Kraftur - 01.01.2015, Page 16
16
Kraftur
1. tbl. 2015
„Við gleymum því tímunum
saman að Sigurður sé veikur
og oft grínumst við og hlægjum
að hlutum sem aðrir myndu
ekki gera – enda erum við
sannfærð um að jákvæðni
og gleði sé stór áhrifaþáttur
í bataferlinu“
Hann segist ætla að halda áfram að taka olíuna sam-
hliða lyfjameðferðinni og ætli síðan að sjá til eftir það.
Þau Siggi og mamma hans segja það mikla lífsreynslu
að standa frammi fyrir lífsógnandi sjúkdómi og það hafi
vissulega verið áfall þegar Siggi greindist. Þau hafi hins vegar
strax tekið þann pól í hæðina að líta á þetta sem verkefni sem
yrði að vinna og taka einn dag fyrir í einu. „Við höfum ekki
látið veikindin stjórna lífi okkar – þótt óneitantanlega hafi
þau haft ýmis áhrif á fjölskyldulífið,“ segir Guðrún. „Hér á bæ
er það lífsgleðin sem ræður ríkjum og vonin um að sigrast á
Almeria | Mallorca | Tenerife | Albir | Benidorm
Sumarferðir eru fyrir fjölskyldur
Fáðu meira með
Sumarferðum
…eru betri en aðrar
Hlíðasmára 19, 201 Kópavogur | Sími 514 1400 | sumarferdir.is
Finndu okkur á Facebook
þessum sjúkdómi er mjög sterk. Sigurður er æðruleysið upp-
málað, hann kvartar aldrei, gerir alltaf gott úr hlutunum og
sér bara það besta í stöðunni hverju sinni. Við gleymum því
tímunum saman að Sigurður sé veikur og oft grínumst við og
hlægjum að hlutum sem aðrir myndu ekki gera – enda erum
við sannfærð um að jákvæðni og gleði sé stór áhrifaþáttur í
bataferlinu. Hér er því enginn barlómur,“ segja þessi lífsglöðu
og jákvæðu mæðgin að lokum.
Hressileg fjölskylda á Þjóðhátíð