Fréttablaðið - 16.03.2019, Blaðsíða 12
Hafin er vinna við gerð viðauka við gildandi
landsskipulagsstefnu þar sem mótuð verður nánari
skipulagsstefna um loftslagsmál, landslag og lýðheilsu.
Lýsing
Lýsing þar sem gerð er grein fyrir hvernig fyrirhugað
er að standa að mótun stefnunnar liggur frammi til
kynningar frá 16. mars til 8. apríl 2019. Lýsingin
er aðgengileg á landsskipulag.is. Nálgast má prentað
eintak hjá Skipulagsstofnun. Allir eru hvattir til að
kynna sér lýsinguna og koma á framfæri ábendingum
um nálgun og efnistök til Skipulagsstofnunar. Frestur
til að koma á framfæri ábendingum er til 8. apríl
2019. Ábendingar þurfa að vera skriflegar og geta
borist bréfleiðis, með tölvupósti á
landsskipulag@skipulag.is, eða á athugasemdagátt á
landsskipulag.is.
Kynningar- og samráðsfundir
Öllum sem áhuga hafa er jafnframt boðið til
kynningar- og samráðsfunda á eftirtöldum tímum.
Þar gefst tækifæri til að kynna sér hvernig fyrirhugað
er að standa að mótun landsskipulagsstefnu og taka
þátt í umræðum um æskilegar áherslur og aðgerðir í
landsskipulagsstefnu varðandi loftslagsmál, landslag
og lýðheilsu.
Borgarnesi
Ísafirði
Selfossi
Reykjavík
Akureyri
Egilsstöðum
Blönduósi
18. mars
19. mars
20. mars
21. mars
25. mars
27. mars
2. apríl
kl 15-17
kl 14-16
kl 15-17
kl 15-17.30
kl 15-17
kl 15-17
kl 15-17
Hjálmakletti
Hótel Ísafirði
Tryggvaskála
Nauthóli
Hofi
Hótel Héraði
Hótel Blöndu
Hús opnar 15 mín. fyrir upphaf fundar á hverjum stað
Fundinum í Reykjavík verður streymt á
Facebook-síðu Skipulagsstofnunar
Nánari upplýsingar á landsskipulag.is
Allir velkomnir
Lýsing er kynnt samkvæmt 11. gr. skipulagslaga og 16. gr.
reglugerðar um landsskipulagsstefnu.
SKIPULAG UM LOFTSLAG,
LANDSLAG OG LÝÐHEILSU
Skipulagsstofnun - Borgartúni 7b - 105 Reykjavík
Slakaðu á
með Slökun
g Lítil orka
g Þróttleysi
g Veik bein
g Hormóna ójafnvægi
g Svefntruflanir
g Vöðvakrampar,
kippir og spenna
g Kölkun líffæra
g Óreglulegur hjartsláttur
g Kvíði
g Streita
g Pirringur
Einkenni
magnesíum-
skorts
www.mammaveitbest.is
Slakaðu á
með Slökun
g Lítil orka
g Þróttleysi
g Veik bein
g Hormóna ójafnvægi
g Svefntruflanir
g Vöðvakrampar,
kippir og spenna
g Kölkun líffæra
g Óreglulegur hjartsláttur
g Kvíði
g Streita
g Pirringur
Einkenni
magnesíum-
skorts
www.mammaveitbest.is
Slakaðu á
með Slökun
g Lítil orka
g Þróttleysi
g Veik bein
g Hormóna ójafnvægi
g Svefntruflanir
g Vöðvakrampar,
kippir og spenna
g Kölkun líffæra
g Óreglulegur hjartsláttur
g Kvíði
g Streita
g Pirringur
Einkenni
magnesíum-
skorts
www.mammaveitbest.is
lakaðu á
eð lök
g Lítil orka
g Þróttleysi
g Veik bein
g Hormóna ójafnvægi
g Svefntruflanir
g Vöðvakrampar,
ki pir og spe na
g Kölkun líffæra
g Óreglulegur hjartslá tur
g Kvíði
g Streita
g Pi ringur
Einke i
agnesí
skorts
i t.i
Ófremdarástand og réttaróvissa í kjölfar dóma
1990 Aðskilnaðarmál
Þeir sem Fréttablaðið ræddi við
um eftirmál sáttar Jóns Kristjáns-
sonar við ríkið muna ekki til þess
að Hæstiréttur hafi tekið til við
að ómerkja dóma eftir sáttina í
Strassborg. Né heldur hafi verið
fallist á endurupptöku mála með
vísan til þessa máls.
Á þessum tíma hafði Mann-
réttindasáttmáli Evrópu hvorki
verið lögfestur, né var búið að
endurskoða mannréttindaákvæði
stjórnarskrárinnar. Borgararnir
voru því ef til vill ekki að velta
réttindum sínum gagnvart ríkis-
valdinu jafn mikið fyrir sér.
1995 Dómarafulltrúamál
Í kjölfar dómarafulltrúadómsins
ómerkti Hæstiréttur hins vegar
alla dóma sem dæmdir höfðu
verið af dómarafulltrúa og vísaði
þeim aftur heim í hérað til lög-
legrar meðferðar.
Þau mál sem voru undir áfrýjun
og höfðu verið dæmd af full-
trúum voru ómerkt og vísað aftur
heim í hérað til nýrrar meðferðar.
Hins vegar var ekki hróflað við
þeim málum sem þegar höfðu
verið dæmd í Hæstarétti.
2019 Landsréttarmál
Þeir fjórir dómarar sem dómur
MDE tekur til hafa kveðið upp 506
dóma og úrskurði frá því rétturinn
tók til starfa. Í flestum tilvikum
er um úrskurði að ræða en dæmd
einkamál eru 110 og sakamál 82
talsins. Í 75 þeirra var hinn ákærði
sakfelldur.
Búist er við að Hæstiréttur
þurfi að ómerkja fjölda dóma og
vísa þeim aftur til Landsréttar til
nýrrar meðferðar í kjölfar dóms
MDE. Þar verði málin tekin aftur
fyrir og dæmd af öðrum en þeim
fjórum dómurum sem dómurinn
tekur til. Gera má ráð fyrir því að
fjöldi beiðna um endurupptöku
mála verði sendur endurupptöku-
nefnd en skilyrði til endurupp-
töku hafa verið rýmkuð og taka
nú til mála ef verulegur ágalli er
talinn hafa verið á málsmeðferð.
DÓMSMÁL Það hefur ekki verið fyrir-
hafnarlaust fyrir íslenska ríkið að
koma málum þannig fyrir í réttar-
kerfinu að mál séu flutt í samræmi
við ákvæði Mannréttindasáttmála
Evrópu um réttláta málsmeðferð. Í
þriðja skiptið verða umferðarlaga-
brot til þess að kollvarpa íslenska
dómskerfinu.
Sami maður – sitthvor hattur
Árið 1986 lagði maður að nafni Jón
Kristjánsson fram kæru til Mann-
réttindanefndar Evrópu sem þá hét,
á þeim grundvelli að brotið hefði
verið gegn ákvæði sáttmálans um
réttláta málsmeðferð fyrir sjálf-
stæðum og óvilhöllum dómstól.
Hann hafði hlotið dóm fyrir að aka
yfir gatnamót á rauðu ljósi. Jón vís-
aði í kæru sinni til þess að mál hans
hefði verið rannsakað af lögreglu-
stjóranum á Akureyri og dæmt af
sakadómaranum á Akureyri en um
einn og sama embættismann var að
ræða.
Mannréttindanefndin komst ein-
róma að þeirri niðurstöðu að þessi
skipan samræmdist ekki ákvæði
6. gr. sáttmálans og vísaði málinu til
Mannréttindadómstólsins.
Alþingi Íslendinga rauk til í kjölfar
niðurstöðu nefndarinnar og réðst í
heilmiklar kerfisbreytingar og vorið
1989 voru lög um aðskilnað dóms-
valds og umboðsvalds í héraði sam-
þykkt. Ríkið leitaði í kjölfarið sátta
við Jón og lauk máli hans í Strass-
borg þar með.
Lögfræðingar í dómaraþjálfun
Með lögunum sem sett voru 1989
voru átta héraðsdómstólar settir á
laggirnar og 38 dómarar skipaðir.
Flestir við Héraðsdóm Reykjavíkur.
Auk dómaranna voru ráðnir þrettán
dómarafulltrúar.
Í greinargerð með lögunum kom
fram að nauðsynlegt væri að við-
halda dómarafulltrúastöðunum
vegna mikilvægis þess að þjálfa lög-
fræðinga í dómaraverkum.
Var nú kyrrt um hríð og Hæsti-
réttur gerði ekki athugasemdir við
hina nýju skipan mála í bili.
Vorið 1995 skipti rétturinn hins
vegar snögglega um gír. Og aftur
var það umferðarlagabrot sem skók
kerfið. Maður var dæmdur fyrir brot
á reglum um hámarksöxulþunga
bifreiða. Það var dómarafulltrúi við
Héraðsdóm Austfjarða sem kvað
upp dóminn yfir manninum.
Hann vildi ekki una því að fulltrúi
í stað skipaðs dómara dæmdi sig til
refsingar.
Hæstiréttur féllst á málsástæður
mannsins, sem voru meðal annars
þær að ráðningarkjör dómarafull-
trúa sem ekki voru æviráðnir, eins
og skipaðir dómarar, fælu það í sér að
dómsmálaráðherra gæti afturkallað
löggildingu þeirra og vikið þeim úr
starfi án þess að bera það undir
dómstóla. Framkvæmdarvaldið
gæti því með áhrifum sínum og ráð-
stöfunum bundið enda á ráðningu
þeirra með skömmum fyrirvara. Af
þessum sökum væri ekki tryggt að
dómarafulltrúi væri óvilhallur eins
og ákvæði stjórnarskrár og Mann-
réttindasáttmálans áskilja.
Dómurinn kom ýmsum á óvart
enda hafði Hæstiréttur ekki gert
athugasemdir við dóma fulltrúanna
fram að þessu. Á það er hins vegar að
líta að þegar þessi dómur gekk var
ár liðið frá lögfestingu Mannrétt-
indasáttmálans og samþykkt nýrra
mannréttindaákvæða í stjórnarskrá
handan við hornið. Ekki er ólíklegt
það hafi haft áhrif.
Í kjölfar dómsins þurfi að taka
upp aðskilnaðarlögin og binda enda
á dómaraþjálfun lögfræðingastétt-
arinnar og skipa þá dómara, enda
talið eftir nýja dóminn að dómara-
fulltrúarnir gætu ekki að óbreyttum
lögum sinnt neins konar dómstörf-
um. Þegar dómur féll var ný löggjöf
um framtíðarskipan dómsmála í
undirbúningi hjá réttarfarsnefnd
en dómsmálaráðherra taldi nauð-
synlegt að bregðast strax við, „til að
koma í veg fyrir að ófremdarástand
skapist hjá héraðsdómstólunum þar
til tími vinnst til að gera endanlegar
tillögur um dómstólaskipan“.
Með lögunum var samþykkt að
dómsmálaráðherra gæti skipað
dómarafulltrúa til að framkvæma
dómsathafnir í umboði dómara og
að um brottvikningu þeirra giltu
sömu ákvæði og um skipaða dóma.
Vildu auka verndina enn
Og var nú kyrrt lengi eða allt þar til
menn fóru að huga að rétti manna
til að fá dóma endurskoðaða að öllu
leyti á æðra dómstigi, en allt þar til
Landsrétti var komið á var ekki
unnt að fá sönnunarfærslu í hér-
aði endurskoðaða fyrir Hæstarétti.
Markmið millidómstigsins var ekki
síst að uppfylla skilyrði Mannrétt-
indasáttmálans um þessa endur-
skoðun. Það tókst þó ekki betur en
svo að skipun þeirra dómara sem
úr þessu áttu að bæta hefur verið
dæmd ólögmæt og í andstöðu við
6. gr. sáttmálans. Það er ef til vill
óþarft að taka það fram en enn og
aftur var það umferðarlagabrot sem
varð kerfinu að falli.
adalheidur@frettabladid.is
Þrjú umferðarlagabrot
sem skekið hafa kerfið
Í þriðja skiptið hefur umferðarlagabrot valdið usla í réttarkerfinu. Aðskiln-
aðarmálið og dómarafulltrúamálið leiddu af sér betri dómstólavernd fyrir
borgarana í tímans rás. Lærdómar Landsdómsmálsins eiga eftir að koma í ljós.
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —6 1 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 1 3 . M A R S 2 0 1 9
Mmm ...
bestur núna!
269 kr.kg
Ananas ferskur
Nú eru allar 55
stöðvar Orkunnar
þínar stöðvar.
DÓM S M ÁL Dómsmálaráðherra
sýndi gildandi reglum algjört
skeytingarleysi við val á dóm-
araefnum við Landsrétt sam-
kvæmt dómi Mannréttindadóm-
stóls Evrópu.
Ofan á brot ráðherra kom svo
hin gallaða málsmeðferð á Alþingi
og brot á þeirri málsmeðferð sem
löggjafinn setti sjálfur upp til að
sporna við áhrifum framkvæmd-
arvaldsins og f lokkspólitískum
áhrifum á skipan dómsvaldsins.
Brot ráðherra við meðferð máls-
ins og alvarlegir gallar á máls-
meðferð Alþingis brutu í bága við
kjarna þeirrar grunnreglu réttarrík-
isins að skipan dómstóla sé ákveðin
með lögum. Hinir alvarlegu gallar
á málsmeðferðinni voru að mati
dómsins til þess fallnir að skaða
það traust sem dómstólar í lýð-
ræðislegu samfélagi þurfa að njóta
meðal almennra borgara.
Hæstiréttur er líka gagnrýndur
í dóminum fyrir niðurstöðu sína
í máli kærandans. Þar sem skipun
dómsins var ekki í samræmi við
lög hafi brot gegn 6. gr. um rétt-
láta málsmeðferð legið fyrir og
því óþarft að leggja mat á hvort
kærandinn hafi fengið réttláta
málsmeðferð, þrátt fyrir galla á
málsmeðferðinni. Það brást hjá
Hæstirétti við meðferð málsins að
mati MDE. – aá / sjá síðu 6
Skellur frá Strassborg
Allar greinar ríkis-
valdsins fá bágt fyrir
aðdraganda og eftirmál
skipunar dómara við
Landsrétt í dómi Mann-
réttindadómstóls Evr-
ópu. Brotið gegn kjarna
grundvallarreglna
réttarríkisins. Í húfi er
trúnaðartraust borgara
á dómstólum í lýðræðis-
legu samfélagi.
BRETLAND Bretland Samningur
ríkisstjórnar Theresu May, breska
forsætisráðherrans, við ESB um
útgöngu Breta úr sambandinu var
felldur öðru sinni á breska þing-
inu í gærkvöldi. Alls greiddi 391
atkvæði gegn samningnum en 242
með.
Fyrir um tveimur mánuðum
felldi þingið samninginn með 230
atkvæða mun. Eftir að hafa átt í
viðræðum við ESB í millitíðinni
náði May vissulega að sannfæra
tugi þingmanna. Komst þó hvergi
nærri því að sannfæra nógu marga.
Íhaldsf lokkurinn var sem fyrr
klofinn í málinu. Þá greiddi Lýð-
ræðislegi sambandsf lokkurinn,
sem ver minnihlutastjórn Íhalds-
f lokksins vantrausti, atkvæði gegn
samningnum á ný.
Eftir að niðurstöður lágu fyrir
tók May til máls og sagði að rétt
eins og hún hefði lofað f yrir
tveimur vikum myndi fara fram
umræða og atkvæðagreiðsla um
að yfirgefa ESB án samnings í dag.
Afstaða ríkis stjórnarinnar væri
sú að samningslaus útganga væri
sjálfgefin nema þingið samþykki
samning.
Ef breska þingið samþykkir
samningslausa útgöngu í dag
verður það formlega
að stef nu bresk a
ríkisins, samkvæmt
því sem May sagði
í gær. Ef ekki munu
þi ng men n g reiða
a t k v æ ð i á
fimmtudag um
að hef ja við-
ræður við ESB
um að fresta
útgöng udeg i,
29. mars, að
öllu óbreyttu.
– þea
Samningur
felldur á ný
LÍFIÐ „Ég verð fimmtug eftir mánuð
og fyrir ári síðan ákvað ég að ná
þremur markmiðum fyrir afmælið.
Í fyrsta lagi ætlaði ég að safna hári.
Það hefur tekist. Ég ætlaði líka að
koma mér í form og það gengur
ágætlega,“ segir Guðfinna Jóhanna
Guðmundsdóttir, lögmaður og fyrr-
verandi borgarfulltrúi.
Guðfinna ætlar að léttast um tíu
kíló fyrir fimmtugt. Þegar mán-
uður er til stefnu er
hún viss um að tak-
markið náist. Með
ketó-lífsstílnum.
„Þetta er svo mikil
fita sem ég borða,
aðallega lax,
ost a r, eg g,
majónes og
rjóma.“ – þþ
/ sjá síðu 22
Safnar hári og
tapar kílóum
MARKAÐURINN Líftæknifyrirtækið
Alvotech hefur nú hafið klínískar
rannsóknir á sínu fyrsta lyfi. Um
er að ræða líftæknilyfshliðstæðu
lyfsins Humira sem er í dag sölu-
hæsta lyf heims og selst fyrir um
20 milljarða Bandaríkjadala á ári,
jafnvirði 2.400 milljarða íslenskra
króna.
Róbert Wessman, stofnandi og
stjórnarformaður Alvotech, segir
það stóran áfanga fyrir fyrirtækið
að hefja klínískar rannsóknir.
– hae / sjá Markaðinn
Fyrsta lyfið hjá
Alvotech er nú
til rannsóknar
1 6 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
6
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:2
5
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
9
2
-9
F
8
0
2
2
9
2
-9
E
4
4
2
2
9
2
-9
D
0
8
2
2
9
2
-9
B
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
8
s
_
1
5
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K