Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.03.2019, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 13.03.2019, Qupperneq 16
Við viljum fá skýrari mynd á það hvernig landið liggur áður en efnt verður til hluta- fjárútboðs. Bogi Nils Boga- son, forstjóri Icelandair Group Samstæða Landsbankans 15-20% Samstæða Íslandsbanka 10-15% Samstæða Arion banka 35-40% Sameinað félag Kviku og GAMMA 15-20% Almennir lífeyrissjóðir 10-15% ✿ Hlutdeild á markaði fyrir eignastýringu Í kjölfar kaupa Kviku banka  á GAMMA Capital Management verður sameinað félag með 15 til 20 prósenta hlutdeild, eða áþekka hlutdeild og samstæða Landsbank­ ans, á eignastýringarmarkaði. Eftir sem áður mun samstæða Arion banka tróna yfir keppinautum sínum með 35 til 40 prósenta hlut­ deild. Þetta kemur fram í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins sem lagði í síðustu viku blessun sína yfir kaup  f jár fest ingarbankans á GAMMA. Um er að ræða tölulegt mat eftirlitsins á markaðshlut­ deild á grundvelli verðmætis eigna í stýringu. Er það mat eftirlitsins að sam­ runinn muni ekki raska samkeppni á mörkuðum með neinum umtals­ verðum hætti. Samkeppniseftirlitið rannsakaði sérstaklega markaðinn fyrir eigna­ stýringu og undirmarkaði hans í ljósi þess að samruninn tekur nær eingöngu til eignastýringar þar sem umsvif GAMMA á öðrum sviðum fjármálaþjónustu, sem Kvika býður einnig upp á, eru afar lítil. Samanlagðar eignir í stýringu hjá Kviku og rekstrarfélögum í eigu bankans verða um 400 milljarðar króna í kjölfar kaupanna. Var það niðurstaða eftirlitsins að í heild leiddu kaupin til þess að hlutdeild fyrirtækjanna tveggja á heildarmarkaðinum fyrir eigna­ stýringu styrktist nokkuð. Kaupin hefðu hins vegar lítil áhrif á hlut­ deild á smásölusjóðamarkaði en samþjöppun ykist nokkuð á fag­ fjárfestasjóðamarkaði. „Það skiptir verulegu máli í þessu sambandi að á þeim markaði, jafnt sem smásölusjóðamarkaði, etur sameinað félag kappi við öf luga keppinauta sem búa yfir miklum fjárhagslegum styrkleika, þ.e. við stóru viðskiptabankana þrjá,“ segir í ákvörðun eftirlitsins. Jafnframt búi sameinað félag við öf lugt kaupendaaðhald frá almennu lífeyrissjóðunum. Í umsögnum til Samkeppniseftir­ litsins kom almennt fram það mat hjá keppinautum á eignastýringar­ markaði, jafnt stórum sem smáum, að samkeppnin væri hörð á mark­ aðinum. Virtust fyrirtækin á markaðinum ekki telja að samruninn myndi hafa neikvæð áhrif á samkeppni. Ekki væri ólíklegt að aukin stærðarhag­ kvæmni sameinaðs félags Kviku og GAMMA myndi leiða til aukinnar verðsamkeppni. Slík aukin verðsamkeppni myndi þó geta gert smærri fyrirtækjum erfiðara um vik á markaðinum en þar sem smærri fyrirtækin ein­ beittu sér fremur að óhefðbundnari fjárfestingarkimum markaðarins, þá ætti það hins vegar ekki við um öll smærri fyrirtækin. – kij Með 15 til 20 prósenta hlutdeild á markaði fyrir eignastýringu  Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku banka. 3 1 1 3 3 2 2019 n Boeing 737 MAX 9 n Boeing 737 MAX 8 2020 2021 ✿ Afhending flugvéla til Icelandair „Það kemur til greina að Icelandair Group efni ekki til hlutafjárútboðs að svo stöddu gangi salan á Ice­ landair Hotels vel og það verði ekki „frekari breytingar á samkeppn­ isumhverfinu.“ Þetta segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, í samtali við Markaðinn, og nefnir að það hafi komið fram á hluthafa­ fundi fyrirtækisins á föstudag. „Eins og staðan er núna, líta tilboðin ágætlega út.“ Stefnt var að hlutafjárútboði Ice­ landair Group á fyrsta ársfjórðungi í ár, sem lýkur í mars, en upplýst var um á aðalfundinum að nú væri horft til fyrri helmings ársins. Fjár­ hæðin sem safna á er 625 milljónir að nafnvirði, miðað við markaðs­ virðið núna er um rúmlega 4,4 milljarða króna að ræða. Hvers vegna var ákveðið að fresta hlutafjárútboðinu? „Upphaflega var ákveðið að auka hlutafé Icelandair Group til að fjár­ magna kaup á WOW air. Þau kaup gengu ekki eftir, eins og upplýst var í lok nóvember. Engu að síður sóttum við um heimild til hluthafa þess efnis að auka hlutafé til að nýta til vaxtar ef breytingar verða á samkeppnisumhverfinu. Enn er stefnt að útboðinu en við viljum fá skýrari mynd á það hvernig landið liggur áður en efnt verður til hluta­ fjárútboðs.“ Getur Icelandair farið í hluta- fjárútboð áður en myndin skýrist varðandi framtíð WOW air? „Já það getur félagið, við erum að fylgjast með samkeppnisumhverf­ inu í heild sinni og tækifærunum þar.“ Tíu milljarða lán Icelandair Group hefur gengið frá 80 milljóna dollara láni, jafnvirði 9,7 milljarða króna, frá innlendum banka. Morgunblaðið sagði í gær að Landsbankinn væri lánveitandinn. Bogi Nils segir að lánið verði nýtt til að endurfjármagna skuldabréf á hagstæðari kjörum. Að auki sé lengt í láninu en það sé til fimm ára. Skuldir félagsins muni því ekki aukast fyrir vikið. „Við höfum unnið að fjármögnuninni í nokkra mánuði.“ Fram hefur komið í fjölmiðlum að vegna erfiðleika í rekstri hafi Icelandair Group brotið lánaskil­ mála skuldabréfanna. Að hans sögn greiddi félagið 73 milljónir dollara inn á skuldabréfa­ f lokkinn í janúar. Félagið muni því á skömmum tíma hafa greitt 153 milljónir dollara inn á lánið, jafnvirði 18,5 milljarða króna. „Þá standa 60 milljónir dollara eftir og það kemur til greina að endurfjár­ magna þá að fullu fyrir lok ann­ ars fjórðungs. Við höfum nokkuð mikinn sveigjanleika. Við getum veðsett f lugvélar í okkar eigu sem eru óveðsettar og getum því stokkið til ef viðunandi kjör bjóðast á mark­ aðnum.“ Ekki rætt um stærra lán Vildi bankinn ekki lána nægilega mikið til að greiða skuldabréfa- f lokkinn upp að fullu? „Það var ekki rætt um það. Það eru fleiri aðilar, sérstaklega erlend­ is, sem bjóða fjármögnun sem þessa. Það eru því margir mögu­ leikar opnir.“ Er ekki erfiðara að ráðast í endur- skipulagningu á rekstrinum þegar þið eruð með skráð skuldabréf ? Ef laust auðveldara að ræða við einn banka í stað fleiri skuldabréfa- eigenda? „Það er alveg rétt. Það er ókyrrð í Óvíst með áformað útboð Icelandair Ákvörðunin ekkert að gera með flugöryggi „Icelandair Group hefur ákveðið að taka Boeing 737 MAX 8 flugvélar sínar úr rekstri um óákveðinn tíma. Félagið er með þrjár slíkar vélar í rekstri,“ sagði í tilkynningu til Kauphallarinnar rétt fyrir klukkan þrjú í gær. Hlutabréf félagsins höfðu skömmu áður hríðfallið í verði eftir að bresk flugmálayfirvöld greindu frá því að engar Boeing 737 MAX vélar mættu fljúga innan breskrar lofthelgi. Gengi bréfanna lækkaði um rúmlega 5 prósent í samtals 482 milljóna króna veltu og stóð í 7,1 krónu á hlut við lokun markaða. Frá áramótum hafa bréfin lækkað í verði um nærri 26 prósent. Bogi segir að flugmálayfirvöld í löndum sem Icelandair flýgur til hafi bannað flug umræddra flugvéla. Það trufli leiða- kerfi flugfélagsins og því hafi verið ákveðið að stöðva rekstur þeirra og nota aðrar vélar í stað- inn. „Ákvörðunin hefur ekkert að gera með afstöðu okkar til öryggis vélanna. Við teljum þær, eins og áður, öruggar til flugs.“ Icelandair mun innan skamms fá sex 737 flugvélar frá Boeing, þar af eru þrjár 737 MAX 8 og þrjár MAX 9. Á næsta ári mun það fá tvær MAX 8 vélar og eina árið 2021. Til skamms tíma mun þessi ráðstöfun hafa óveruleg áhrif á rekstur félagsins þar sem aðeins er um þrjár vélar að ræða af 33 farþegavélum í flota félagsins og því hefur félagið svigrúm til að bregðast við á næstu vikum, segir í tilkynningunni. Veldur það miklu fjárhagstjóni fyrir Icelandair Group að geta ekki nýtt MAX 8 flugvélarnar sem það á og eru á leiðinni? „Til skamms tíma eru áhrifin óveruleg, við erum með svig- rúm í flugflota félagsins til að bregðast við þessum aðstæð- um. Eins og fram kom í tilkynn- ingunni eru þetta 3 vélar af 33 í núverandi flota.“ Hafið þið sett ykkur í sam- band við Boeing og reynt að gera breytingar á afhendingu flugvélanna, annaðhvort fyrir sumarið eða næsta sumar? „Við erum í stöðugu sam- bandi við Boeing en það hefur ekki komið til umræðu að fresta afhendingu véla.“ Enn meiri þrýstingur á hagræðingu Snorri Jakobsson, grein- andi hjá Capacent, segir að það líti út fyrir að fyrsti fjórðungur ársins hjá Icelandair Group verði verri en í fyrra. „Verkföll eru að bresta á og búið að taka Boeing MAX 8 vélar úr rekstri, sem hefur neikvæð áhrif á reksturinn, sem leiðir til þess að útlit er fyrir að annar fjórðungur verði líka verri en árið áður. Stjórnendur flugfélagsins hafa því knappari tíma en áður til að snúa við rekstrinum, þótt vissulega sé það vel gerlegt. Sveiflur í rekstri flugfélaga geta verið ótrúlegar. Nú hefur skapast enn meiri þrýstingur á að hag- rætt verði hjá félaginu. Ef ekki, gæti farið svo að árið í ár verði verra en í fyrra og þá eru horfur fyrir árið 2020 ekki góðar,“ segir hann en nefnir að fjárhagur fyrir- tækisins þoli umtalsvert tap. Icelandair Group tapaði 52 millj- ónum dollara á fyrri helmingi ársins 2018 og 110 milljónum dollara á árinu öllu. Hlutabréfaverð Icelandair hefur lækkað um 15 prósent í viðskiptum í Kauphöllinni í vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Snorri Jakobsson, greinandi hjá Capacent. Forstjóri Icelandair Group segir að eins og staðan sé núna líti til- boðin í Icelandair Hotels ágætlega út. Tóku 80 milljóna dollara lán til að endurfjármagna skulda- bréf með hagstæðari hætti. Hafa mikinn sveigjanleika til fjár- mögnunar vegna fjölda óskuldsettra flugvéla. Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@frettabladid.is loftinu í f lugrekstri, afkoman á síð­ asta ári var ekki góð og ýmislegt að eiga sér stað í þessum geira á Íslandi. Við þær aðstæður er mun þægilegra að ræða við einn banka í stað tuga fjárfesta.“ Icelandair Group á 42 f lugvélar, þar af eru 30 óveðsettar. Flestar þeirra eru Boeing 757. Á hvað eru þessar f lugvélar sem nýttar eru sem veð bókfærðar? Þær eru komnar til ára sinna, hafa þær verið afskrifaðar að fullu? „Flugvélarnar hafa ekki verið afskrifaðar að fullu. Markaðsvirði f lugvélanna hefur á undanförnum tveimur árum verið að aukast frem­ ur en að dragast saman. Það er mjög virkur markaður með þessar f lug­ vélar. Það er mjög misjafnt á hvaða verði þær eru bókfærðar. Það fer eftir því hvenær þær voru keyptar og hve mikið þær hafa verið notað­ ar. Flugvélarnar eru ekki bókfærðar í heilu lagi heldur er skrokkur bók­ færður sér og hreyflar sér.“ Í ljósi erfiðari tíma í f lugrekstri: Hafa greiðslukortafyrirtæki þrengt skilmála sína að undanförnu? „Ekki hvað okkur varðar.“ 1 3 . M A R S 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R4 MARKAÐURINN 1 3 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :4 1 F B 0 4 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 8 C -4 F B 4 2 2 8 C -4 E 7 8 2 2 8 C -4 D 3 C 2 2 8 C -4 C 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 0 s _ 1 2 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.