Fréttablaðið - 28.03.2019, Blaðsíða 47
Fræhvíta
Orkugjafi, inniheldur
kolvetni og prótein
Heilkorn
Klíð
Ytri skel sem ver fræið,
inniheldur trefjar,
B-vítamín og steinefni
Kím
Næring fyrir fræið,
inniheldur andoxunarefni,
E-vítamín og B-vítamín
Myllan, 2011. ©Þessa mynd má nota óbreytta. Getið uppruna.
Skoðaðu myllan.is
SJÖ
LÍFSKORN
FYRIR
HEILSUNA
Lífskorn – Sjö tegundir af fræjum og
kornum er nýjasti fjölskyldumeðlimurinn í
Lífskornalínunni. Frábær kostur fyrir alla sem
hugsa um heilsuna. Það inniheldur hafraflögur,
sólblómafræ, hörfræ, sesamfræ, graskersfræ
og rúg en ekkert hvítt hveiti og ekkert ger.
Trefjaríkt og gómsætt brauðið er vegan og
sérstaklega þétt og saðsamt.
Lífskorn er trefjagjafi þinn – fræsafn þitt og
heilsurækt – það hefur hátt hlutfall heilkorns,
með gott hlutfall góðrar fitu.
Safnaðu góðri orku, fáðu þér Lífskorn í dag.
Lífskorn færir þér máltíð af akrinum.
Hafraflögur 26%
Sólblómafræ 9%
Hörfræ 8,5%
Rúgkjarnar 3%
Graskersfræ 2,5%
Sesamfræ 1,5%
Spelthveiti 1,5%
Ræktaðu h
uga og líka
ma
- fáðu þér
Lífskorn
heilkornabr
auð frá M
yllunni
-strax
í dag
VEG
AN
cw180099_Myllan_Lífskorn_7tegundir_Dagbl_2x38_20181220_END.indd 1 7.1.2019 14:28:20
BÆKUR
Brandarar handa
byssumönnum
HHHHH
Höfundur: Mazen Maarouf
Þýðandi: Uggi Jónsson
Útgefandi: Mál og menning
Blaðsíður: 147
Hvernig er að vaxa úr grasi í stöðugu
stríði? Uppvaxtarár Mazen Maarouf
í Beirút eru efniviður og innblástur
smásagnasafns hans Brandarar
handa byssumönnum sem tilnefnd
er til Man Booker verðlaunanna
í f lokki þýddra bóka. Sögurnar í
bókinni eru fjórtán og hægt er að
skipta þeim í tvo flokka, sögur þar
sem sögumaðurinn er barn, drengur,
í stríðshrjáðri borg og sögur þar sem
sögumaðurinn eða persónurnar eru
fullorðin og kannski í sömu borg þar
sem stríð geisar ekki lengur en mark
þess er samt óafmáanlegt af borginni
og fólkinu. Börnin í sögunni leitast
við að búa til reglu og merkingu úr
óreiðu, merkingu sem eðli málsins
samkvæmt hlýtur að verða fáránleg
því það er engin regla í stríði og þessi
fáránleiki eða absúrdismi er síðan
orðinn varanlegur hluti af borginni
þegar börnin eru fullorðin og stríð-
inu lokið.
Hugleiðingar um hlátur og kímni-
gáfu, ekki til skemmtunar heldur
sem vopn eða varnarhætti, eru
endur tekið stef í sögunum, einn-
ig samband feðga og foreldra og
barna og líkaminn og hverfulleiki
hans endurspeglast í handleggjum
og fleiri útlimum sem persónurnar
missa. Tilraunir til að reyna að búa
til eitthvað eðlilegt úr vonlausum
aðstæðum leiða af sér töfraraunsæi
sem sprengir utan af sér mörk þess
sem er líklegt, eðlilegt og gerlegt
á sama hátt og híbýli og líkamar
sundrast í sprengjum og kúlna-
hríð, og endar í fáránleika þar sem
handleggjalausir feður biðja börn
sín um að gefa sér annan handlegg
sinn, broslausir menn breytast í
rennibrautir fyrir aldraða og kýr
valsa inn og út úr kvikmyndahús-
um í sprengju regni. Næstum allar
sögurnar lýsa erfiðu eða óbæri-
legu ástandi sem persónurnar eru
valdalausar gegn. Undirliggjandi er
hinn sári og hörmulegi raunveru-
leiki stríðs sem er í mótsögn við allt
sem er fallegt og náttúrulegt og eina
leiðin til að kljást við það er að finna
eitthvert nógu fáránlegt sjónarhorn
til að hægt sé að hlæja að því, kaupa
sér frið og grið með því að búa til
brandara handa byssumönnum.
Töfrar og martraðir úr stríði
Mazen
Maarouf
rithöf-
undur.
Sögurnar eru áhrifamiklar,
kröftugar, stundum næstum óþol-
andi aflestrar en samt er engin leið
að hætta að lesa, því þær eru líka
skemmtilegar, fyndnar, fallega stíl-
aðar og vonin er alltaf til staðar,
meira að segja þegar hún er vonlaus
eins og í sögunni Fiskabúrið. Af því
að þannig er mennskan, hún gefst
ekki upp.
Þýðing Ugga Jónssonar nær að
fanga þetta andrúmsloft prýðilega.
Brynhildur Björnsdóttir
NIÐURSTAÐA: Heillandi smá-
sögur sem lýsa baráttu manns-
andans til að lifa við óbærilegan
veruleika.
Ársfundur 2019
fimmtudaginn 11. apríl
- Heildareignir: 229,5 milljarðar
- Skráðir sjóðfélagar: 46 þúsund
- Hæsta nafnávöxtun 2018: 7,0%
- Hæsta raunávöxtun á ári sl. 10 ár: 4,9%
Ársfundur Almenna lífeyrissjóðsins verður haldinn á Icelandair
Hótel Reykjavík Natura fimmtudaginn 11. apríl 2019 kl. 17:15.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Ársreikningur 2018 og tryggingafræðileg athugun á fjárhag samtryggingarsjóðs.
3. Kynning á fjárfestingarstefnu.
4. Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins.
5. Kosning stjórnar.
6. Kosning endurskoðenda eða endurskoðunarfélags.
7. Ákvörðun um laun stjórnar.
8. Önnur mál.
Framboðum til stjórnar (aðalmenn) skal skila viku fyrir ársfund sjóðsins. Framboðs-
frestur rennur út þann 4. apríl 2019. Hægt er að senda inn framboð á netfangið
almenni@almenni.is.
Ársreikningur sjóðsins, tillögur um breytingar á samþykktum og nánari upplýsingar
um ársfundinn eru á heimasíðu sjóðsins. Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta.
Stjórn Almenna lífeyrissjóðsins.
Nánar á:
www.almenni.is
- A.m.k. 1/3 skyldusparnaðar í séreign
- Hagstæð lífeyrisréttindi
- Daglegt gengi ávöxtunarleiða á heimasíðu
- Sjö ávöxtunarleiðir í boði
Almenni í hnotskurn
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 31F I M M T U D A G U R 2 8 . M A R S 2 0 1 9
2
8
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:4
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
A
E
-0
0
4
8
2
2
A
D
-F
F
0
C
2
2
A
D
-F
D
D
0
2
2
A
D
-F
C
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
5
6
s
_
2
7
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K