Fréttablaðið - 09.03.2019, Blaðsíða 76
Magnús Frið
bergsson mælir
með sæbjúgna
hylkjum frá Arct
ic Star en hann
finnur mun á sér
eftir að hann
fór að nota þau.
Sæbjúgu inni
halda fimmtíu
tegundir af nær
ingarefnum.
Í Kína eru sæbjúgu þekkt sem heilsubótarfæði og notuð til bóta við hinum ýmsu meinum.
Kínverjar kalla sæbjúgu gjarnan
„ginseng hafsins“ og til eru sagnir
um notkun sæbjúgna þar fyrir
meira en þúsund árum.
Arctic Star sæbjúgnahylkin
innihalda yfir fimmtíu tegundir
af næringarefnum sem geta haft
jákvæð áhrif á lífeðlisfræðilega
starfsemi mannslíkamans, til
dæmis er mikið kollagen í þeim en
það er eitt helsta uppbyggingar-
prótein líkamans.
Finnur mikinn
mun á sér
Á síðustu árum hefur Arctic
Star sérhæft sig í þróun á fæðu-
bótarefnum, svo sem framleiðslu,
markaðssetningu og sölu á hágæða
sæbjúgnahylkjum. Hylkin eru
framleidd úr íslenskum, hágæða,
villtum sæbjúgum sem eru veidd í
Atlantshafinu.
Magnús Friðbergsson, verkefna-
stjóri hjá Landspítala, hefur tekið
sæbjúgnahylkin frá Arctic Star
undanfarin tvö ár. „Vinur minn
kynnti mig fyrir sæbjúgnahylkj-
unum og þar sem ég hafði lengi
verið slæmur í hnjám, með liðverki
og lítið getað beitt mér, ákvað
ég að prófa. Tveimur til þremur
vikum seinna fann ég mikinn
mun. Nú hef ég tekið sæbjúgna-
hylkin í tvö ár og fer allra minna
ferða án óþæginda. Það er algjör
bylting frá því sem áður var. Nú get
ég gert hluti eins og að fara í langar
gönguferðir, sem ég gat varla gert
áður. Að minnsta kosti gerði ég
það ekki með bros á vör og það tók
mig langan tíma að jafna mig eftir
álag,“ útskýrir hann.
Magnús, sem er 69 ára gamall
í dag, hafði fengið að heyra frá
lækni að mikið slit væri í hnjám
hans og ekki væri von á að það
gengi til baka. „Hann sagði mér að
kíkja á fæðingardaginn minn og að
ég gæti ekki búist við að fara aftur
í tíma. Mér fannst vont að heyra
þetta og var því tilbúinn að prófa
ýmislegt sem gæti mögulega lagað
þetta. Sæbjúgnahylkin frá Arctic
Star virka mjög vel á mig og ég
mæli með að fólk prófi þau.“
Framleiðandi sæbjúgna er
Arctic Star ehf. Allar nánari upp
lýsingar fást á arcticstar.is. Arctic
Star sæbjúgnahylki fást í flestum
apótekum og heilsubúðum og í
Hagkaupum.
Sæbjúgnahylkin
eru bylting
Magnús er betri í hnjám og finnur
minna fyrir liðverkjum eftir að hann
fór að taka sæbjúgnahylkin.
Matarmarkaðurinn var haldinn í Hörpu um síðustu helgi en þar sýndi
fjöldi smábænda og smærri mat-
vælaframleiðenda fjölbreytt úrval
af ýmiss konar matvöru og bauð
gestum upp á að smakka og kynn-
ast þeim betur.
Meðal þeirra sem kynntu
afurðir sínar voru fulltrúar Breið-
dalsbita, Guðný Harðardóttir og
Jórunn Dagbjört Jónsdóttir, en
Breiðdalsbiti er í eigu sauðfjár-
bændanna að Gilsárstekk í Breið-
dal, Guðnýjar Harðardóttur og
Vals Þeys Arnarsonar, auk Arnalds
Sigurðssonar, sauðfjárbónda að
Hlíðarenda.
Byrjuðu smátt
Fyrirtækið, sem hefur aðsetur
í Breiðdal á Austfjörðum, var
stofnað árið 2016 og framleiddi
fyrst um sinn eingöngu kæfu að
sögn Guðnýjar sem gegnir stöðu
framkvæmdastjóra. „Síðan þá
hefur framleiðslan vaxið hægt
og rólega. Í dag samanstendur
vörulína okkar m.a. af tveimur
tegundum af kæfu, ærberjasnakki,
hakkbollum, kindahakki og
lundum svo dæmi séu nefnd. Næst
á dagskrá er að þróa kjötkraft en
við fengum styrk til þess. Starf-
semin byrjaði í vottuðu eldhúsi í
veiðihúsinu hér í sveitinni en nú
erum við loksins komin í okkar
eigin aðstöðu sem við náðum að
klára rétt fyrir jólamarkaðina á
síðasta ári.“
Hugmyndin að Breiðdalsbita
þróaðist út frá verkefninu Breið-
dælingar móta framtíðina, sem
var liður í átakinu Brothættar
byggðir hjá Byggðastofnun að sögn
Guðnýjar. „Við vorum tvenn hjón
sem stofnuðum félagið upphaf-
lega en núna erum við þrjú ásamt
öflugum liðsfélaga, Jórunni Dag-
björtu Jónsdóttur, sem er nýorðin
sauðfjárbóndi í dalnum. Auk þess
er óhætt að segja að samfélagið hér
sé boðið og búið til að koma á stofn
slíku fyrirtæki og því hafa margir
góðir lagt okkur lið á annatímum.“
Tókst vonum framar
Matarmarkaðurinn um síðustu
helgi tókst frábærlega að hennar
sögn. „Andinn var svo frískur og
hress, bæði meðal þátttakenda og
gesta. Við vorum með fleiri vöru-
flokka núna en í fyrra og frum-
sýning okkar á ærberjasnakkinu
tókst vonum framar. Gestum þótti
snakkið óvanalegt, augun stækk-
uðu á sumum og greinilegt að
margir nutu þess. Við eignuðumst
nýja vini um helgina og svo var
dásamlegt að hitta gamla vini.“
Hvernig er lífið í Breiðdal?
Það er æðislegt og ég vil hvergi
annars staðar vera. Ég er uppalin
á Héraði, rétt hjá Egilsstöðum, og
hélt að ég gæti ekki fest rætur ann-
ars staðar en það afsannaðist.
Hvaða afurðir náttúrunnar á
Austurlandi nýtir þú helst í matar-
gerð?
Ég nota auðvitað lambið og
annað kindakjöt frá eigin búi.
En jurtirnar hér í dalnum, eins
og bláber, blóðberg og birki, eru
frábær krydd. Aðalbláberin og blá-
berin eiga hug minn allan.
Hvenær kviknaði áhugi þinn á
matargerð?
Hann byrjaði snemma. Þar má
helst nefna áhugann á að fullnýta
sauðkindina, og veita henni þá
virðingu sem henni ber, sem hefur
fylgt mér alla tíð. Að nýta skrokk-
inn í dýrindis mat er bara hluti af
því. Ég prjóna einnig mikið úr ull.
Er til einhver matur sem þú
borðar alls ekki?
Nei, ég vil ólm smakka allt nýtt
sem ég kemst í. Ég er sannkall-
aður matarferðamaður, þegar ég
fæ tækifæri til. Einnig er ég mjög
fastheldin á hefðir og reglulega eru
svið hér á borðum, súrmatur og
annað þjóðlegt góðgæti.
Hvað finnst þér best að fá í
morgunmat um helgar?
Beikon og egg er himneskt.
Þegar þú vilt gera vel við þig í mat
og drykk, hvað verður fyrir valinu?
Vel maríneraður innri lærvöðvi
af fullorðnu heimaslátruðu. Helst
maríneraður í bláberjum. Gott
grænmeti, brún sósa og rautt vín
með.
Hvaða veitingastaður er í mestu
uppáhaldi?
Kaffi Hamar hér í Breiðdal
klikkar aldrei! Hann býður upp á
ekta heimilismat.
Hvernig verður helgin hjá þér og
þínum?
Helgin fer í að taka snoðið af
kindunum en þetta er í annað sinn
sem þær eru rúnar í vetur. Það
er til þess að fá haustullina í sem
mestum gæðum ásamt því að auka
velferð þeirra en þær eru sumar
orðnar ansi loðnar. Þeim þykir
ekki gott að vera í þykkri ullar-
peysu á hlýju sumri.
Ólm í að smakka allt nýtt
Guðný Harðardóttir, sauðfjárbóndi að Gilsárstekk í Breiðdal, er mjög fastheldin á hefðir. Hún er
einn eigenda Breiðdalsbita sem kynnti afurðir sínar á matarmarkaðinum í Hörpu síðustu helgi.
Guðný Harðardóttir (t.h.) á matarmarkaðinum í Hörpu síðustu helgi ásamt
Jórunni Dagbjörtu Jónsdóttur. Vörur þeirra fengu mjög góðar undirtektir.
Starri Freyr
Jónsson
starri@frettabladid.is
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
netverslun www.belladonna.is
Nýjar vörur
streyma inn
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . M A R S 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
0
9
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
8
7
-7
5
E
C
2
2
8
7
-7
4
B
0
2
2
8
7
-7
3
7
4
2
2
8
7
-7
2
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
1
2
s
_
8
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K