Fréttablaðið - 13.03.2019, Side 16
Við viljum fá
skýrari mynd á það
hvernig landið liggur áður
en efnt verður til hluta-
fjárútboðs.
Bogi Nils Boga-
son, forstjóri
Icelandair Group
Samstæða Landsbankans 15-20%
Samstæða Íslandsbanka 10-15%
Samstæða Arion banka 35-40%
Sameinað félag Kviku
og GAMMA 15-20%
Almennir lífeyrissjóðir 10-15%
✿ Hlutdeild á markaði
fyrir eignastýringu
Í kjölfar kaupa Kviku banka á
GAMMA Capital Management
verður sameinað félag með 15 til
20 prósenta hlutdeild, eða áþekka
hlutdeild og samstæða Landsbank
ans, á eignastýringarmarkaði. Eftir
sem áður mun samstæða Arion
banka tróna yfir keppinautum
sínum með 35 til 40 prósenta hlut
deild.
Þetta kemur fram í ákvörðun
Samkeppniseftirlitsins sem lagði
í síðustu viku blessun sína yfir
kaup f jár fest ingarbankans á
GAMMA. Um er að ræða tölulegt
mat eftirlitsins á markaðshlut
deild á grundvelli verðmætis eigna
í stýringu.
Er það mat eftirlitsins að sam
runinn muni ekki raska samkeppni
á mörkuðum með neinum umtals
verðum hætti.
Samkeppniseftirlitið rannsakaði
sérstaklega markaðinn fyrir eigna
stýringu og undirmarkaði hans í
ljósi þess að samruninn tekur nær
eingöngu til eignastýringar þar sem
umsvif GAMMA á öðrum sviðum
fjármálaþjónustu, sem Kvika býður
einnig upp á, eru afar lítil.
Samanlagðar eignir í stýringu
hjá Kviku og rekstrarfélögum í eigu
bankans verða um 400 milljarðar
króna í kjölfar kaupanna.
Var það niðurstaða eftirlitsins
að í heild leiddu kaupin til þess að
hlutdeild fyrirtækjanna tveggja á
heildarmarkaðinum fyrir eigna
stýringu styrktist nokkuð. Kaupin
hefðu hins vegar lítil áhrif á hlut
deild á smásölusjóðamarkaði en
samþjöppun ykist nokkuð á fag
fjárfestasjóðamarkaði.
„Það skiptir verulegu máli í þessu
sambandi að á þeim markaði, jafnt
sem smásölusjóðamarkaði, etur
sameinað félag kappi við öf luga
keppinauta sem búa yfir miklum
fjárhagslegum styrkleika, þ.e. við
stóru viðskiptabankana þrjá,“ segir
í ákvörðun eftirlitsins.
Jafnframt búi sameinað félag
við öf lugt kaupendaaðhald frá
almennu lífeyrissjóðunum.
Í umsögnum til Samkeppniseftir
litsins kom almennt fram það mat
hjá keppinautum á eignastýringar
markaði, jafnt stórum sem smáum,
að samkeppnin væri hörð á mark
aðinum.
Virtust fyrirtækin á markaðinum
ekki telja að samruninn myndi hafa
neikvæð áhrif á samkeppni. Ekki
væri ólíklegt að aukin stærðarhag
kvæmni sameinaðs félags Kviku og
GAMMA myndi leiða til aukinnar
verðsamkeppni.
Slík aukin verðsamkeppni myndi
þó geta gert smærri fyrirtækjum
erfiðara um vik á markaðinum en
þar sem smærri fyrirtækin ein
beittu sér fremur að óhefðbundnari
fjárfestingarkimum markaðarins,
þá ætti það hins vegar ekki við um
öll smærri fyrirtækin. – kij
Með 15 til 20 prósenta hlutdeild á markaði fyrir eignastýringu
Ármann
Þorvaldsson,
forstjóri Kviku
banka.
3
1
1
3
3
2
2019
n Boeing 737 MAX 9
n Boeing 737 MAX 8
2020 2021
✿ Afhending flugvéla
til Icelandair
„Það kemur til greina að Icelandair
Group efni ekki til hlutafjárútboðs
að svo stöddu gangi salan á Ice
landair Hotels vel og það verði ekki
„frekari breytingar á samkeppn
isumhverfinu.“ Þetta segir Bogi Nils
Bogason, forstjóri Icelandair Group,
í samtali við Markaðinn, og nefnir
að það hafi komið fram á hluthafa
fundi fyrirtækisins á föstudag. „Eins
og staðan er núna, líta tilboðin
ágætlega út.“
Stefnt var að hlutafjárútboði Ice
landair Group á fyrsta ársfjórðungi
í ár, sem lýkur í mars, en upplýst
var um á aðalfundinum að nú væri
horft til fyrri helmings ársins. Fjár
hæðin sem safna á er 625 milljónir
að nafnvirði, miðað við markaðs
virðið núna er um rúmlega 4,4
milljarða króna að ræða.
Hvers vegna var ákveðið að fresta
hlutafjárútboðinu?
„Upphaflega var ákveðið að auka
hlutafé Icelandair Group til að fjár
magna kaup á WOW air. Þau kaup
gengu ekki eftir, eins og upplýst
var í lok nóvember. Engu að síður
sóttum við um heimild til hluthafa
þess efnis að auka hlutafé til að
nýta til vaxtar ef breytingar verða
á samkeppnisumhverfinu. Enn er
stefnt að útboðinu en við viljum fá
skýrari mynd á það hvernig landið
liggur áður en efnt verður til hluta
fjárútboðs.“
Getur Icelandair farið í hluta-
fjárútboð áður en myndin skýrist
varðandi framtíð WOW air?
„Já það getur félagið, við erum að
fylgjast með samkeppnisumhverf
inu í heild sinni og tækifærunum
þar.“
Tíu milljarða lán
Icelandair Group hefur gengið frá
80 milljóna dollara láni, jafnvirði
9,7 milljarða króna, frá innlendum
banka. Morgunblaðið sagði í gær að
Landsbankinn væri lánveitandinn.
Bogi Nils segir að lánið verði nýtt
til að endurfjármagna skuldabréf
á hagstæðari kjörum. Að auki sé
lengt í láninu en það sé til fimm
ára. Skuldir félagsins muni því
ekki aukast fyrir vikið. „Við höfum
unnið að fjármögnuninni í nokkra
mánuði.“
Fram hefur komið í fjölmiðlum
að vegna erfiðleika í rekstri hafi
Icelandair Group brotið lánaskil
mála skuldabréfanna.
Að hans sögn greiddi félagið 73
milljónir dollara inn á skuldabréfa
f lokkinn í janúar. Félagið muni
því á skömmum tíma hafa greitt
153 milljónir dollara inn á lánið,
jafnvirði 18,5 milljarða króna. „Þá
standa 60 milljónir dollara eftir og
það kemur til greina að endurfjár
magna þá að fullu fyrir lok ann
ars fjórðungs. Við höfum nokkuð
mikinn sveigjanleika. Við getum
veðsett f lugvélar í okkar eigu sem
eru óveðsettar og getum því stokkið
til ef viðunandi kjör bjóðast á mark
aðnum.“
Ekki rætt um stærra lán
Vildi bankinn ekki lána nægilega
mikið til að greiða skuldabréfa-
f lokkinn upp að fullu?
„Það var ekki rætt um það. Það
eru fleiri aðilar, sérstaklega erlend
is, sem bjóða fjármögnun sem
þessa. Það eru því margir mögu
leikar opnir.“
Er ekki erfiðara að ráðast í endur-
skipulagningu á rekstrinum þegar
þið eruð með skráð skuldabréf ?
Ef laust auðveldara að ræða við
einn banka í stað fleiri skuldabréfa-
eigenda?
„Það er alveg rétt. Það er ókyrrð í
Óvíst með áformað útboð Icelandair
Ákvörðunin ekkert að
gera með flugöryggi
„Icelandair Group hefur ákveðið
að taka Boeing 737 MAX 8
flugvélar sínar úr rekstri um
óákveðinn tíma. Félagið er með
þrjár slíkar vélar í rekstri,“ sagði
í tilkynningu til Kauphallarinnar
rétt fyrir klukkan þrjú í gær.
Hlutabréf félagsins höfðu
skömmu áður hríðfallið í verði
eftir að bresk flugmálayfirvöld
greindu frá því að engar Boeing
737 MAX vélar mættu fljúga
innan breskrar lofthelgi. Gengi
bréfanna lækkaði um rúmlega 5
prósent í samtals 482 milljóna
króna veltu og stóð í 7,1 krónu
á hlut við lokun markaða. Frá
áramótum hafa bréfin lækkað í
verði um nærri 26 prósent.
Bogi segir að flugmálayfirvöld
í löndum sem Icelandair flýgur
til hafi bannað flug umræddra
flugvéla. Það trufli leiða-
kerfi flugfélagsins og því hafi
verið ákveðið að stöðva rekstur
þeirra og nota aðrar vélar í stað-
inn. „Ákvörðunin hefur ekkert
að gera með afstöðu okkar til
öryggis vélanna. Við teljum þær,
eins og áður, öruggar til flugs.“
Icelandair mun innan skamms
fá sex 737 flugvélar frá Boeing,
þar af eru þrjár 737 MAX 8 og
þrjár MAX 9. Á næsta ári mun
það fá tvær MAX 8 vélar og eina
árið 2021.
Til skamms tíma mun þessi
ráðstöfun hafa óveruleg áhrif á
rekstur félagsins þar sem aðeins
er um þrjár vélar að ræða af 33
farþegavélum í flota félagsins
og því hefur félagið svigrúm til
að bregðast við á næstu vikum,
segir í tilkynningunni.
Veldur það miklu fjárhagstjóni
fyrir Icelandair Group að geta
ekki nýtt MAX 8 flugvélarnar
sem það á og eru á leiðinni?
„Til skamms tíma eru áhrifin
óveruleg, við erum með svig-
rúm í flugflota félagsins til að
bregðast við þessum aðstæð-
um. Eins og fram kom í tilkynn-
ingunni eru þetta 3 vélar af 33 í
núverandi flota.“
Hafið þið sett ykkur í sam-
band við Boeing og reynt að
gera breytingar á afhendingu
flugvélanna, annaðhvort fyrir
sumarið eða næsta sumar?
„Við erum í stöðugu sam-
bandi við Boeing en það hefur
ekki komið til umræðu að fresta
afhendingu véla.“
Enn meiri þrýstingur á hagræðingu
Snorri Jakobsson, grein-
andi hjá Capacent, segir
að það líti út fyrir að
fyrsti fjórðungur ársins
hjá Icelandair Group
verði verri en í fyrra.
„Verkföll eru að bresta á
og búið að taka Boeing
MAX 8 vélar úr rekstri,
sem hefur neikvæð áhrif
á reksturinn, sem leiðir
til þess að útlit er fyrir að annar
fjórðungur verði líka verri en árið
áður. Stjórnendur flugfélagsins
hafa því knappari tíma en áður
til að snúa við rekstrinum, þótt
vissulega sé það vel gerlegt.
Sveiflur í rekstri flugfélaga
geta verið ótrúlegar.
Nú hefur skapast enn
meiri þrýstingur á að hag-
rætt verði hjá félaginu. Ef
ekki, gæti farið svo að árið
í ár verði verra en í fyrra og
þá eru horfur fyrir árið 2020
ekki góðar,“ segir hann en
nefnir að fjárhagur fyrir-
tækisins þoli umtalsvert tap.
Icelandair Group tapaði 52 millj-
ónum dollara á fyrri helmingi
ársins 2018 og 110 milljónum
dollara á árinu öllu.
Hlutabréfaverð Icelandair hefur lækkað um 15 prósent í viðskiptum í Kauphöllinni í vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Snorri
Jakobsson,
greinandi hjá
Capacent.
Forstjóri Icelandair
Group segir að eins og
staðan sé núna líti til-
boðin í Icelandair Hotels
ágætlega út. Tóku 80
milljóna dollara lán til að
endurfjármagna skulda-
bréf með hagstæðari
hætti. Hafa mikinn
sveigjanleika til fjár-
mögnunar vegna fjölda
óskuldsettra flugvéla.
Helgi Vífill
Júlíusson
helgivifill@frettabladid.is
loftinu í f lugrekstri, afkoman á síð
asta ári var ekki góð og ýmislegt að
eiga sér stað í þessum geira á Íslandi.
Við þær aðstæður er mun þægilegra
að ræða við einn banka í stað tuga
fjárfesta.“
Icelandair Group á 42 f lugvélar,
þar af eru 30 óveðsettar. Flestar
þeirra eru Boeing 757.
Á hvað eru þessar f lugvélar sem
nýttar eru sem veð bókfærðar? Þær
eru komnar til ára sinna, hafa þær
verið afskrifaðar að fullu?
„Flugvélarnar hafa ekki verið
afskrifaðar að fullu. Markaðsvirði
f lugvélanna hefur á undanförnum
tveimur árum verið að aukast frem
ur en að dragast saman. Það er mjög
virkur markaður með þessar f lug
vélar. Það er mjög misjafnt á hvaða
verði þær eru bókfærðar. Það fer
eftir því hvenær þær voru keyptar
og hve mikið þær hafa verið notað
ar. Flugvélarnar eru ekki bókfærðar
í heilu lagi heldur er skrokkur bók
færður sér og hreyflar sér.“
Í ljósi erfiðari tíma í f lugrekstri:
Hafa greiðslukortafyrirtæki þrengt
skilmála sína að undanförnu?
„Ekki hvað okkur varðar.“
1 3 . M A R S 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R4 MARKAÐURINN
1
3
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:4
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
8
C
-4
F
B
4
2
2
8
C
-4
E
7
8
2
2
8
C
-4
D
3
C
2
2
8
C
-4
C
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
1
2
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K