Fréttablaðið - 16.03.2019, Side 44
Tvær leirlistakonur, þær Kolbrún Sigurðardóttir og María Kristín Óskarsdóttir,
opnuðu Leirbakaríið í desember
síðastliðnum. „Við tókum á leigu
bakarí á Suðurgötunni og þar sem
við höldum áfram að baka, bara
við aðeins hærra hitastig, lá nafnið
beint við,“ segir Kolbrún.
Í Leirbakaríinu eru listakon-
urnar með vinnustofu og gallerí.
Auk þess er þar námskeiðsaðstaða
þar sem hópar geta komið, skemmt
sér og lært.
Ný sýning, Spáðu í bolla, verður
opnuð á Írskum vetrardögum nú
um helgina. „Við erum báðar að
einbeita okkur að bollum þessa
dagana. Bollar eru eins og mann-
eskjur. Þeir eru ólíkir í lagi og
áferð, háir og lágir, grófir og fínir.
Ef þú leggur ólíka bolla á borð er
gaman að sjá hver tekur hvaða
bolla. Við verðum því á þessari
sýningu ekki með spádóma í bolla
heldur leyfum við fólki að spá í
bollunum sjálfum,“ útskýrir Kol-
brún. Allir bollarnir eru úr smiðju
listakvennanna tveggja. „Bollarnir
eru af öllum stærðum og gerðum
en við erum að prófa okkur áfram
með ólíkar leirgerðir, meðal ann-
ars með leir héðan af Vesturlandi,“
segir Kolbrún en sýningin stendur
til 30. mars.
Írskir vetrardagar
Írskir vetrardagar fara fram á
Akranesi um helgina. Dagskráin
er fjölbreytt og stemningin verður
vafalaust skemmtileg. Meðal þess
sem boðið verður upp á eru tón-
leikar á bókasafni bæjarins en þar
verður einnig hægt að sjá sýningu
á verkum nemenda í listgreinum í
Brekkubæjarskóla. Á sunnudaginn
17. mars, á degi heilags Patreks,
verður Kallabakarí með bakkelsi
í írsku fánalitunum. Þá verður
fjölskyldutími á Smiðjuloftinu
og skylmingafélagið Væringjar
sýnir sverðfimi og leyfir öðrum að
spreyta sig. Landsmót barna- og
unglingakóra verður síðan í sal
Grundarskóla en von er á 250 þátt-
takendum.
Nánari upplýsingar um dagskrá
írskra vetrardaga er að finna á
www.skagalif.is
Spáð í bolla á Írskum dögum
Írskir vetrardagar verða haldnir á Akranesi um helgina. Dagskráin er fjölbreytt en meðal annars
verður opnuð sýningin Spáðu í bolla í Leirbakaríinu á Suðurgötu þar sem kennir ýmissa grasa.
Leirlistakonurnar Kolbrún Sigurðardóttir og María Kristín Óskarsdóttir
opnuðu Leirbakaríið á Akranesi í desember síðastliðnum.
Sólveig
Gísladóttir
solveig@frettabladid.is
Bollar eru eins og manneskjur, segja listakonurnar sem eru með sýninguna á Írskum dögum.
Sýningin á bollunum stendur til 30. mars.
Bollarnir eru misjafnir að lit og lögun.
Hvernig ætli sé að spá í þessa bolla? Kannski viljið þið prófa. Frábærir bollar til að hengja upp eins og hvert annað veggskraut.
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins
Sími 550 5078 / serblod@frettabladid.is
BRÚÐKAUPSBLAÐ
Veglegt sérblað Fréttablaðsins
um brúðkaup kemur út 22. mars nk.
Allt sem hugsast getur varðandi brúðkaup.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna da blaði landsins.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . M A R S 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
1
6
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:2
5
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
9
2
-E
E
8
0
2
2
9
2
-E
D
4
4
2
2
9
2
-E
C
0
8
2
2
9
2
-E
A
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
8
s
_
1
5
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K