Fréttablaðið - 28.03.2019, Blaðsíða 54
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðardóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage
johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Benedikt Bóas Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
MEXÍKÓ VEISLA FRÁ
140kr.
TORTILLA
FLÖGUR
78kr. 78kr.78kr.
FAJITA
MIX
GUACAMOLE
MIX
TACO SPICE
MIX
219kr. 219kr.
VEFJUR
FÍNAR
VEFJUR
GRÓFAR
123kr. 123kr. 198kr.
TACO SÓSA
MEDIUM
TACO SÓSA
HOT
JALAPENOS
CHILI
251kr.
TACO
SKELJAR
HALLVEIGARSTÍG 1 - FAXAFENI 14 - REYKJAVÍK
MJÖG GOTT - MJÖG GOTT - MJÖG GOTT - VERÐ
OPIÐ TIL 22:00 ALLA DAGA
Töfrabörn, fyrsta hljóm-plata Ragnheiðar Grön-dal í fimm ár, er komin út og tónlistarkonan ætlar að fagna þessum kærkomnu tímamót-
um með útgáfutónleikum í Gamla
bíói á sunnudagskvöld.
„Ætli það megi ekki segja að þetta
séu lög sem hafa orðið til hjá mér á
síðustu fimm árum, eða frá því að
síðasta plata kom út,“ segir Ragn-
heiður við Fréttablaðið og bætir við
að ef nýja platan líkist einhverju þá
væri það helst þjóðlagaplöturnar
hennar.
„Hún gengur samt nokkrum
skrefum lengra í tilraunaátt. Hún
er öll tekin upp í London með
írskum upptökustjóra sem heitir
Gerry Diver sem gefur henni dálítið
skemmtilegan blæ. Hann hefur
unnið mikið með þjóðlagatónlistar-
mönnum á Bretlandseyjum og setti
sín sterku einkenni á hana.
Ég lagði samt alveg upp með að
reyna að gera eitthvað sem væri
einhvern veginn aðgengilegt. Í það
minnsta þeim sem eru með opinn
huga og þyrstir í að heyra eitthvað
sem er kannski ekki alveg Bylgjan.
Ég held að fólk eigi alveg að ná henni
eftir tvær til þrjár hlustanir. Eða ég
vona það,“ segir Ragnheiður og hlær.
„Þetta er eiginlega bræðingur af
svona alls konar stílum og straum-
um en hún er samt með rætur í ein-
hvers konar þjóðlagatónlist. Ef ég á
að reyna að skilgreina hana myndi
ég segja að þetta sé tónlist sem
dansar á mörkum tilraunapopps og
þjóðlagatónlistar. Annars hefur mér
aldrei þótt jafn erfitt að skilgreina
það sem ég er að gera. Maður veit
ekkert alveg hvað þetta er.“
Kraumandi suðupottur
Ragnheiður segist alls ekki hafa
lagt upp með að ná fram þessum
áhrifum en galdrar hafi gerst þegar
hún mætti með lögin sín í hljóð-
ver Gerrys. „Ég kynntist honum í
gegnum sameiginlega vini, Hilmar
Örn Agnarsson og breska vinkonu
mína sem er gyðjuprestur. Hún
hefur unnið með Gerry og er svo
ánægð með hann að hún sagði mér
að ég yrði að prófa að vinna með
þessum manni. Hún seldi mér svo-
lítið um leið hugmyndina um að
fá mér upptökustjóra,“ segir Ragn-
heiður sem hingað til hefur aðallega
skrifað sjálfa sig og eiginmanninn,
Guðmund Pétursson gítarleikara,
fyrir upptökustjórn platna sinna.
„Þannig að þetta var skref inn
í hið óþekkta, að hleypa Gerry
þarna að, en svo gerast bara ein-
hverjir galdrar þegar við komum í
stúdíóið hans í Suður-London. Þá
fór allt á suðupunkt og ég fann svo
sterkt þessa óbeit hans og mótþróa
gagnvart því að vera alltaf að gera
eitthvað sem er búið að gera áður.“
Engin sjálfsævisaga
Aðspurð segir Ragnheiður að sjálf-
sagt megi greina ævisöguleg áhrif í
lögunum á plötunni en þá nái slíkt
yfir lengra tímabil en síðustu fimm
ár. „Ég held þá að þessi plata sé upp-
gjör við miklu lengra ferli og svona
ýmislegt sem maður hefur lent í og
er að vinna úr.“
Enda ekki á vísan að róa þegar
undirmeðvitundin er annars vegar.
„Mér finnst eins og undirmeðvit-
undin sé einhvern veginn stundum
langt á undan manni í sköpun en
síðan getur hún líka verið langt á
eftir.
Þannig að vissulega er ýmislegt
af sjálfri mér í þessum lögum en
mér fannst samt svo mikilvægt að
reyna að búa til lög sem hver sem
er gæti speglað sig í,“ segir Ragn-
heiður um þennan undarlega og
óræða sammannlega streng sem
einkennir góð listaverk, hvort sem
um er að ræða bókmenntir, tónlist
eða myndlist.
„Svo veit ég ekkert hvort það
hefur tekist. Kannski er ég bara
eins og persónulegi trúbadorinn,“
segir hún og hlær. „Ég var ekkert að
leggja upp með einhverja sjálfsævi-
sögu, eiginlega þvert á móti.“
Öllu tjaldað til
Þótt Ragnheiður ætli ekki að reyna
að standa gegn hinum þunga
straumi nútímans í tónlistarútgáfu
gefur hún Töfrabörn út á geisladiski
núna og vínyllinn kemur í kjölfarið
en platan er þegar aðgengileg á
Spoti fy. „Það er fínt að byrja á Spoti-
fy enda væri annað bara einhvern
veginn eins og að berjast við vind-
myllur.“ Þannig að platan er komin
í stærstu tónlistarverslun landsins,
á Spotify.
Ragnheiður ætlar að fara í gegn-
um plötuna alla á útgáfutónleik-
unum í Gamla bíói á sunnudags-
kvöld með einvala liði. „Það verður
öllu tjaldað til fyrir augu, eyru og öll
skynfærin. Ég get lofað því og við
ætlum svolítið að rannsaka þessi
lög í lifandi f lutningi. Þetta verður
öðruvísi, eins og að búa til nýjan
skúlptúr en fanga samt sama and-
rúmsloftið og er í lögunum.“
thorarinn@frettabladid.is
Ragnheiður Gröndal
dansar á mörkum
Ragnheiður Gröndal fagnar fyrstu plötu sinni í fimm ár, Töfrabörnum,
með tónleikum um helgina. Hún segir erfitt að lýsa plötunni sem er
einhvers konar óvæntur bræðingur tilraunapopps og þjóðlagatónlistar.
Mér hefur aldrei þótt jafn erfitt að skilgreina það sem ég er að gera, segir Ragnheiður Gröndal. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ÉG LAGÐI SAMT ALVEG
UPP MEÐ AÐ REYNA
AÐ GERA EITTHVAÐ SEM VÆRI
EINHVERN VEGINN AÐGENGI-
LEGT. Í ÞAÐ MINNSTA ÞEIM SEM
ERU MEÐ OPINN HUGA OG
ÞYRSTIR Í AÐ HEYRA EITTHVAÐ
SEM ER KANNSKI EKKI ALVEG
BYLGJAN.
2 8 . M A R S 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R38 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
8
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:4
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
A
D
-D
8
C
8
2
2
A
D
-D
7
8
C
2
2
A
D
-D
6
5
0
2
2
A
D
-D
5
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
2
7
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K