Fréttablaðið - 14.03.2019, Page 36
Það hefur verið mjög spenn-andi upplifun að vera nemi hjá Ístaki, dagarnir eru
fjölbreyttir, vinnan skemmtileg,
maður fær góða hreyfingu og er
aldrei að gera það sama,“ segir
Lárus Helgi Þorsteinsson, húsa-
smíðanemi hjá Ístaki.
Lárus Helgi vinnur þessa dagana
við nýbyggingu Sorpu á Álfsnesi.
„Það er gaman að sjá húsið rísa
og árangur af verkum sínum. Hér
læri ég réttu handtökin af reyndum
húsasmiðum sem segja mér fyrir
verkum og leiðbeina mér í hví-
vetna. Í skólanum fékk ég góða
reynslu af hvers kyns vinnu með
verkfæri og vinnuvélar en þegar
maður fer á vinnusvæði til að nýta
sér allt sem maður lærði í skól-
anum öðlast maður meiri skilning
á því hvað maður var að læra og
hvers vegna,“ segir Lárus sem unir
hag sínum vel hjá Ístaki.
„Ég er afskaplega ánægður, hér er
vel tekið á móti nemum, maður fær
að vinna með reyndum mönnum
sem kunna fagið upp á tíu og vel
er hlúð að iðnnemum,“ segir Lárus
sem ákvað að söðla um og fara í
húsasmíði eftir tveggja ára nám á
náttúrubraut í Flensborg. „Eftir að
hafa komist í að smíða geymslur
hjá vinafólki fann ég hvað smíðin
var þúsund sinnum skemmtilegri
en bóknámsbrautin. Ofan á allt
er svo pabbi smiður svo ætli ég sé
ekki með húsasmíðina í genunum,“
segir Lárus sem útskrifast sem
sveinn um næstu jól.
Ánægjuleg fylgd út í lífið
Árni Geir Sveinsson, húsasmíða-
meistari og byggingariðnfræðing-
ur, er meistari Lárusar hjá Ístaki.
„Mín reynsla er að iðnnemar
skili sínu vel og Lárus er áhugasam-
ur og duglegur og nýtist vel í þau
verk sem fyrir hann eru lögð,“ segir
Árni Geir um Lárus sem verður í
þjálfun hjá Ístaki í átján mánuði.
„Á starfssamningi læra iðnnem-
ar rétt handtök á vinnusvæðum
bygginga og standa eftir sem góðir
iðnaðarmenn í lok samningsins.
Á vinnusvæðum steyptra nýbygg-
inga og við byggingu timburhúsa
lærast ólík vinnubrögð við hús-
byggingar og nemarnir komast í
vinnuumhverfi ólíkt því sem þeir
áttu að venjast í verknámi sínu í
skólanum þar sem þeir lærðu að
umgangast vélar, tól og tæki,“ segir
Árni Geir sem nýtur þess að geta
leiðbeint iðnnemum sínum hjá
Ístaki.
„Upp til hópa eru iðnnemar
áhugasamir og vinnusamir. Það
er ánægjulegt að geta boðið þeim
starfssamning svo þeir fái lokið
sveinsprófi og geti haldið út í
atvinnulífið sem fullgildir iðnaðar-
menn. Ég hvet því fyrirtæki til að
taka til sín iðnnema, ekki síst ef
þau vilja stuðla að því að enn fleiri
ungmenni sæki um iðnnám.“
Flottustu starfsgreinarnar
Ístak leggur mikið upp úr því að fá
til sín iðnnema.
„Við teljum lífsnauðsynlegt fyrir
okkur og samfélagið að fá góða
iðnmenntaða einstaklinga út á
vinnumarkaðinn og höfum tekið
við nemum í vélvirkjun, járnsmíði,
rafvirkjun, múraraiðn og meira að
segja námusvein frá Grænlandi,
en þar eru jarðvegsiðnaðarmenn
sérmenntaðir fyrir námuiðnaðinn.
Menntun námusveinsins hefur
nýst okkur vel og hann hefur
notið þess að koma til Íslands á
starfssamning þar sem við höfum
kennt honum margt hvað varðar
vegavinnu og almenna jarðvinnu,“
upplýsir Bjarki Þór Iversen, mann-
auðsstjóri hjá Ístaki.
„Við viljum fá til okkar iðnnema
því við teljum að þeir læri mikið
af því að starfa við hlið reyndra
iðnaðarmanna. Að auki erum við
stórt fyrirtæki með dreifð verkefni
og getum boðið upp á fjölbreytni
sem við teljum mikinn kost fyrir
nemana.“
Bjarki segir Ístak leggja sig fram
við að taka á móti öllum iðnnem-
um sem sækjast eftir því að fara
á starfssamning hjá fyrirtækinu
þótt það geti eðlilega ekki tekið við
öllum.
„En almennt viljum við vera með
rétt hlutfall af iðnnemum, einfald-
lega vegna þess að við getum það
en líka vegna þess að faggreinar
iðnaðarmanna eru okkar lifibrauð
og samfélagsins. Það er frábær
menntun að vera iðnaðarmaður
og ég á erfitt með að sjá fyrir mér
flottari starfsgreinar en iðnaðar-
fólk. Það er enginn hægðarleikur
að verða góður iðnaðarmaður og
það er handverk sem verður ekki
af manni tekið. Við viljum því fá
iðnnema í öllum tilvikum því það
er okkar hagur. Því segi ég: Áfram
iðnnemar!“
Áfram iðnnemar!
Ístak sér mikinn hag í því að taka sem flesta iðnnema á samning, enda sé lífsnauðsynlegt fyrir
fyrirtækið og íslenskt samfélag að fá góða iðnmenntaða einstaklinga á vinnumarkaðinn.
Lárus og Árni Geir við nýbyggingu Sorpu í Álfsnesi. MYND/ANTON BRINK
10 KYNNINGARBLAÐ 1 4 . M A R S 2 0 1 9 F I M MT U DAG U RVERKIÐN
Styðjum við bakið á íslenskum iðnnemum
Við óskum
keppendum
góðs gengis
og vonum að ekkert fari
múrskeiðis
RAFMENNT – fræðslusetur rafiðnaðarins annast verkefni er varða
menntamál rafiðnaðarmanna, allt frá upphafi náms til loka meistara-
skóla, og endurmenntun þeirra sömuleiðis.
RAFMENNT varð til árið 2018 við sameiningu Rafiðnaðarskólans
og Fræðsluskrifstofu rafiðnaðarins í því skyni að auka þjónustu við
félagsmenn og gera framboð menntunar og fræðslu enn fjöl-
breyttara og markvissara.
Rafiðnaðarsamband Íslands og Samtök rafverktaka eiga og
reka RAFMENNT í sameiningu.
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • rafmennt.is • sími 540 0160
RAFMENNT er máttur
Dagbjört Elín Ármannsdóttir, nemi í rafv
irkjun, og
Helgi Már Valdimarsson rafiðnfræðingur a
ð störfum.
1
4
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:5
8
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
8
E
-8
6
4
8
2
2
8
E
-8
5
0
C
2
2
8
E
-8
3
D
0
2
2
8
E
-8
2
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
7
2
s
_
1
3
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K