Kraftur - 01.01.2015, Blaðsíða 24
24
Kraftur
1. tbl. 2015
Julie Coadou og Sigríður Einarsdóttir fóru fyrir hönd
Krafts út til Varsjár í Póllandi dagan 27.-30. apríl 2015, sem
ráðgjafar vegna rannsóknarverkefnis Alivia, Queuescope
en Kraftur er samstarfsfélag Alivia í þessu verkefni. Full-
trúar Alivia hafa komið einu sinni til Íslands til að funda
um verkefnið og þetta var önnur ferð stjórnarmeðlima í
Krafti til Póllands í sama tilgangi.
Í ferð þeirra Julie og Sigríðar kom fram að Pólland stendur
hvað verst af öllum löndum ESB auk Sviss í því að sam-
þykkja og koma nýjum lyfjum í umferð. Aðeins Rúmenía
stendur sig verr. Ný lyf geta verið í allt að 2-7 ár að komast
í gegnum samþykktarferli og í almenna sölu. Aðgengi að
samþykktum lyfjum er að sama skapi mjög takmarkað,
en heilbrigðisyfirvöld setja lyfjum mjög þröngar skorður.
Dæmi um það er að lyf sem skilgreint er fyrir 4. stigs
krabbamein má ekki selja einstaklingi með 2. stigs krabba-
mein, þrátt fyrir að læknar kunni að mæla með því. Alivia
hefur reynt að kynna skýrsluna fyrir heilbrigðisyfir-
völdum, m.a. sérstakri ráðstefnu, án árangurs. Skýrslan
hefur síðan komist í víðari dreifingu, valdið almennri
hneykslan í Póllandi og var m.a. tekin til umræðu á pólska
þinginu þann 29. apríl.
Queuescope
Queuescope er hugsað fyrir þá sem ekki hafa efni á að fara
í myndatöku á einkastofum, en kostnaður við slíkt er frá
100-1000 evrum, eftir eðli myndatöku. Til þess að skilja
betur hvað þessar tölur þýða má benda á að í Póllandi
eru meðal mánaðartekjur 700 evrur á mánuði. Queue-
scope er komið á gott skrið. Vefsíðan opin og búið að ráða
starfsmann til þess að vinna að uppbyggingu gagnabanka
því tengdu. Notkun er aðeins undir væntingum. Ástæður
kunna að liggja í háum meðalaldri krabbameinssjúklinga,
sem ekki eru vanir að nota vefinn. Endurgjöf notenda
Queuescope hefur hins vegar farið fram úr vonum, en
notendur hafa verið duglegir að uppfræða Alivia um það
ef þeir fá aðrar upplýsingar um raðalengd, en kom fram
á vefsíðunni.
Unnið að góðum
málum beggja
megin hafs
Grein
Julie Coadou og Sigríður Einarsdóttir
Umfjöllun um samstarf Alvia og Krafts
Upphaflegt markmið, þ.e. að fylgjast með 200 skoðunar-
stöðum, hefur aukist upp í 500. Ástæðan er sú að komið
hefur í ljós að ekki þarf að hafa eins oft samband við þær
og upphaflega var áætlað. Tillaga Krafts varðandi það
að sá sem hringir og spyrst fyrir um lengd biðlista eftir
myndatöku kynni sig sem venjulegan mann, en ekki sem
starfsmann Alivia, hefur verið tekin í notkun og hefur
skilað mun áreiðanlegri tölum. Raðir í fyrstu mynda-
töku hafa styst, vegna þess að ríkið hefur krafist þess
að sjúkrastofnanir greini sjúklinga á innan við 9 vikum,
annars geta þær átt von á skertum fjárframlögum. Þetta
hefur þó ekki haft nein áhrif til styttingar annarra raða.
Julie Coadou, Agata Polinska og Sigríður M. Einarsdóttir