Fréttablaðið - 16.03.2019, Blaðsíða 48
Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík / 558 8000 / korta@korta.is / korta.is
KORTA er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í greiðslumiðlun og -lausnum.
Við bjóðum upp á færsluhirðingu fyrir söluaðila á Íslandi og í öðrum ríkjum Evrópu
ásamt því að sinna alhliða greiðsluþjónustu fyrir söluaðila. Þar á meðal eru snertilaus og
hefðbundin posaviðskipti, tengingar við kassakerfi, boðgreiðslur og aðrar áskriftarlausnir,
sem og tengingar við vefsíður. KORTA starfar á grundvelli leyfis frá Fjármálaeftirlitinu sem
greiðslustofnun og er fullgildur aðili að Visa og Mastercard.
Um er að ræða fullt starf. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Umsókn skal
fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknar
og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
VIÐSKIPTASTJÓRI
KORTA LEITAR EFTIR KRAFTMIKLUM
OG DRÍFANDI VIÐSKIPTASTJÓRA
Menntunar- og hæfniskröfur
››› Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur
››› Reynsla af markaðsstarfi og sölu æskileg
››› Reynsla af störfum í færsluhirðingu eða
á fjármálamarkaði æskileg
››› Þjónustulund, frumkvæði, drifkraftur
og jákvæðni
››› Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum
››› Greiningarhæfni og tölvulæsi
››› Gott vald á íslensku og ensku
Starfssvið
››› Markaðssetning og sala á færsluhirðingu
››› Þjónusta og samskipti við viðskiptavini
››› Viðskiptaþróun og greining vaxtatækifæra
Nánari upplýsingar veitir Garðar Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri viðskiptasviðs KORTA hjá gst@korta.is
Umsóknarfrestur er til og með 25. mars 2019.
Umsóknir sendast á netfangið vidskiptastjori@korta.is
Stöðvarstjóri (Bakki í Ölfusi)
Laxar Fiskeldi ehf. er fyrirtæki sem
stundar laxeldi á Íslandi. Fyrirtækið er að
meirihluta í eigu Måsøval Eiendom, sem
er norskt fjölskyldufyrirtæki sem hefur
45 ára reynslu af laxeldi.
Fyrirtækið rekur tvær seiðaeldisstöðvar
að Bakka og Fiskalóni í Ölfusi auk
þess sem landstöð er starfrækt í
Þorlákshöfn. Auk þess eru Laxar Fiskeldi
með sjókvíaeldi í Reyðarfirði þar sem
fyrirtækið hefur leyfi til að framleiða
allt að 9.000 tonn af laxi í sjókvíum
á þremur stöðum en fyrirhuguð
framleiðsla félagsins á Austfjörðum til
lengri tíma litið mun nema um 25.000
tonnum.
Nánari upplýsingar veita Þórður S. Óskarsson (thordur@intellecta.is) og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma
512 1225 og einnig Jóhannes Sigurðsson framleiðslustjóri seiðaeldis í síma 837-5750. Umsóknarfrestur er til og með 1. apríl
2019. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf, þar sem
gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi í starfið.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Reynsla af fiskeldi. Reynsla af seiðaeldi
er kostur
• Menntun sem nýtist í starfi, helst í
fiskeldisfræðum
• Stjórnunarreynsla er æskileg
• Frumkvæði og drifkraftur
• Skipulags- og samskiptahæfni
Helstu viðfangsefni:
• Ber ábyrgð á tæknilegum og daglegum rekstri
stöðvarinnar
• Tryggir líffræðilegan grundvöll og fiskivelferð
stöðvarinnar
• Skipuleggur og fylgir eftir eldisverkefnum og
viðhaldi
• Tryggir innra eftirlit, gæða-, öryggis- og
umhverfisstjórnun stöðvarinnar
• Ber ábyrgð á eldisrekstri og árangri
• Starfsmannahald og þjálfun starfsmanna
• Skýrslugerð og skráningar
Laxar Fiskeldi óskar eftir að ráða stöðvarstjóra á Bakka í Ölfusi. Leitað er að skipulögðum og
úrræðagóðum einstaklingi sem gerir skýrar væntingar til starfsmanna sinna, byggir upp traust og fær
þá með sér. Æskilegt er að viðkomandi búi í innan við 15 mínútna fjarlægð frá stöðinni og geti hafið
störf sem fyrst. Starfsemi stöðvarinnar er á vöktum.
Intellecta - Síðumúli 5, 108 Reykjavík, sími: 511 1225.
Nánari upplýsingar um fyrirtækið
má finna á www.laxar.is
1
6
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:2
5
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
9
2
-C
7
0
0
2
2
9
2
-C
5
C
4
2
2
9
2
-C
4
8
8
2
2
9
2
-C
3
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
8
s
_
1
5
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K