Fréttablaðið - 23.03.2019, Page 46

Fréttablaðið - 23.03.2019, Page 46
Fyrir börn og fullorðna „Við ákváðum að hafa nammibar af því að við buðum mörgum krökkum í veisluna og vorum viss um að hann myndi slá í gegn hjá þeim. Það kom okkur síðan skemmtilega á óvart hvað hann var vinsæll hjá full- orðna fólkinu líka. Ég er að fara ferma aftur í ár og strákurinn minn vill hafa nammibar eins og bróðir hans hafði. Í nammibarinn valdi ég nammi sem var í þemalit- unum, Oreo kex, svartar og hvítar hjúp-kúlur, svart og hvítt m&m, litla sykurpúða, karamellupopp og venju- legt popp.“ Bylgja Dögg Rúnarsdóttir Bland í poka Nammibarir hafa notið mikilla vinsælda í fermingar- veislum síðustu ár. Útfærslurnar eru æði misjafnar en sælgætið mælist þó ávallt vel fyrir hjá veislugestum. Bleikt, gyllt og hvítt „Fermingarbarnið dreymdi um að fá að hafa nammi- bar en hún hafði miklar skoðanir á veislunni. Mörg börn voru á gestalistanum og því fannst okkur snið- ugt að bjóða upp á sælgæti eftir matinn. Litaþemað var bleikt, gyllt og hvítt og hugmyndin var að velja nammi í þeim litum en aðalmálið var samt að velja nammi sem okkur þótti gott. Við vorum með þrjár tegundir af poppi, venjulegt, osta- og turkish pepper lakkríspopp. Við vorum með bingókúlur og dökkt Nóa Kropp, bleikt Smarties, Oreo kex sem er í uppá- haldi hjá fermingarbarninu, bleikar Lindor kúlur, bleikar ávaxtakaramellur í bréfi, bleika snjóbolta, og röndótt marglitt hlaupnammi. Nammið keyptum við hér og þar vikurnar fyrir ferminguna. Nammibarinn var gríðarlega vinsæll, sérstaklega hjá börnunum en líka hjá þeim fullorðnu sem margir fóru heim með nammi í boxi.“ Kristín Björg Jónsdóttir Popp og kók „Við buðum upp á hlaup, lakkrís, popp og kók í dós. Ég hafði séð myndir af nammibörum í veislum á netinu og fannst þetta sniðugt enda vakti barinn mikla lukku meðal barna og fullorðinna. Við keyptum nammið í Costco, Stór- kaup og svo bara í búðinni hér hjá okkur, Kjörbúðinni í Grundarfirði. Litaþema var svart og hvítt. Það var líka kvikmyndaþema og við skreyttum t.d. með Star Wars dóti og skreyttum kransakökuna með Lego Star Wars körlum. Krukk- urnar undir nammið keyptum við í IKEA og pöntuðum pappírspoka á Aliexpress.“ Bryndís Guðmundsdóttir Eitthvað fyrir alla „Fermingarbarnið vildi hafa nammibar og hún valdi sinn uppáhaldsbrjóstsykur, svo vorum við með súkkulaðihnappa frá Nóa Síríusi, Appolo lakkrís, Dumle karamellur, Marianne brjóstsykur, sleikjó, jelly beans og súkkulaðipeninga. Við áttum krukkur og fengum líka lánaðar, pöntuð- um pappabox frá Bandaríkjunum til að setja nammið í. Okkur vantaði eitthvert ílát undir kortin og fengum því lánaða bleika tösku. Hún var líka til stærri, í stíl, og þess vegna settum við nammibarinn í hana. Nammi barinn vakti mikla lukku fyrir allan aldur, því í honum var eitthvað fyrir alla.“ Klara Ægisdóttir Hugmyndir af Pinterest Hrönn Bjarnadóttir bauð upp á nammibar í brúðkaupinu sínu en auðvelt er að yfirfæra hugmynd- irnar á fermingarveislu. „Ég vil ekki vita hvað ég eyddi mörgum klukkutímum á Pinter- est að skoða alls konar útfærslur af nammibar. Eftir marga mánuði datt ég niður á myndir af nammi- bar sem mér fannst ótrúlega fallegur og ákvað að nota hann sem fyrirmynd. Þemað í brúð- kaupinu var mest gull, glimmer og kampavínslitað, og mig langaði að hafa bæði skreytingar og nammi í þessu litaþema. Ég bjó sjálf til cakepops og skreytti á fjóra mismunandi vegu. Poppið setti ég í glæra poka sem ég keypti á Aliexpress og batt fyrir pokann með gylltum silkiborða. Ég fékk glazed donuts hjá Krispy Kreme og stráði yfir þá gylltu matar-glimmeri til að gera þá meira gyllta. Ég keypti gylltar karamellukúlur og gyllta Hershey’s kossa í Ameríku. Gylltu Lindt kúlurnar keypti ég í heildsölunni Karl K. Karlsson á Nýbýlavegi og Haribo gúmmí- bangsana í litlu pokunum keypti ég á Amazon.com. Hrönn Bjarnadóttir Á nammibarnum var boðið upp á: Heimabakaða cakepops, 4 tegundir Ástríkt popp í litlum glærum pokum með borða Krispy Kreme kleinuhringi með gullglimmeri Gylltar karamellukúlur Hershey’s gullkossa Gylltar Lindt kúlur Hvíta snjóbolta frá Kólus Haribo gúmmíbangsa í litlum gylltum pokum 10 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . M A R S 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RFERMINGARGJAFIR 2 3 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :4 6 F B 1 2 8 s _ P 0 9 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 8 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 A 1 -3 5 7 C 2 2 A 1 -3 4 4 0 2 2 A 1 -3 3 0 4 2 2 A 1 -3 1 C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 1 2 8 s _ 2 2 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.