Fréttablaðið - 28.03.2019, Blaðsíða 32
Húfa byggð á klassískri húfukollu
66°Norður. MYND/BENJAMIN HARDMAN
HönnunarMars hefst í dag, fimmtudag, og stendur yfir til sunnudags. Fjölmargir
spennandi og skemmtilegir við-
burðir eru í boði, til dæmis á sviði
fatahönnunar.
Þar má m.a. nefna sýningu á
völdum verkum nemenda sem
tóku þátt í samkeppni 66°Norður
og Hönnunar- og arkitektúrdeild
Listaháskóla Íslands en samkeppn-
in snerist um að skapa eitthvað nýtt
úr klassískri húfukollu 66°Norður.
Í Ráðhúsi Reykjavíkur verður
rýmisgreind vandræðaleikans
rannsökuð í gegnum miðil fata-
hönnunar en sýningin er unnin
upp úr meistaraverkefni fata-
hönnuðarins Helgu Láru frá The
Swedish School of Textiles.
Feldur Verkstæði sýnir saman-
safn af gömlum pelsum sem hafa
fylgt fjölskyldunni til margra ára en
hafa nú öðlast nýtt líf og útlit í takt
við tíðarandann.
Nemendur á 3. ári í fatahönnun
við Listaháskóla Íslands sýna
verk sem unnin voru á mörkum
arkitektúrs og fatahönnunar úr
gardínuefnum af gömlum lager
heimsþekkta textílframleiðandans
Kvadrat en sýningin er í samstarfi
við Epal.
Mói býður upp á opna vinnu-
stofu fyrir börn þar sem þau munu
hanna nýja boli. Einn þeirra verður
seldur í versluninni en allur ágóði
rennur til Einhverfusamtakanna.
Nánari upplýsingar um viðburði
HönnunarMars má finna á honn-
unarmars.is.
Fjör fram undan á HönnunarMars
Þessi fallega taska sómir sér vel
með öðrum listgripum. Myndin
er tekin af Instagram-síðu þeirra
Dolce og Gabbana.
Þeir félagarnir Dolce og Gabbana eru duglegir að nota samfélagsmiðla. Þannig
kynna þeir vörur sínar og setja
oft skemmtileg komment með
myndunum. Þessi mynd birtist á
Instagram, Facebook og á Twitter.
Þar segir að D&C handtöskurnar
séu ekki síðri en fallegur listgripur.
Það er hverju orði sannara að
töskurnar frá D&G eru fallegar.
Þær eru unnar af ástríðu fyrir
glæsileika, eins og hönnuðir segja.
Skartgripurinn á töskunni er
handsmíðaður. Töskurnar fást í
mörgum litum og kosta um hundr-
að þúsund en þær eru framleiddar
á Ítalíu eins og flest það sem D&G
hanna. Sjálfir eru þeir ítalskir og
eiga sér langa sögu í frumlegri
hönnun sem oftar en ekki er tíma-
laus. Hönnun þeirra þykir höfða til
jafnt eldri sem yngri. Þá þykja þeir
hafa sterkan skilning á þörfum
netkynslóðarinnar.
Sannkallaður
listgripur
Hárið getur verið óviðráðanlegt á
veturna þegar veðrið er rysjótt.
Margir finna fyrir því að hárið verður líf laust og þurrt þegar vetrar-
veðrið er rysjótt. Nauðsynlegt er
að gefa hárinu auka raka þegar
þannig stendur á. Veljið vandað
og gott sjampó, hárnæringu og
hárolíu til að ná aftur eðlilegum
raka í hárið. Fáið aðstoð hjá fag-
manni um hvernig best er að nota
hárolíu.
Ef þú vilt fá lokka í hárið skaltu
þurrka það með hárblásara þar
til það er um það bil 80% þurrt.
Spreyið blástursvökva yfir hárið
og notið síðan hringbursta til að
móta krullur með blásaranum.
Ef hárið er feitt vegna olíunnar
eða af öðrum orsökum er gott
ráð að nota þurrsjampó. Hárolía
getur líka hjálpað ef hárið er raf-
magnað. Ekki þvo hárið daglega,
það þurrkar húðina og slítur
hárendana. Talið er að best sé að
þvo hárið einu sinni til þrisvar í
viku.
Vetrarhárið
Velkomin í okkar hóp!
Innritun og nánari upplýsingar
í síma 581 3730 og á jsb.is
Markviss, fjölbreytileg og öflug líkamsrækt
fyrir konur og stelpur sem tekur mið af þörfum ólíkra hópa
og skilar auknum krafti, hreysti og vellíðan.
Fáðu sjálfa
tilbaka!
Innritun á ný
TT námskeið að hefjast
Aðhaldsnámskeiðin TT1 (25+) og TT3 (16-25)
Krefjandi og markviss líkamsþjálfun,
sex vikna matarlisti, ummálsmæling, vigtun
og vikulegir póstar.
Njóttu þess að finna hvernig fötin passa þér betur,
öll hreyfing verður léttari og skemmtilegri
og þú verður líkari sjálfri þér!
Margir tímar í boði
Kynntu þér málið á jsb.is
Innritun í síma 581 3730
þig
E
F
L
IR
/ H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 8 . M A R S 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R
2
8
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:4
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
A
D
-F
B
5
8
2
2
A
D
-F
A
1
C
2
2
A
D
-F
8
E
0
2
2
A
D
-F
7
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
2
7
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K