Fréttablaðið - 16.03.2019, Side 102

Fréttablaðið - 16.03.2019, Side 102
Sko, gítar er ekki sama og gítar og það er hægt að fá góðan gítar á 20 þúsund krónur og nánast upp úr. Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Guðmundur Baldvinsson, umsjón útfara Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Vesturhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, Ásbjörn Eggertsson Höfnum, síðast til heimilis að Miðgarði 5, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mánudaginn 11. mars. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Samtök lungnasjúklinga. Fjölskyldan vill koma á framfæri sérstökum þökkum til Ólafs Baldurssonar og Þorbjargar Sóleyjar Ingadóttur, Landspítala, fyrir einstaka umönnun og vinskap. Útförin mun fara fram í kyrrþey. Jenný Karitas Ingadóttir Sigríður Ásta Ásbjarnardóttir Edward Morthens Guðný Sóley Ásbjarnardóttir Ingi Eggert Ásbjarnarson Anna Tabaszewska Ásbjörn og Auður Morthens Okkar ástkæri Jón Þór Ágústsson Ásholti 1, Mosfellsbæ, lést á heimili sínu 7. mars síðastliðinn. Útför hans fer fram frá Vídalínskirkju miðvikudaginn 20. mars klukkan 13.00. Jóhanna Gunnarsdóttir Sigrún Stella Ingvarsdóttir Kristjana Sif Jónsdóttir Røyseth Ingvar Jónsson Mathisen barnabarn og aðrir ástvinir. Elskuleg dóttir mín, móðir, tengdamóðir, amma, systir og mágkona og frænka, Guðbjörg Ragnarsdóttir Conner Fort Lauderdale, USA, lést á sjúkrahúsi í Fort Lauderdale þann 10. mars síðastliðinn. Ingibjörg Þorgrímsdóttir James D. Conner Susan Lopez Nathan Conner Anthony Ragnar Conner Hagerup Isaksen Guðríður Benediktsdóttir Guðríður H. Haraldsdóttir Steinþór Haraldsson Þorgrímur Isaksen Kristín Gústafsdóttir Margrét Haraldsdóttir Ágúst H. Sigurðsson Harald Isaksen Jónína S. Pálmadóttir Jóhanna Stefanía Einarsdóttir 597 f.Kr. Babýloníumenn hertaka Jerúsalem. 1315 Bein Guðmundar góða tekin upp og Gvendardagur gerður messudagur á Íslandi. 1521 Ferdinand Magellan kemur til Filippseyja. 1621 Indíáninn Samoset kemur í tjaldbúðirnar í Plymouth-nýlend- unni og heilsar fólkinu á ensku, því til mikillar furðu. 1769 Franski landkönnuðurinn Louis Antoine de Bougainville lýkur þriggja ára hnattsiglingu. Í föruneyti hans er Jeanne Baré, fyrsta konan sem vitað er til að hafi siglt umhverfis hnöttinn. 1792 Gústaf 3. Svíakonungur særður til ólífis á grímuballi í óper- unni. Hann dó þann 29. mars. 1852 Tólf menn drukkna þegar skipi hvolfir í Höfnum. 1867 Joseph Lister birtir grein í The Lancet þar sem í fyrsta sinn er lýst skurðaðgerðum við dauðhreinsaðar aðstæður. 1942 Fyrsta V-2-flugskeytinu skotið í tilraunaskyni í Þýskalandi. Það sprakk í flugtaki. 1976 Harold Wilson segir af sér embætti forsætisráðherra Bret- lands. 1978 Olíuskipið Amoco Cadiz steytirá skerjum í Ermarsundi og brotnar í tvennt með þeim afleiðingum að úr varð eitt alvarlegasta umhverfisslys sögunnar. 1980 Fjórða hrina Kröfluelda hefst. Þetta gos var kallað skrautgos þar sem það stóð stutt en þótti fallegt. 1982 Claus von Bülow dæmdur fyrir tilraun til að myrða eiginkonu sína í Bandaríkjunum. Kassagítarinn er alltaf vinsælastur. Það er bara þannig,“ segir Anton Benedikt Kröyer sem fagnar 30 ára afmæli verslunar sinnar, Gítars- ins, í ár. Verslunin var stofnuð árið 1989 og var til húsa að Laugavegi 45 allt til ársins 2001 þegar Anton fór upp á Stór- höfða þar sem hann hefur unað sínum hag í 18 ár. „Þegar ég byrjaði á Laugaveginum þá var það svipað og að eiga hænu sem verpti gulleggjum. Þá var engin Kringla og engin Smáralind. Verslunin var á Laugaveginum. Svo kom pöbbamenn- ingin og þeir spruttu upp eins og gorkúl- ur. Þegar ein verslun hvarf á braut kom pöbb í staðinn. Svona gekk það koll af kolli og ég færði mig hingað.“ Verslunin er stórglæsileg og er, eins og nafnið gefur til kynna, með gífurlegt úrval af gítörum en í versluninni eru um 200 gítarar og bassar uppstilltir sem og magnarar og fylgihlutir. „Ég er í góðu rými og stækk- aði smátt og smátt. Sko, gítar er ekki sama og gítar og það er hægt að fá góðan gítar á 20 þúsund krónur og nánast upp úr. Masters-línan hjá Tanglewood, sem eru of boðslega vandaðir gítarar frá Bretlandi, kostar nokkur hundruð þúsund.“ Anton segir að hann hafi snemma fengið tónlistarbakteríuna og bendir á að það sé miklu meiri afslöppun að spila lag á gítar en að vera í tölvunni. „Við vorum alltaf inni í skúr hjá pabba í gamla daga að hlusta á plötur með Bítl- unum og horfa á kanasjónvarpið og stundum að hlusta á kanaútvarpið. Það var mikið um að strákar væru að spila saman á þessum tíma í Kópavoginum og ég er farinn að spila á gítar aðeins 11 ára. Um 17 ára var ég kominn í hljómsveit- ina Eilífð með Herbert Guðmundssyni og við spiluðum í Tónabæ. Svo var ég í nokkrum hljómsveitum og er enn að.“ Aðspurður um næstu 30 ár segir Anton að þau verði vonandi jafn blóm- leg og skemmtileg og fyrri ár. benediktboas@frettabladid.is Meiri afslöppun að spila lag en að sitja í tölvunni Gítarinn ehf. er 30 ára um þessar mundir. Anton Benedikt Kröyer segir að kassagítar- inn hafi alltaf verið vinsælastur en hann býður upp á nánast allt sem tengist gítörum. Í upphafi var verslunarrekstur Gítarsins „eins og að eiga hænu sem verpti gulleggjum.” Þarna er Anton kóngurinn í ríki sínu, innan um alla gítarana sem eru fjölmargir í búðinni hans á Stórhöfða. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Merkisatburðir 1 6 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R34 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT 1 6 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :2 5 F B 1 2 8 s _ P 1 0 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 9 2 -A E 5 0 2 2 9 2 -A D 1 4 2 2 9 2 -A B D 8 2 2 9 2 -A A 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 1 2 8 s _ 1 5 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.