Kraftur - 01.01.2015, Síða 3
3
Kraftur
1. tbl. 2015
Leiðari
Halldóra Víðisdóttir
fráfarandi formaður Krafts
Kraftur með
byr í seglunum
Árstíðaskipti, sumarið framund-
an með sínum björtu og löngu
dögum, skólafrí og sumarfrí með
fjölskyldu og vinum sem flestir
ætla sér að nýta til hins ýtrasta.
Um þessar mundir eru einnig breytingar við stjórnvölinn
hjá Krafti, en fjórir ungir og drífandi einstaklingar eiga nú
sæti í stjórninni í fyrsta sinn sem er mikið fagnaðarefni.
Gamlir stjórnarmeðlimir hverfa á braut og aðrir taka við og
stýra skútunni í rétta átt og í þá átt sem við höfum verið að
stefna að undanfarin misseri. Undirrituð er ein af þeim sem
segir skilið við frábært og lærdómsríkt starf undanfarin
tvö ár en ég er sko aldeilis ekki horfin frá félaginu þó að
aðrir aðilar leiði starfið. Kraftur er félag sem hefur margt
til brunns að bera en á ennþá heilmikið inni og þar skiptir
samstaða allra félagsmanna máli.
Félagið hefur nú þegar náð miklum árangri með
Stuðningsneti Krafts sem býður upp á jafningjastuðning
og er það eitt helsta einkennismerki félagsins sem þarf
að halda áfram að efla og auka þarf vitneskju almennings
á því hvað stendur þar til boða. Félagið hefur náð góðum
árangri hvað varðar upplýsingaflæði og fræðslu fyrir félags-
menn, reglulega eru gefin út blöð, upplýsingarit, bæklingar
og hefur félagið staðið fyrir málþingum sem er vel. Félagið
hefur síðast en ekki síst bætt hagsmunagæsluna fyrir unga
krabbameinsgreinda einstaklinga og þeirra aðstandendur
en á þessu ári var úthlutað í fyrsta sinn úr Neyðarsjóði
Krafts til ungra einstaklinga sem lent hafa í fjárhagserfið-
leikum vegna sinna veikinda.
Við hjá Krafti erum ákaflega stolt af þessum sjóði og vonum
að hann muni létta róðurinn hjá ungum einstaklingum
með krabbamein og gera lífið betra á meðan á þessum
erfiða tíma stendur. Það á enginn að þurfa að hafa áhyggjur
af fjárhag á meðan svona þung veikindi standa yfir og þess
vegna er það von okkar og trú að sjóðurinn verði ekki
langlífur, þ.e. að þegar fram líða stundir verði hægt að
leggja hann niður því þörfin verði ekki lengur til staðar.
Við getum einungis vonað að sumarið færi okkur góða
veðráttu og helst að allir dagar færi okkur sól, það bara
bætir svo mikið lundina. Við þurfum ekki að vona neitt
með félag eins og Kraft, við hreinlega vitum að það er bjart
framundan og félagið muni halda áfram að dafna með
stuðningi frá ykkur félagsmönnum og sterkri stjórn sem
situr nú í brúnni.
Undirrituð þakkar kærlega fyrir ómetanleg tvö ár sem
formaður þessa flotta félags og óskar félagsmönnum alls
hins besta í framtíðinni.. Gleðilegt sumar!
Halldóra með dóttur sinni Marín