Fréttablaðið - 09.03.2019, Blaðsíða 30
umræddri f lugvél voru einmitt þau
að vélin væri skráð erlendis og í eigu
erlends aðila. Frá þessu var sagt í
fjölmiðlum.
Ef lögmaður fjölskyldunnar hefði
komið auga á þessa staðreynd í
tæka tíð hefði fjölskylda Grants
Wagstaff getað höfðað skaðabóta-
mál í Bandaríkjunum og átt þar von
á margfalt hærri bótum vegna frá-
falls hans ef málið ynnist. Tveggja
ára fyrningarfrestur í Bandaríkj-
unum leið hins vegar í ágúst 2017
án þess að nokkuð væri að gert ytra.
Öll sund virðast því lokuð fyrir fjöl-
skylduna þar í landi.
Arngrímur einn sagður tryggður
Eftir að bæði skýrsla rannsóknar-
nefndar f lugslysa og niðurstaða
lögreglurannsóknar lá fyrir kveður
Sarah lögmanninn hafa sagt nú í
vetrarbyrjun að öll púsl væru nú
komin og því loksins hægt að leggja
fram kröfu á Sjóvá sem tryggði
vélina sem fórst. Krafan nam 75,5
milljónum króna auk vaxta og
kostnaðar.
Í svari frá Sjóvá, sem lögmaður-
inn framsendi ekkjunni í desember
síðastliðnum, var bótakröfu fjöl-
skyldunnar algerlega hafnað. Trygg-
ingin væri þannig að flugmaður og
farþegar væru tryggðir og vélin sjálf.
Wagstaff hafi hins vegar verið svo-
kallaður „pilot not flying“ eða „flug-
maður sem ekki er að f ljúga“ sam-
kvæmt rannsóknarnefnd flugslysa
og öðrum málsgögnum. Sem slíkur
hafi Grant því ekki verið tryggður.
„Kemur margsinnis fram í fram-
burðarskýrslum Arngríms að þeir
hafi rætt saman og í sameiningu
tekið ákvarðanir varðandi f lugið
fram að slysinu,“ vitnar lögmaður
Sjóvár í orð hins eftirlifandi f lug-
manns.
Samkvæmt tryggingarskírtein-
inu er Arngrímur einn tilgreindur
sérstaklega með nafni sem tryggður
flugmaður. Þá náði tryggingin einn-
ig eingöngu til einkaflugs á Íslandi.
„Við lögðum of mikið traust á lög-
mannsstofuna en við áttum þá ekki
von á að þetta yrði svona langdregin
orrusta um tryggingamál,“ segir
Sarah sem kveðst sjá mikið eftir að
hafa ekki sjálf sett sig inn í málið í
stað þess að að treysta einfaldlega
lögmanninum hjá Opus.
Nýútskrifaður lögfræðingur
„Þegar ég las í gegn um f lugslysa-
skýrsluna sá ég ýmsar alvarlegar
villur og var mjög brugðið,“ segir
Sarah. Hún haf i gert athuga-
semdir við störf lögmannsins hjá
Opus, meðal annars fyrir að hafa
ekki einu sinni haft fyrir að af la
umboðs systkinanna sjálfra til að
leggja fram kröfu í þeirra nafni. Lög-
maðurinn hafi viðurkennt að hún
hefði átt að hafa fengið umboð frá
hverju og einu þeirra enda séu þau
öll fullorðið fólk. Sjálf er Sarah 34
ára í dag, bróðir hennar Tyler þrí-
tugur og systirin Claire 25 ára.
„Þarna hringdu sterkar viðvör-
unarbjöllur hjá mér. Ég hugsaði
með þér að þessi lögmaður væri
ekki mjög faglegur. Alls staðar í
heiminum hefði lögmaður byrjað á
því að afla umboðs þeirra sem hann
ætlar að starfa fyrir,“ segir Sarah.
Lögmaðurinn sem um ræðir,
Berglind Glóð Garðarsdóttir,
út sk r ifaðist samk væmt upp -
lýsingum á vefsíðu Opus með BA
í lögfræði í júní 2015. Hún tók við
málefnum ekkju f lugmannsins í
febrúar 2016 er lögmaðurinn sem
hafði annast málið áður fór í barns-
burðarleyfi. Á þeim tímapunkti var
Berglind 25 ára og hvorki komin
með meistarapróf í lögum né mál-
f lutningsréttindi. Hún lauk hins
vegar meistaragráðu í lögfræði frá
Háskóla Íslands á árinu 2017. Rætt
er við Berglindi í þessari umfjöllun
á síðunni hér á undan. Hún vísar
ásökunum Söruh á bug.
„Þetta svo er hræðilegt að ég trúi
þessu varla,“ segir Sarah. „Hvernig
getur lögmannsstofa tekið slíkt mál
að sér og falið það óreyndri mann-
eskju? Kannski reyndi hún sitt
besta en hún er of reynslulítil til að
taka að sér svona flókið mál.“
Þá segir Sarah að lögmaðurinn
Yfirlýsing frá Sjóvá
Vegna umfjöllunar Fréttablaðs-
ins um flugvél sem brotlenti
í Barkárdal árið 2015 og
tryggð var hjá Sjóvá vill
félagið koma eftir-
farandi á framfæri.
Ágreiningur máls-
ins snýr að því annars
vegar hvort hinn
látni geti talist hafa
verið farþegi í vélinni
eða áhafnarmeðlimur
og hins vegar hvort flug-
maðurinn, sem lifði slysið af, hafi
sýnt af sér saknæm mistök í flug-
inu sjálfu og aðdraganda þess.
Í einstaka tilfellum eru mál
þannig að um þau skapast
ágreiningur. Í þessu tilfelli er um
að ræða viðkvæmt og flókið
mál sem því miður þarf að láta
reyna á fyrir dómstólum.
Þetta er ekki óskastaða
fyrir neinn og ekki
léttvæg ákvörðun þar
sem margir eiga um
sárt að binda vegna
slyssins.
Sjóvá hefur samúð
með öllum hlutað-
eigandi í þessu hörmu-
lega slysi en mun ekki tjá
sig efnislega nánar um málið í
fjölmiðlum.
Virðingarfyllst,
Hermann Björnsson
forstjóri Sjóvár
Úr lögregluskýrslu frá því eftir slysið
hafi verið afar spar á að veita upp-
lýsingar. Til dæmis hafi tekið marg-
ar tilraunir að fá hana til að segja hjá
hvaða tryggingafélagi f lugvélin var
tryggð.
Uppnám í fjölskyldunni
Að því er Sarah segir hefði ekki
komið til greina að viðkomandi
lögfræðingur annaðist málið ef allar
staðreyndir hefðu legið á borðinu
fyrir fram. „Það er engin leið. Þetta
mál er of mikilvægt,“ segir hún.
Þótt Grant og Roslyn Wagstaff
hefðu enn verið gift og bestu vinir
að sögn Söruh höfðu þau skilið að
borði og sæng og hann hafði starfað
sem flugmaður erlendis um árabil.
Einhver virðist hafa skýrt Sjóvá frá
því að hjónin byggju ekki lengur
saman og tryggingafélagið krafðist
skýringa.
„Þetta var mjög skrítið og við
þurftum að huga að því hvort við
börnin yrðum að vera aðskilin frá
mömmu ef til frekari málareksturs
kæmi,“ segir Sarah. Við þessa uppá-
komu hafi áreitið og sársaukinn
orðið enn meiri. „Mamma komst
í mikið uppnám fyrir jólin. Þetta
reyndi mikið á þolrifin í okkur og
ég sagði að við skyldum þá bara láta
málið niður falla.“
Útlitið ansi svart
Lögmaðurinn hjá Opus hafði þá
þegar lagt fram kröfu á Sjóvá og
Sarah segir þau systkinin hafa
ákveðið að bíða átekta – jafnvel þótt
þau hefðu þá enn ekki veitt Opus
umboð til að fara með mál þeirra.
„Svo kom þessi neitun í kring
um jólin og það var eins og síðasta
hálmstráið fyrir mig,“ segir Sarah.
Hún leitaði engu að síður til annars
lögmanns á Íslandi. Eftir athugun
hafi sá lögmaður sagt að hann teldi
ekki nægar líkur á því að málið ynn-
ist og hafnaði því að taka það að sér.
Væri það meðal annars vegna þess
að samkvæmt tryggingarskírteini
flugvélarinnar hefði vélin sjálf, f lug-
maður og farþegar verið tryggðir en
ekki „pilot not flying“ – „flugmaður
sem ekki er að f ljúga“ – sem Grant
hefði verið talinn vera af rann-
sóknarnefnd flugslysa.
„Útlitið er ansi svart og ég held
að málinu séu eiginlega lokið fyrir
okkur,“ segir Sarah sem finnst illa
farið með fjölskylduna. Hún gagn-
rýnir harðlega að rannsóknarnefnd
flugslysa skuli hafi skilgreint föður
hennar sem „pilot not flying“ í f lug-
inu. Það hafi verið Arngrímur sem
f laug vélinni. Umrædd f lugvél er
ekki skilgreind sem tveggja f lug-
manna vél heldur eins f lugmanns
vél eins og Arngrímur sagði sjálfur
í skýrslutöku hjá lögreglunni.
Glufa og fyrirsláttur
Við yfirheyrslur hjá lögreglu kvaðst
Arngrímur hafa flogið vélinni allan
tímann. Hann segir að Grant hafi
hins vegar sett eldsneyti á vélina
fyrir brottför og reynt að koma
blöndungshitara í vélinni í gagnið
eftir að hún missti afl í aðdraganda
brotlendingarinnar.
„Þetta með „pilot not f lying“
lítur einfaldlega út eins og glufa;
fyrirsláttur sem er verið að nota sem
afsökun fyrir að greiða ekki bætur,“
segir Sarah. „Þetta eru klikkuð rök –
eins og ef þú værir í f lugvél sem far-
þegi en sért líka flugmaður þá værir
þú ábyrgur fyrir f luginu.“
Lögreglan fyrir sitt leyti sagðist
„ekki geta sett fram ákveðna niður-
stöðu um orsakir“ þess að flugvélin
fórst en í skýrslu rannsóknarnefnd-
ar f lugslysa segir að „mannlegir
þættir hafi sátt stóran þátt í slys-
inu“. Nefndin segir skilgreiningu
sína á Grant sem „f lugmanni sem
er ekki að fljúga“ – „pilot not flying“
byggjast á því að hann hafi verið
ráðinn sem ferjuf lugmaður fyrir
f lugið og bæði tekið að sér verkefni
í undirbúningi f lugsins og að sögn
Arngríms um borð í vélinni eftir að
neyðarástand var komið upp.
Pabbi minn er ekkert á Íslandi
„Arngrímur er valdamikill maður
og miklu mikilvægari maður á
Íslandi en faðir minn. Hann er eins
konar flugmógúll og goðsögn fyrir
Íslendingum. En pabbi minn er
ekkert fyrir þeim,“ segir Sarah sem
ásakar sjálfa sig fyrir andvaraleysi.
„Núna finnst mér ég algerlega hafa
brugðist bróður mínum og systur.
Ég hefði átt að blanda mér miklu
fyrr í málið og þá hefði þetta ekki
farið svona.“
Að því er Sarah segir hefur Arn-
grímur Jóhannsson aldrei látið frá
sér heyra eftir slysið þótt hann hafi
átt að vera vinur föður hennar.
„Við höfum ekki nokkurn tíma
heyrt í Arngrími eftir slysið. Eng-
inn hefur hringt í okkur og vottað
okkur samúð vegna þessa missis,“
segir Sarah Wagstaff og er heyran-
lega misboðið.
„Þetta tryggingarmál er hrein-
lega svo gróft. Við fáum ekkert sem
viðurkenningu á þeim sársauka og
þjáningu sem við erum að ganga í
gegn um,“ heldur Sarah áfram.
Saga fyrir almenning og pabba
Sarah segir að sér finnist að menn
haf i nýtt sér að Wagstaff-f jöl-
skyldan þekkir ekkert til hér á
landi. „Þótt ég geti ekki sagt að ég
sé undrandi þá þýðir það ekki að ég
sé ekki gríðarlega vonsvikin. Það er
eitthvað ekki eins og það á að vera
en sennilega komumst við aldrei til
botns í því. Við erum í Kanada og
höfum engin sambönd á Íslandi og
mér sýnist við beitt óréttlæti,“ segir
hún.
Þrátt fyrir að Sarah segist telja
að lögmannsstofan Opus sé sek
um vanrækslu í Wagstaff-málinu
og að hún vildi gjarnan sjá stofuna
dregna til ábyrgðar kveðst hún sjálf
hvorki hafa vilja né fjárhagslegt bol-
magn til að reka bótamál gegn fyrir-
tækinu.
„Vilji minn hefur verið bugaður.
Staðan er ekki auðveld fyrir okkur
og við viljum bara að þetta sé yfir-
staðið. En ég vil að þessi saga sé
sögð fyrir almenning að heyra því
þetta er ekki réttlæti. Og ég held að
pabbi hefði viljað það vegna þess að
við höfum ekki getað lagt hann til
hvílu,“ segir Sarah.
Börnin fylgja ekki ekkjunni
Á síðasta ári felldi lögreglan niður
sakamálarannsókn á hendur Arn-
grími vegna flugslyssins. Sarah segir
að ekki standi heldur til af hennar
hálfu að hefja málarekstur gegn
Arngrími. „Í rauninni er afsökunar-
beiðni allt sem við viljum frá Arn-
grími. Það væri nóg.“
Roslyn, ekkja Grants Wagstaff,
er hins vegar ekki af baki dottin og
ætlar enn að leita réttar síns. Það
hyggst hún gera með aðstoð Berg-
lindar Glóðar Garðarsdóttur hjá
Opus eins og fram kom í Frétta-
blaðinu í gær. Sarah hefur enga trú
á þjónustu Opus og vill ekki taka þá
í málarekstrinum.
„Hvernig gat þetta eiginlega
komið fyrir fjölskyldu mína?“ spyr
Sarah Wagstaff.
Arngrímur Jóhannsson lét ekki
ná í sig í gær vegna þessarar umfjöll-
unar.
Í RAUNINNI ER AF-
SÖKUNARBEIÐNI ALLT
SEM VIÐ VILJUM FRÁ
ARNGRÍMI. ÞAÐ VÆRI NÓG.
Arngrímur
Jóhannsson,
stjórnarfor-
maður Atlanta
Arngrímur var enn á sjúkrabeði er lögreglumenn tóku af honum
skýrslu á Landspítalanum tíu dögum eftir slysið.
9 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
9
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
8
7
-1
D
0
C
2
2
8
7
-1
B
D
0
2
2
8
7
-1
A
9
4
2
2
8
7
-1
9
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
1
2
s
_
8
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K