Fréttablaðið - 16.03.2019, Page 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
Það hefur ekki
verið sérstaklega
rætt hvenær ég hætti.
Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri
Íslandspósts
UMBOÐSAÐILI JEEP Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
®
jeep.is
JEEP® ALVÖRU JEPPAR - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF
VIÐ KYNNUM NÝJAN JEEP® CHEROKEE
STAÐALBÚNAÐUR M.A. 2.2 LÍTRA 195 HÖ. DÍSELVÉL, 9 GÍRA SJÁLFSKIPTING, JEEP® ACTIVE DRIVE MEÐ
4 DRIFSTILLINGUM, HÁTT OG LÁGT DRIF (LIMITED ÚTFÆRSLA), LEÐURINNRÉTTING, 8,4” UPPLÝSINGA- OG
SNERTISKJÁR, ÍSLENSKT LEIÐSÖGUKERFI, RAFDRIFIN OG SNERTILAUS OPNUN Á AFTURHLERA, APPLE &
ANDROID CARPLAY, FJARSTART, BAKKMYNDAVÉL MEÐ BÍLASTÆÐAAÐSTOÐ OG SKYNJURUM, LYKILLAUST
AÐGENGI OG RÆSING, HITI Í FRAMSÆTUM, HITI Í STÝRI, LED AÐALLJÓS, LED AFTURLJÓS, RAFDRIFNIR OG
UPPHITAÐIR HLIÐARSPEGLAR, BLUETOOTH TIL AÐ STREYMA TÓNLIST OG SÍMA.
JEEP® CHEROKEE LONGITUDE LUXURY FRÁ: 7.990.000 KR
JEEP® CHEROKEE LIMITED VERÐ FRÁ: 9.580.000 KR
CHEROKEE LONGITUDE LUXURY
350
Boeing 737 MAX 8 þotur
voru kyrrsettar í vikunni.
Sigríður Á. Andersen
dómsmálaráðherra
sagði af sér emb-
ætti á fimmtudag
í kjölfar áfellis-
dóms Mann-
réttindadómstóls
Evrópu í Lands-
réttarmálinu. Flokks-
systir hennar, Þórdís Kolbrún
Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-,
iðnaðar og nýsköpunarráðherra,
tók svo við dómsmálaráðuneytinu
tímabundið í gær.
Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhann-
esdóttir,
tónlistarkona
var sigursælust
allra á Íslensku
tónlistarverð-
laununum á
fimmtudags-
kvöld. Hún hlaut
fern verðlaun; sem
besta söngkonan, fyrir plötu ársins
og ásamt öðrum fyrir popplag
ársins og myndband ársins.
Ónefndi hælisleitandinn
mótmælandi á Austurvelli
var meðal mest
áberandi einstakl-
inga vikunnar.
Lögreglan beitti
á mánudag
piparúða gegn
hópi fólks sem
mótmælti meðferð á
flóttafólki og umsækjendum um
alþjóðlega vernd. Reyndu sumir að
lina sársaukann með mjólk.
Þrjú í fréttum
Afsögn, ferna
og piparúði
TÖLUR VIKUNNAR 10.03.2019 TIL 16.03.2019
dómarar af
fimmtán í
Landsrétti
dæma ekki
mál í bili.
3,8
milljónir króna
eru mánaðar
laun Birnu
Einarsdóttur,
bankastjóra
Íslandsbanka,
eftir lækkun.
94
prósent vilja að
bólusetningar
séu skylda sam
kvæmt könnun
Zenter rann
sókna.
52,3
prósent
þeirra sem
tóku þátt í
atkvæða
greiðslu
hjá VR sam
þykktu verk
fallsaðgerðir
félagsins.
4
SAMKEPPNI Ingimundur Sigurpáls-
son, forstjóri Íslandspósts ohf. (ÍSP),
hyggst láta af störfum sem forstjóri
fyrirtækisins. Þetta tilkynnti hann
á aðalfundi félagsins í gær. Samhliða
var ársreikningur félagsins birtur
en fyrirtækið tapaði 293 milljónum
á síðasta ári. Hagnaður ársins 2017
var til samanburðar 216 milljónir.
Á liðnu ári rambaði ÍSP á barmi
gjaldþrots og þurfti að fá neyðarlán
frá íslenska ríkinu til að geta staðið
við skuldbindingar sínar. Fyrir jól
var samþykkt heimild til að lána
félaginu allt að milljarð til viðbót-
ar. Nýverið komst Ríkisábyrgða-
sjóður að þeirri niðurstöðu að vandi
Póstsins væri slíkur að ekki kæmi
til greina að lána félaginu meira fé.
Því var samþykkt heimild á hlut-
hafafundi þann 6. mars til að auka
hlutafé í því um allt að 1,5 milljarða.
Áætlað er að neyðarláninu verði
breytt í hlutafé og að 500 milljónir
til viðbótar bætist við á vormán-
uðum.
Í starfsþáttayfirliti sem birt er
með ársskýrslu kemur fram að
einkaréttarbréf hafi skilað 53 millj-
óna afgangi en rúmlega 1,1 milljarðs
tap hafi verið á alþjónustuhlutan-
um. Veltufjárhlutfall hrapar milli
ára, stendur nú í 0,63, eftir að kröfur
á erlend fyrirtæki færðust í fasta-
fjármuni efnahagsreikningsins.
Hlutfall EBITDA í heildartekjum
var 0,8 prósent nú samanborið við
8,3 prósent árið á undan og arðsemi
eigin fjár hrapar úr jákvæðum 9,4
prósentum í neikvæð 11,6 prósent.
Í ræðu sinni á aðalfundinum fór
forstjóri ÍSP yfir slæma stöðu fyrir-
tækisins. Hana mætti meðal annars
rekja til tregðu Póst- og fjarskipta-
stofnunar (PFS) til að hækka gjald-
skrár fyrirtækisins. Áætlaði Ingi-
mundur að synjun stofnunarinnar
á hækkun í fyrra hefði kostað fyrir-
tækið 513 milljónir króna. Einnig
varð honum tíðrætt um alþjón-
ustubyrði félagsins en ÍSP telur
hana hafa numið 900 milljónum á
liðnu ári.
Enn fremur kom Ingimundur
inn á það að fyrir Alþingi lægi fyrir
frumvarp til nýrra póstþjónustu-
laga þar sem einkaréttur ÍSP verði
loksins afnuminn. Það muni hafa í
för með sér að virkir samkeppnis-
markaðir myndist á höfuðborgar-
svæðinu og mögulega Eyjafjarðar-
svæðinu. Hins vegar muni þurfa
að greiða úr því hvernig sinna eigi
alþjónustu hér á landi á svæðum
þar sem ekki er rekstrargrund-
völlur fyrir samkeppni. Í nýju
lögunum sé opnað á að ríkið geri
þjónustusamning vegna þessa og
fagnaði Ingimundur því enda ÍSP
lengi kallað eftir slíku.
„Það hefur ekki verið sérstaklega
rætt hvenær ég hætti. Nú tek ég
spjall við stjórnarformanninn og
sé til hvernig við spilum úr því. Ég
er ekkert að hlaupa frá þessu. Það
tekur alltaf smá tíma að ráða nýjan
mann,“ segir Ingimundur.
Ingimundur segist hafa ætlað að
hætta árið 2016 en þá hafi ekki verið
réttur tími til að hætta. Nú sé hins
vegar rétt að fá nýjan mann í brúna
samhliða breyttu rekstrarumhverfi.
Ákvörðunin hafi verið hans eigin
og ekki hafi verið pressað á hann af
hálfu stjórnar. Hann hafi tilkynnt
stjórnarformanni ákvörðun sína
fyrir fund. joli@frettabladid.is
Lætur af störfum eftir fjórtán
ára starf sem forstjóri ÍSP
Ingimundur Sigurpálsson lætur brátt af störfum sem forstjóri Íslandspósts. Hann tilkynnti þetta á aðal-
fundi í gær. Neikvæður 500 milljóna viðsnúningur varð á rekstri fyrirtækisins í fyrra. Nýverið komst
Ríkisábyrgðasjóður að því að vandi Póstsins væri slíkur að ekki kæmi til greina að lána félaginu meira fé.
Á liðnu ári rambaði ÍSP á barmi gjaldþrots og þurfti að fá neyðarlán frá ríkinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
1 6 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
6
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:2
5
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
9
2
-9
0
B
0
2
2
9
2
-8
F
7
4
2
2
9
2
-8
E
3
8
2
2
9
2
-8
C
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
8
s
_
1
5
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K