Fréttablaðið - 23.03.2019, Page 90

Fréttablaðið - 23.03.2019, Page 90
Það má segja að 99% af ferðinni hafi farið í að fylgjast með syninum meðtaka allt í kringum áhuga hans á United og fótbolta yfir- höfuð. Jónatan Fjalar Vilhjálms- son Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is Foreldrum Ragnars Otta Jónat-anssonar, sem fermdist á síð-asta ári, fannst skynsamlegast að gefa honum eftirminnilega upplifun í fermingargjöf, frekar en tölvu eða álíka gjöf. Fyrir valinu varð fótboltaferð til Manchester með föður hans en þeir feðgar halda með Manchester United í enska boltanum auk þess sem fót- bolti er helsta áhugamál Ragnars. „Ég er alinn upp við enska boltann og sá fljótt að Manchester United myndi blómstra næstu áratugina,“ segir Jónatan Fjalar Vilhjálms- son, faðir Ragnars. „Sonurinn var fljótur að læra af pabba sínum og fór snemma að sýna boltanum áhuga. Svo hóf hann sjálfur að æfa með Haukum í Hafnarfirði og þegar skilningurinn á fótboltanum jókst styrktist Ragnar í trú sinni á Manchester-liðinu. Nú reynum við að horfa á alla leiki í sjónvarpinu og gleðjumst og gremjumst saman yfir gengi liðsins.“ Þegar kom að því að velja leik voru margir áhugaverðir í boði en foreldrarnir vildum hafa leikinn sem næst fermingartímanum auk þess sem United þurfti að leika gegn einu af stóru liðunum. „Því völdum við leik gegn Arsenal en United voru nýbúnir að selja leik- manninn Henrikh Mkhitaryan til Arsenal og United fékk Alexis Sanchez á sama tíma. Við vorum spenntir að sjá hvernig þeim gengi. Það var hægt að kaupa svokallaða VIP-ferð þar sem ekkert var til spar- að og það var auðveld ákvörðun að hafa samband við Fótboltaferðir og ganga frá kaupum á slíkri ferð.“ Stútfullir af eftirvæntingu Leikurinn var spilaður í lok apríl á síðasta ári og dvöldu feðg- arnir fjóra daga í London. Fyrsti dagurinn fór í að skoða Football Museum og drekka í sig sögu fótboltans, taka þátt í ýmsum þrautum tengdum fótbolta og eiga þar frábæra stund saman. „Næsti dagur var helgaður ferð á Old Trafford, heimavöll Manchester United, þar sem fermingarbarnið fékk að velja fullt af æfingafötum og vörur merktar félaginu. Við fórum í skoðunarferð um völlinn þar sem m.a. bikarasafn félagsins var skoðað og farið var stuttlega yfir sögu United. Völlurinn var galtómur, enda ekki leikdagur, og Fullkomið fótboltaævintýri í Manchester Fermingarferð Ragnars Otta Jónatanssonar á síðasta ári til Manchester var frábært ævintýri. Þar sá hann uppáhaldsliðið sitt, Manchester United, vinna Arsenal í ferð sem hann og pabbi hans gleyma seint. Ragnar Otti Jónatansson mætti vel klæddur á fyrsta leikinn í Manchester. Jónatan Fjalar ásamt Ragnari Otta á Old Trafford, degi fyrir stóra leikinn. VIP-passinn kom sér vel og feðgarnir fengu frábæra þjónustu. Skartgripur með táknræna merkingu, seldur til styrktar blindum og sjónskertum á Íslandi. Íslenskt handverk. Fæst um land allt. Þríkrossinn Stuðningur til sjálfstæðis það var magnað að setjast í stjórastólinn við varamannaað- stöðu United og ímynda sér að við værum leikmenn United. Það voru því afar glaðir feðgar sem fóru að sofa þetta kvöld, stútfullir af eftir- væntingu.“ Mikil fagnaðarlæti Loks rann langþráður leikdagur upp og feðgarnir héldu með rútu að leikvangi félagsins. „Þar sem við vorum með VIP-miða bauðst okkur þriggja rétta máltíð fyrir leik og svo var skundað á völlinn ásamt 75.000 manns. „Eftir- væntingin var gríðarleg og bara að sjá leikmenn United hita upp var stórskemmtilegt. Þegar leikmenn komu svo inn á völlinn úr göngun- um og allir stóðu upp og klöppuðu, var gaman að sjá augu fermingar- drengsins galopin og eftirtektina í hámarki. Leikurinn byrjaði vel hjá okkar mönnum þegar Paul Pogba skoraði frábært mark fyrir framan nefið á okkur á 16. mínútu. Gleði drengsins var algjör og við vorum svo glaðir að fá ekki marka- lausan leik hjá United í fyrstu ferð Ragnars. Arsenal jafnaði þó fljót- lega í seinni hálfleik og það stefndi í jafnteflisleik þegar okkar maður, Fellaini, skoraði sigurmarkið á 91. mínútu leiksins. Fagnaðarlætin voru hvergi meiri en hjá okkur feðgum og sigurleikur í höfn.“ Nældi í eiginhandaráritun Eftir leikinn fékk Ragnar þá hug- mynd að bíða fyrir utan völlinn til að reyna að fá eiginhandará- ritun hjá leikmönnum United. „Það var bókun á annað ævintýri út af fyrir sig þar sem þúsundir aðdáenda biðu í sömu erinda- gjörðum. Flestir leikmanna gengu fram hjá hópnum en Ragnar gafst ekki upp. Í blálokin gekk Alexis Sanchez frá Síle út en þá vorum við einmitt staðsettir við hlið gaurs sem hélt á fána Síle og United treyju merktri honum. Sanchez tók eftir honum og skundaði beint til okkar og þar með fékk Ragnar eiginhandar áritun hjá honum. Pabbinn gleymdi sér í geðshrær- ingu sonarins og gleði að fá áritun enda var takmarkið alltaf að Ragnar fengi áritun frá leikmanni eða leikmönnum. Á þessum tíma- punkti mátti segja að ferðin væri fullkomnuð.“ Eiga stundina saman Ragnar segist aldrei gleyma þessari ferð enda gekk nánast allt upp að hans sögn. „Ég kunni mjög vel við borgina og það var gaman að sjá hvað Old Trafford var stór leik- vangur. Hápunkturinn var að sjá mark Fellaini á 91. mínútu í upp- bótartíma og fagnaðarlætin sem brutust út í kjölfarið. Allt annað var skemmtilegt og óvænt, eins og að ná eiginhandaráritun hjá Alexis Sanchez sem var geðveikt. Einn- ig kom mér á óvart hvað margt skemmtilegt var í boði í borginni, t.d. risastórt innanhússminigolf og frábært fótboltasafn.“ Þakklæti er efst í huga Jónatans. „Það má segja að 99% af ferðinni hafi farið í að fylgjast með syn- inum meðtaka allt í kringum áhuga hans á United og fótbolta yfirhöfuð. Það kom á óvart hversu frábær ferðalangur unglingurinn er, þægilegur ferðafélagi og til í hvaða ævintýri sem er. Það eru forréttindi að hafa fengið að vera með honum í hans fyrstu ferð á Old Trafford og við munum alltaf eiga þessa stund saman og hugsa til hennar með hlýju út ævina. Nú getum við ekki hætt að hugsa um hvenær við komumst aftur á Old Trafford að horfa á hetjurnar okkar að spila leik. Við feðgarnir erum orðnir sjúkir í fótboltaferðir og munum pottþétt fara á f leiri leiki saman í framtíðinni.“ 18 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . M A R S 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RFERMINGARGJAFIR 2 3 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :4 6 F B 1 2 8 s _ P 0 9 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 8 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 A 1 -5 C F C 2 2 A 1 -5 B C 0 2 2 A 1 -5 A 8 4 2 2 A 1 -5 9 4 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 1 2 8 s _ 2 2 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.