Fréttablaðið - 28.03.2019, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 28.03.2019, Blaðsíða 40
Þökkum innilega öllum þeim sem sýnt hafa okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, séra Sigurðar Helga Guðmundssonar Hjartans þakkir til allra þeirra sem önnuðust hann í erfiðum veikindum síðastliðin ár og sýndu honum vináttu og hlýhug í orðum og verkum. Brynhildur Ósk Sigurðardóttir Sigurður Þór Sigurðarson Ragnheiður Sif Gunnarsdóttir Margrét Sigurðardóttir Örn Hauksson Vilborg Ólöf Sigurðardóttir Jóhannes Rúnar Jóhannsson og barnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, Ísleifur Guðmannsson bifvélavirki frá Jórvík í Álftaveri, til heimilis að Víkurási 2, Reykjavík, lést á heimili sínu fimmtudaginn 21. mars. Útför hans verður gerð frá Fossvogskirkju föstudaginn 29. mars klukkan 15. Trausti Ísleifsson Hafdís Rósa Jónasardóttir Guðmann Ísleifsson Benný Hulda Benediktsdóttir Ásgeir Logi Ísleifsson Helga Karlsdóttir og barnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og langamma, Erla Hermína Þorsteinsdóttir Lambastekk 1, Reykjavík, lést þriðjudaginn 26. mars. Hún verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstudaginn 5. apríl kl. 13. Sara Bertha Þorsteinsdóttir Kristinn Hilmarsson Sigríður Halldóra Þorsteinsdóttir Páll Ásgeir Pálsson Sigurður Þorsteinsson Caroline Tayar Lilja Þorsteinsdóttir Sverrir Ágústsson Margrét Þorsteinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elsku sonur okkar og bróðir, Kristján Steinarsson er látinn. Útförin fer fram frá Lindakirkju mánudaginn 1. apríl kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á að taka upp hanskann fyrir þá sem minna mega sín. Kristín Kristjánsdóttir Katrín Kristín Söebech Katrín Steinarsdóttir Sigurður Halldórsson Alexander Steinarsson Söebech Shirley Levi Haukur Þór Lúðvíksson Ari Már Lúðvíksson Harpa Mjöll Gunnarsdóttir Theodór Árni Söebech Hansson Helena Júnía Stefánsdóttir Hjartans elsku maðurinn minn, tengdasonur, faðir okkar og fósturfaðir, tengdafaðir, bróðir, mágur og afi, Sveinn Jónsson blikksmiður/tamningamaður og verktaki, Arnarhrauni 25, Hafnarfirði, andaðist á gjörgæsludeild Landspítalans að kvöldi laugardagsins 23. mars. Hann verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju þriðjudaginn 2. apríl klukkan 15.00. Íris Högnadóttir Þyrí Ragnheiður S. Björgvinsdóttir Magnús Björn Sveinsson Jón Páll Sveinsson Bianca Elisabeth Treffer Vera Helgadóttir Lovísa Jónsdóttir Högni Þór Jónsson Björn Jónsson Kerstin Wallquist Jonsson Eyþór G. Jónsson Bryndís Gísladóttir Sigríður Jónsdóttir Alma Högnadóttir Felix Högnason Bára Denný Ívarsdóttir Björgvin Högnason Gauja S. Karlsdóttir Svandís Rós T. Jónsdóttir Heiðdís Fjóla T. Jónsdóttir Alexander Vilmar Jónsson og aðrir aðstandendur. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Skúli Geirsson fyrrum bóndi á Írafelli, lést þann 25. mars. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 2. apríl klukkan 13. Hólmfríður Vilhjálmsdóttir Vilhjálmur Árnason Ylfa Þorsteinsdóttir Guðmundur Árnason Áslaug Kjartansdóttir Þorbjörg Skúladóttir Sigurður Bergmann Svavarsson Guðrún Skúladóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Bergljót Loftsdóttir lést á hjúkrunarheimilinu Dalbæ föstudaginn 15. mars. Útförin fer fram frá Dalvíkurkirkju laugardaginn 30. mars kl. 11. Loftur Gunnar Sigvaldsson Guðrún Sigurðardóttir Helga Björk Sigvaldsdóttir Sigurður Ásgeirsson Sveinn Haukur Sigvaldsson Ágústa Markrún Óskarsdóttir og fjölskyldur. Okkar ástkæri Sævar Magnússon Skúlagötu 20, lést 22. mars. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 1. apríl kl. 13.00. Kristín Hannesdóttir Íris Sævarsdóttir Guðmundur Andrésson Karen Anna Sævarsdóttir Kristinn Arnar Gunnarsson Harpa Kristjánsdóttir Jónína Fjóla Gunnarsdóttir Brynja Steinunn Gunnarsdóttir Valdimar Baldvinsson og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Sofía Jóna Thorarensen Bakkavör 11, lést á Landspítalanum í Fossvogi 17. mars. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju 1. apríl klukkan 15.00. Eiður Th. Gunnlaugsson Eva Maria Zwitser Örn Gunnlaugsson Heiðrún Gróa Bjarnadóttir Sunna Gunnlaugsdóttir Scott Ashley McLemore barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg systir okkar, mágkona og frænka, Elín Eygló Steinþórsdóttir lést á Líknardeild Landspítalans miðvikudaginn 13. mars. Útförin fer fram frá Neskirkju, föstudaginn 29. mars kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á góðgerðarfélög. Sveinbjörg Steinþórsdóttir Eiríkur Steinþórsson Steindór Steinþórsson Anna Marie Georgsdóttir systkinabörn og fjölskyldur. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Jón Ólafur Bjarnason fv. fjármálastjóri, lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, þann 14. mars. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn 28. mars kl. 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á að leyfa Fríkirkjunni í Hafnarfirði að njóta þess. Fyrir hönd aðstandenda, Þorgerður María Gísladóttir Hann ræktaði búfé og ræktaði tún og í dag  ræktar hann tengslin við fjölskyldu og vini í tilefni 85 ára afmælis síns. Magnús Sæmundsson  var bóndi að Eyjum II í Kjós um hálfrar aldar skeið en býr nú að Eirhömrum, dvalarheimili í Mosfellsbæ. Hann kveðst hafa það nokkuð bærilegt. „En maður er ekki ungur lengur,“ tekur hann samt fram. „Við fluttum hingað að Eirhömrum, hjónin bæði, fyrir nokkrum árum, konan mín, Guðrún Ólafía Tómasdóttir, var með Alzheimer. Hún dó 2. september 2017 en við vorum búin að eiga gott líf saman, eignuðumst fimm börn og eitt fóstur- barn og Guðrún átti tvo syni frá fyrra hjónabandi svo heimilið var fjölmennt.“  Magnús átti alla tíð heima að Eyjum II. „Ég ólst upp hjá móður minni og systkinum hennar og afa og ömmu í upphafi. Við hjón- in bjuggum svo félagsbúi með Haraldi, móðurbróður mínum, í byrjun og um tíma með Haraldi syni okkar og hans konu.“ Aðspurður segir hann búið hafa verið nokkuð stórt á þess tíma mælikvarða. „Við vorum með 30-40 hausa í fjósi og um 250 fjár á vetrarfóðrum, svo vorum við með hænsni líka til eggja- framleiðslu og áttum nokkur hross. Hestamaður? Ég get ekki verið að varpa því neitt en ég tel að mínir hestar hafi verið gæð- ingar, það segja allir um sín hross. En það er talsvert síðan ég sat hest síðast. Hef verið með hjartsláttaróreglu í nokkur ár og gæti ekki farið á bak nema þægu hrossi.“ Eins og bónda sæmir kveðst Magnús hafa haft ánægju af búskapnum. „Vinnudagurinn var vissulega oft langur en fram- farirnar voru líka miklar. Til dæmis ræktunarframkvæmdir á hverju ári.“  Magnús var í forsvari fyrir sína sveit og stétt á ýmsum vett- vangi og sinnti mörgum trúnaðarstörfum. „Það var heilmikil vinna í félagsmálum hjá mér og í ýmis horn að líta,“ segir hann. „Ég var ungur settur í stjórn ungmennafélagsins og var í Karla- kór Kjósverja í upphafi en búið var bara svo stórt að ég gat ekki fylgt því áhugamáli eftir.“ gun@frettabladid.is Oft langur vinnudagur Magnús Sæmundsson, fyrrverandi hreppstjóri, oddviti og bóndi fagnar 85 ára afmæli í dag. „Ég tel að mínir hestar hafi verið gæðingar, það segja allir um sín hross,“ segir Magnús Sæmundsson. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, amma, dóttir, tengdamóðir og systir, Anna Elín Svavarsdóttir ljósmyndari, lést sunnudaginn 24. mars. Fyrir hönd fjölskyldunnar, François Heenen Kristín Ninja Guðmundsd. Hilmar Gunnarssson Sóley Heenen Bjarki Þ. Ingason Emilía Heenen Kristín Pálmadóttir Kristinn Þ. Bjarnason Berglind Svavarsdóttir Matteo Mornata Þóra Kristinsdóttir Arnar Gunnarsson og barnabörn. 2 8 . M A R S 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R24 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT 2 8 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :4 3 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 A D -E 2 A 8 2 2 A D -E 1 6 C 2 2 A D -E 0 3 0 2 2 A D -D E F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 5 6 s _ 2 7 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.