel: Já, takk. Pabbi minn
skírði mig Ísabel af því hann átti
mótorhjól sem hét Ísabel. Hann er
bandarískur.
Söngleikurinn um Matthildi er
byggður á samnefndri skáldsögu
Roalds Dahl. Matthildur er bókelsk,
leifturklár með ríkt ímyndunarafl.
Foreldrar hennar eru hins vegar
óhef laðir og yfirborðskenndir og
sýna henni litla elsku en ægilegan
yfirgang.
Ísabel: Þetta er allt svo óréttlátt.
Það eru eiginlega allir í kringum
hana vondir við hana. Það eru
fáeinir sem standa með henni.
Erna: Foreldrunum er alveg sama
um hversu frábær og klár hún er.
Þeir eru sjálfir heimskir, mamman
vill til dæmis frekar að stelpur hugsi
um útlitið en að þær lesi bækur.
Ísabel: Sagan um Matthildi snýst
um að gefast ekki upp og vera sjálf
stæð. Taka sitt pláss.
Erna: Maður verður að vera
maður sjálfur.
Salka Ýr: Og ekki leyfa neinum að
komast upp með að vera leiðinlegur
við mann og fara illa með mann. Ef
manni tekst vel að vera maður sjálf
ur þá gengur lífið bara miklu betur.
Þið eruð búnar að æfa á hverjum
degi frá því í janúar?
Ísabel: Sumar æfingar hafa verið
erfiðar en þær eru allar skemmti
legar.
Erna: Mér finnst stundum eitt
hvað erfitt. En það er samt skemmti
legt.
Og það er alls ekki langt í frum-
sýningu. Hvað segir leikstjórinn um
frumsýninguna?
Farsælast að vera maður sjálfur
Þær Ísabel, Erna og Salka Ýr skipta með sér hlutverki Matthildar í samnefndum söngleik. Þær eru sammála um
það að meginboðskapur sögunnar um Matthildi sé að farsælast sé að vera maður sjálfur og láta ekkert buga sig.
Salka Ýr, Ísabel, Bergur Þór og Erna á Stóra sviði Borgarleikhússins. Það var mikið fjör hjá stelpunum þegar blaðamaður leit í heimsókn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Salka Ýr Óm-
arsdóttir er í
5. bekk í Hofs-
staðaskóla í
Garðabæ.
Ísbel er í Vesturbæjarskóla og í fimmta bekk.
Erna er níu ára gömul, spilar á selló
og finnst gaman að lesa.
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
Ísabel: Hann segir bara allt gott!
Erna: Að vera Matthildur, vera
maður sjálfur. Ekki að vera að spá í
leikstjóranum á sviðinu.
Ísabel: Bannað að hlýða leikstjór
anum.
Bergur Þór: Já, leikstjórinn segir
að áhorfandinn sjái ef leikarinn er
að hugsa um leikstjórann á sýning
unni. Ef rödd leikstjórans er að tala
við þig á sýningunni.
Salka Ýr: Þá sjá þeir ekki Matt
hildi á sviðinu!
Ísabel: Heldur leikara að leika
Matthildi.
Salka Ýr: Þau sjá leikara vera að
hugsa um leikstjórann.
Erna: Reyna að gera nákvæmlega
það sem leikstjórinn segir.
Bergur Þór: Þið eruð þrjár …
Salka Ýr: Frábærar stúlkur.
Bergur Þór: Ólíkar stúlkur. Þær
hafa allar sitt fram að færa, hafa
áhuga á misjöfnum hlutum. Þær
hafa mismunandi bakgrunn, eiga
ólík líf.
Salka Ýr: Já, rétt hjá þér.
Bergur: Þetta á vel við í dag. Eins
og stelpurnar segja, við þurfum að
segja frá ef eitthvað er rangt Við
þurfum að læra að þiggja aðstoð
ef hún er einhvers staðar til staðar.
Þegar við verðum vör við rangindi
og óréttlæti þá þurfum við að bregð
ast við því. Matthildur bregst við
því á þann hátt að hún þróar með
sér ofurkrafta. Matthildur segir satt,
segir frá og lagar óréttlætið.
Búið þið yfir ofurkröftum?
Ísabel: Já, eða sko, nei.
Erna: Nei, engum ofurkröftum,
sem ég veit um.
Ísabel: Við erum að þróa þá, með
því að leika í Matthildi.
Erna: Við reyndum að finna
sjötta skilningarvitið. Æfa það.
Reyndum að loka fyrir öll hin skiln
ingarvitin.
Salka: En það var ekki hægt.
Erna: En við náðum ekki að loka
fyrir þau öll.
Bergur: Til þess að geta þekkt
fimm skilningarvit vorum við að
reyna að finna út hvað sjötta skiln
ingarvitið gæti verið.
Salka Ýr: Við gætum sett sokka
á hendurnar, haldið fyrir nefið og
lokað fyrir augun.
Bergur Þór: Og sett tunguna í
poka.
Stelpurnar hlæja og halda áfram
að velta því fyrir sér hvernig þær
gætu lokað á skilningarvitin fimm
með nýstárlegum aðferðum. Loka
niðurstaðan er háheimspekileg og
sú að það sé bara ekki hægt að úti
loka tilfinninguna við að gera til
raunirnar.
Bergur Þór: Það ber að taka fram
að þessar æfingar voru ekki gerðar!
Hafið þið önnur áhugamál en leik-
list?
Salka Ýr: Ég var í fimleikum. Frá
tveggja ára aldri, ég stundaði líka
ballett í nokkur ár.
Erna: Ég var líka í ballett, líka í
fimleikum og hef spilað á selló frá
því ég var þriggja ára. Ég var líka í
kór. Ég fer líka oft á myndlistarnám
skeið og oft á sinfóníutónleika. Mér
finnst gaman að lesa.
Ísabel: Mér finnst líka gaman að
lesa, ég var í djassballett og ballett
og líka einu sinni í fimleikum.
Hvað viljið þið gera þegar þið eruð
orðnar stórar?
Ísabel: Ég ætla að verða leikkona.
Salka Ýr: Ég líka, ég ætla að verða
leikkona.
Erna: Ég ætla að verða fjöllista
kona. Ég er hrifin af mörgum list
greinum og vil gera alls konar list.
9 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
HELGIN
0
9
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
8
7
-4
9
7
C
2
2
8
7
-4
8
4
0
2
2
8
7
-4
7
0
4
2
2
8
7
-4
5
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
1
2
s
_
8
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K