Fréttablaðið - 23.03.2019, Page 67

Fréttablaðið - 23.03.2019, Page 67
ÓSKAST TIL LEIGU Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins óskar eftir að taka á leigu um 400 m² húsnæði fyrir Vínbúð á Akranesi. Húsnæðið mun skiptast að u.þ.b. 2/3 hlutum í verslunarsvæði og 1/3 hluta í lager og starfsmannaaðstöðu. Húsnæðið þarf að fullnægja eftirfarandi kröfum: 1. Vera á skilgreindu verslunarsvæði. 2. Liggja vel við almenningssamgöngum 3. Umferð að og frá húsnæðinu skal vera greið. 4. Húsnæðið skal vera á jarðhæð. 5. Húsnæði bjóði upp á að vöruhurð opnist beint út á bak- eða hliðarsvæði. 6. Góð aðkoma sé að húsnæðinu fyrir viðskiptavini og næg bílastæði (a.m.k.20 bílastæði sem eru ætluð Vínbúðinni eða sérmerkt Vínbúðinni). 7. Lögð er áhersla á gott aðgengi af bílaplani fyrir hreyfihamlaða og jafnframt þurfa að vera bílastæði fyrir starfsfólk. 8. Aðkoma að húsnæðinu fyrir flutningabíla með vörur skal vera góð. 9. Verslunarrýmið sé sem næst rétthyrnt (hlutföll rýmisins nálægt 3 á móti 2) og mega súlur, veggir eða annað ekki hamla yfirsýn um verslunarhluta húsnæðisins. 10. Húsnæðið verður að fullnægja öllum kröfum sem opin- berar eftirlitsstofnanir og umsagnaraðilar gera til slíks og vera samþykkt af þeim. Leigutími húsnæðisins er 8-10 ár. Húsnæðið skal afhenda samkvæmt samkomulagi og ræðst afhendingartími nánar af ástandi þess við afhendingu. Áhugasamir skulu senda öll gögn um það húsnæði sem þeir hyggjast bjóða í lokuðu umslagi til skrifstofu Ríkiskau- pa, Borgartúni 7, 105 Reykjavík fyrir kl. 11:00, föstudaginn 5. apríl 2019 Merkt : 40413 - Leiga á húsnæði fyrir Vínbúð ÁTVR á Akranesi Gögn þurfa meðal annars að innihalda eftirfarandi: 1. Staðsetning. 2. Teikningar af húsnæði. 3. Mögulegur afhendingartími. 4. Ástand húsnæðis við afhendingu. 5. Leiguverð án vsk. og skal það innifela allan sameiginlegan kostnað. 6. Fyrirsjáanlegar breytingar sem gætu haft áhrif á kröfuliði 1- 10 að ofan á leigutímanum. 7. Kvaðir sem kunna að hafa áhrif á starfsemi Vínbúðar á svæðinu EMBASSY – HOUSING The American Embassy, is seeking to lease a house in Fossvogur, Kópavogur, Garðabær or Hafnarfjörður as soon as possible. Required size is 220 – 300 square meters, Large living room, 2 bathrooms, garage and permission to keep pets. Lease period is for minimum 3 years. Please send an e-mail to: sveinssonk@state.gov before April 10th. with information about the house and location (photos,street and house number) and phone number of the contact person showing the property. SENDIRÁÐ – HÚSNÆÐI Bandaríska Sendiráðið óskar að taka á leigu hús í Fossvog, Kópavogi, Garðabæ eða Hafnarfirði eins fljótt og auðið er. Æskileg stærð 220 – 300 fermetrar, stór stofa, 2 baðherbergi, bílskúr og leyfi til að hafa gæludýr. Leigutími lágmark 3 ár. Vinsamlegast sendið tölvupóst á: sveinssonk@state.gov fyrir 10. apríl með upplýsingum um eignina og staðsetningu (ljósmyndir,götuheiti og húsnúmer) og símanúmer þess sem sýna mundi eignina. Job.is GLÆNÝ OG FERSK STÖRF Í HVERRI VIKU Þú finnur draumastarfið á Þú ert ráðin/n! FAST Ráðningar Uppáhaldssetningin okkar hjá FAST ráðningum www.fastradningar.is Skólameistari Menntaskólans í Kópavogi Menntaskólinn í Kópavogi er opinber framhaldsskóli sem var stofnaður árið 1973. Skólinn starfar samkvæmt áfangakerfi og býður upp á nám til stúdentsprófs á bóknámsbrautum auk þess að vera miðstöð kennslu í hótel- og matvælagreinum og starfrækja ferðamála- og leiðsögunám í kvöldskóla. Starfsmenn skólans eru að jafnaði tæplega 100 og fjöldi nemenda í dagskóla eru um 900. Starfssvið Skólameistari veitir skólanum forstöðu. Hann stjórnar daglegum rekstri og starfi skólans og gætir þess að skólastarfið sé í samræmi við lög, reglugerðir, aðalnámskrá og önnur gildandi fyrirmæli á hverjum tíma. Hann ber ábyrgð á gerð fjárhagsáætlunar og að henni sé fylgt og hefur frumkvæði að gerð skólanámskrár og umbótastarfi innan skólans. Skólameistari gegnir mikilvægu hlutverki í mótun skólastarfs á grundvelli laga og aðalnámskrár framhaldsskóla og mikilvægt að umsækjendur hafi skýra framtíðarsýn hvað þetta varðar. Hæfni- og menntunarkröfur: • Skólameistari skal hafa starfsheitið framhaldsskólakennari og viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynslu á framhaldsskólastigi. • Umfangsmikil stjórnunarreynsla, leiðtoga- og samskiptahæfni. • Reynslu af stefnumótunarvinnu, hæfileiki til nýsköpunar og að stýra breytingum. • Þekking og reynsla af stjórnsýslu er mikilvæg. • Þekking af fjármálum og rekstri er nauðsynleg. Umsóknir Umsóknir með greinargerð umsækjenda um framtíðarsýn fyrir Menntaskólann í Kópavogi út frá faglegum og rekstrarlegum áherslum í skólastarfi með upplýsingum um núverandi starfsheiti um- sækjenda ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 101 Reykjavík eða á netfangið mrn@mrn.is, fyrir dagslok þriðjudaginn 30. apríl 2019. Við ráðningar í störf hjá mennta- og menningarmálaráðuneyti er tekið mið af jafnréttisáætlun ráðu- neytisins. Nöfn allra umsækjenda verða birt á vef ráðuneytisins að loknum umsóknarfresti og verða umsóknir þar sem óskað er nafnleyndar ekki teknar til greina. Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna María Urbancic rekstrarstjóri í mennta- og menningarmálaráðuneyti. Nánari upplýsingar er að finna á vef ráðuneytisins. Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2019. Mennta- og menningarmálaráðuneyti, 9. mars 2019. 2 3 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :4 6 F B 1 2 8 s _ P 0 7 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 A 1 -3 F 5 C 2 2 A 1 -3 E 2 0 2 2 A 1 -3 C E 4 2 2 A 1 -3 B A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 1 2 8 s _ 2 2 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.