Náttúrufræðingurinn - 2018, Qupperneq 41
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
41
milli aðalmeðferða var notað LSD-próf
(e. Fisher´s Least Significant Difference
tests) til að skoða mun milli einstakra
meðferðarliða (þ.e. mismunandi dag-
setninga eða mismunandi styrkleika
eiturs innan aðalmeðferðar).
NIÐURSTÖÐUR
Skógarkerfill í vegköntum: Talning
skógarkerfilsbrúska í vegköntum með-
fram stofnbrautum í fimm sveitarfé-
lögum í Eyjafirði sýndi að á sex ára
tímabili frá 2005 til 2011 hafði brúsk-
unum fjölgað um 62%, eða úr 2,1 upp í
3,4 á hvern ekinn kílómetra að meðal-
tali. Þegar horft var sérstaklega til
tveggja landmestu sveitarfélaganna,
Eyjafjarðarsveitar og Hörgársveitar,
mátti sjá að á þessu sex ára tímabili
hafði skógarkerfli fjölgað um 19% í Eyja-
fjarðarsveit og um 55% í Hörgársveit.
Gróðurgreining og þekjumat í út-
tektarreitum: Úttekt á gróðurþekju
skógarkerfilsreita víðsvegar um Eyja-
fjörð sýndi að endurtekin úðun með
glýfosati í 3–4 ár í röð, áður en matið fór
fram virtist skila árangri. Þekja skógar-
kerfils haustið 2011 var minni (12%) en
í reitum sem einungis höfðu verið úð-
aðir í eitt eða tvö ár (1. tafla). Í reitum
sem höfðu verið úðaðir tvisvar áður en
matið fór fram var þekja skógarkerf-
ils um 55% en um 85% í reitum sem
einungis höfðu verið úðaðir einu sinni.
Endurtekna úðunin virtist því skila ár-
angri á þann hátt að skógarkerfill hop-
aði, að minnsta kosti tímabundið, og
5. mynd. Ljósmyndir og gróðurgreining á gróðurþekju reita sem úðaðir höfðu verið annars vegar 1x og hins vegar 3-4 sinnum í jafnmörg ár
fyrir úttekt. Úttekt var gerð 4 sinnum yfir vaxtartímabilið á árinu 2011. Photos showing the vegetation cover of plots where herbicide had been
sprayed once and 3-4 times. The evaluation was made during the growing season of year 2011.
1. tafla. Meðaltal af hlufallslegri þekju gróðurs í reitum (n=4) víðsvegar um Eyjafjörð sem höfðu
fengið eina, tvær eða 3-4 úðanir á jafnmörgum árum. Byggt á úttekt sem fram fór 26. júlí 2011.
– The average cover of vegetation plots (n=4) in Eyjafjördur after one, two or 3-4 times app-
lication of herbicide. Data from 26th of July 2011.
2. maí 2011
1x
ú
ðu
n
/
he
rb
ic
id
e
3-
4x
ú
ðu
n
/
he
rb
ic
id
e
22. júní 2011 26. júlí 2011 9. september 2011
Skógarkerfill / Anthriscus sylvestris
Klóelfting / Equisetum arvense
Njóli / Rumex longifolius
Túnfífill / Taraxacum spp.
Engjamunablóm / Myosotis scorpioides
Ætihvönn / Angelica archangelica
Varparsveifgras / Poa annua
Akurarfi / Stellaria graminea
Lokasjóður / Rhinanthus minor
Túnsúra / Rumex acetosa
Vallhumall / Achillea millefolium
Lindadúnurt / Epilobium alsinifolium
Blóðarfi / Polygonum aviculare
Hófsóley / Caltha palustris
Haugarfi / Stellaria media
Sina og mold / litter and soil
*Þekja minni en 5% / Cover less than 5%
100 85
15
55
20
*
*
*
*
20
12
17
12
*
*
16
15
*
*
7
*
*
*
*
12
Án úðunar
Control
Ein úðun
1x herbicide
Tvær úðanir
2x herbicide
3-4 úðanir
3-4x herbicide
Gróðurþekja / Cover (%)