Fréttablaðið - 16.03.2019, Side 40
hafa líka komist á snoðir um ágæti
Feel Iceland-húðvaranna.
„Á stelpukvöldi með vinkonum
mínum úr leikarahópnum settum
við á okkur Feel Iceland-maska og
þær voru upprifnar af árangr-
inum enda húð þeirra geislandi
og fersk á eftir. Karlleikararnir
eiga enn eftir að upplifa Feel
Iceland en ég er viss um
að þeir tækju fagnandi að
prófa jafn einstaka, hreina
og rammíslenska nátt-
úruafurð á hörund sitt,“
segir Ragga.
Lífsmottó að brosa
Röggu er annt um
heilsu sína og útlit.
„Ég fer í ræktina á
hverjum degi, drekk
nóg af vatni og reyni að
ná sem bestum nætur-
svefni, en tökudagar
á Vikings eru langir
og ég hef varla tíma í
annað en örfáar maga-
æfingar og armbeygjur á stofu-
gólfinu,“ segir Ragga sem hefur
notið þess að vera heima á Íslandi
undanfarið.
„Ég er þakklát fyrir að geta verið
aðeins meira heima og ætla að
njóta tímans með syni mínum
eins og ég get áður en næstu tarnir
taka við. Það er margt spennandi
á döfinni en því miður má ekki
ljóstra því upp enn sem komið
er,“ segir Ragga sem eftir leik sinn
í Vikings er orðin þekkt andlit
víða um heim og með mikið fylgi á
Instagram.
„Mitt lífsmottó er að brosa.
Ef maður er glaður og fæst við
það sem drífur mann áfram er
hamingjan vís. Ég reyni alltaf að
vera jákvæð og jákvæðnin hefur
nýst mér best í afreks íþróttum
og leiklistinni. Maður ætti líka
að vera glaður með að gera
hluti sem maður sjálfur ákvað
að gera,“ segir Ragga sem
keppir enn í sundi sér til
gamans.
„Maður þarf að njóta
þess sem maður fæst við,
hafa úthald og gefast ekki
upp. Það fer enginn á
Ólympíuleika á einni
nóttu né fær hlutverk í
stærstu sjónvarpsþátt-
um heims. Allt tekur
tíma og númer eitt að
hafa gaman af. Hefði
mér ekki þótt gaman
að synda hefði ég
aldrei farið á Ólympíu-
leikana og hefði ég
ekki haft gaman af
undirbúningsferli Vikings hefði
ég aldrei fengið hlutverkið,“ segir
Ragga sem er meðvituð um að vera
góð fyrirmynd.
„Ég hef alltaf reynt að sýna ungu
fólki gott fordæmi, sérstaklega
stelpum. Með því að kenna þeim
að vera sjálfum sér samkvæmar,
trúar sjálfum sér og gera hlutina
fyrir sig en ekki aðra. Ég vil líka
hvetja fólk til að vera glatt og kátt
í lífinu og gott við allt og alla;
jörðina, dýr og menn. Að hafa
jákvætt viðhorf til lífsins gerir allt
auðveldara.“
að bera á mig serum finn ég að
eitthvað vantar,“ segir Ragga sem
undanfarið hefur tekið til í snyrti-
vöruskúffunni og
lesið innihalds-
lýsingar á hinum
ýmsu húð-, hár- og
snyrtivörum.
„Það er ótrúlegt
hversu mikið er af
aukefnum í húð- og
hárvörum og nú
legg ég mig fram
um að velja hreinar
og eiturefnalausar
vörur. Feel Iceland-
vörurnar eru því frá-
bær kostur og þær
hafa einnig áhrif á
almenna vellíðan.
Því mæli ég hiklaust
með þeim fyrir
alla sem vilja hugsa
vel um heilsuna og
öðlast heilbrigða og
fallega húð, hár og
neglur.“
Berst eins og
Gunnhildur
Ragga er margfaldur
Íslandsmeistari í
sundi og keppti með
landsliði Íslands á
Ólympíuleikunum
í Aþenu 2004 og í
Peking 2008.
„Ég hef alla ævi
verið í sundi en var
staðráðin í að verða
leikkona þegar sundferlinum
lauk,“ segir Ragga sem fór í leik-
listarnám til Los Angeles þegar
sonur hennar var ársgamall.
„Þar sá ég sjónvarpsþættina Vik-
ings í fyrsta sinn og ákvað undir
eins að verða mér úti um hlutverk í
þeim. Fólk hló að mér þá, rétt eins
og það hló að mér
þegar ég sagðist ætla
á Ólympíuleikana,
en ég hef alltaf
haldið mínu striki
og sé svo sannarlega
ekki eftir því að láta
engan draga úr þrótti
mínum við að elta
drauma mína,“ segir
Ragga sem í Vikings
leikur víkinga-
kvendið Gunnhildi,
en margverðlaunuð
þáttaröðin byggir
á Íslendingasög-
unum og víkingnum
Ragnari loðbrók.
Ragga segist eiga
margt sameiginlegt
með sögupersón-
unni Gunnhildi.
„Við erum báðar
sterkar, ákveðnar og
þrjóskar, og mikið er
gert úr hæð Gunn-
hildar í þáttunum
en sjálf er ég 188
sentimetrar á hæð.
Gunnhildur er mikil
bardagakona og mér
finnst ég líka hafa
það innra með mér.
Ég slæst ekki við fólk,
en ég berst eins og
ljón við markmið
mín og það sem ég
ætla mér; æfði til dæmis látlaust
til að komast á Ólympíuleikana,
rétt eins og Gunnhildur gerir til að
vinna sínar orrustur.“
Meðleikarar Röggu í Vikings
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveig@frettabladid.is s. 550 5762 | Elín Albertsdóttir, elin@
frettabladid.is, s. 550 5761 | Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@frettabladid.is, s. 550 5765 | Starri Freyr
Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 550 5763 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Mér finnst skipta öllu að bjóða sjálfri mér upp á hreinar, íslenskar húð-
vörur. Þess vegna elska ég Feel
Iceland. Þá veit ég fyrir víst að ég
tek inn af bragðs næringu sem gerir
mér gott og ég treysti náttúru-
legum og virkum innihaldsefnum
þeirra vel fyrir húð minni,“ segir
leikkonan og sunddrottningin
Ragga Ragnars.
Ragga kynntist Feel Iceland-
húðvörunum fyrst þegar hún tók
að sér stórt hlutverk í sjónvarps-
þáttunum Vikings sem slegið hafa
í gegn um allan heim.
„Þá byrjaði ég að nota kollagen
sem hreinlega bjargaði húðinni
sem varð fljótt undir miklu álagi
við tökur á Vikings og frábær
árangurinn leyndi sér ekki,“ segir
Ragga sem notar nú daglega Feel
Iceland-kollagen í duftformi og ber
Feel Iceland-serum á andlit sitt.
„Ég set svolítið djús í krukku
ásamt tveimur matskeiðum af
kollagen-dufti og hristi vel. Þetta
drekk ég á hverjum degi og oftast
með hádegismatnum, en serum
ber ég á mig kvölds og morgna.
Eftir að hafa borið á mig serum
að morgni leyfi ég því að vera á
húðinni í tíu mínútur áður en ég
set á mig farða, en vanalega er ég
ómáluð ef ég þarf ekki í vinnu, á
fundi eða annað. Mér finnst bara
best að setja á mig serum og leyfa
því að vera yfir daginn,“ segir
Ragga sem notar maska frá Feel
Iceland eitt kvöld í viku.
„Maskinn er svona trít af og til.
Ég finn mikinn mun um leið og ég
er búin að setja hann á mig. Húðin
verður ótrúlega fersk.“
Laus við rósroðann
Eftir að hafa eignast son árið 2013
varð húð Röggu hrjúfari og í kulda
varð vart við rósroða á kinnum
hennar.
„Húðin hefur verið misslæm
síðustu ár og ég hef af og til fengið
bólur, þurrk og roða en þar hafa
vörurnar frá Feel Iceland gert
gæfumuninn. Húðin er slétt og fín
áferðar og roðinn hefur minnkað
mikið. Það hvarflar því ekki að
mér að hætta,“ segir Ragga alsæl
með árangurinn.
„Húðin er betri en hún hefur
verið í langan tíma og það leynir
sér ekki hvað Feel Iceland gerir
henni gott. Ég hef alltaf átt erfitt
með að halda húðinni góðri yfir
vetrartímann og finn stóran
mun á því hversu góð hún er nú í
kuldanum,“ segir Ragga sem hefur
nú notað vörurnar frá Feel Iceland
í tvö ár og finnur einnig mikinn
mun á hári og nöglum.
„Eftir langan sundferil og dag-
legar æfingar í klórvatni voru
neglur mínar orðnar linar og
mjúkar en með kollageni urðu
þær aftur sterkar og fallegar. Ég
set serum líka á axlir og hnén ef
ég fæ þurrkubletti. Ég finn auk
þess mikinn mun í liðum eftir að
ég fór að taka inn kollagen frá Feel
Iceland, þótt ég hafi aldrei verið
sérstaklega stirð. Ég varð bara létt-
ari á mér og þarf nú ekki að teygja
eins lengi og áður.“
Treystir á íslenska náttúru
Þegar kemur að hreysti og fegurð
treystir Ragga meðal annars á nátt-
úrulegar húðvörur Feel Iceland.
„Ég er rosalega hrifin af því að
nota allar vörurnar saman. Mér
hefur alltaf reynst auðvelt að muna
að taka inn lýsi og vítamín, og
eins og með kollagenduftið sem ég
gleymi aldrei í dagsins önn. Hins
vegar á ég stundum til að gleyma
húðrútínunni á kvöldin en ég
tek alltaf af mér allan farða fyrir
svefninn. Ég mæli því eindregið
með því að nota allar vörurnar
saman en þá daga sem ég gleymi
Framhald af forsíðu ➛
Ragga drekkur
kollagen-duft út
í djús á hverjum
degi og segir
árangurinn ekki
láta á sér standa
enda veiti Feel
Iceland-vör-
urnar almenna
vellíðan, ljóma
og fegurð.
MYND/RUT
SIGURÐARDÓTTIR
Á vinstri myndinni má sjá rósroða í kinnum Röggu og til hægri hvernig húðin lítur út í dag.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . M A R S 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
1
6
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:2
5
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
9
3
-0
7
3
0
2
2
9
3
-0
5
F
4
2
2
9
3
-0
4
B
8
2
2
9
3
-0
3
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
8
s
_
1
5
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K