Kraftur - 01.01.2015, Qupperneq 18
18
Kraftur
1. tbl. 2015
Þegar einstaklingur greinist með krabbamein vakna ýmsar
spurningar hjá honum og ekki síður ástvinum hans.
Fyrstu viðbrögð fólks eru gjarnan ótti og öryggisleysi og
fjölmargar spurningar skjóta upp í kollinum um hvaðeina
er varðar sjúkdóminn og það sem framundan er. Ráðgjafar-
þjónusta Krabbameinsfélags Íslands tók til starfa árið
2007 en þar er boðið uppá fræðslu, upplýsingar, ráðgjöf
og stuðning af ýmsu tagi fyrir fólk sem hefur greinst með
krabbamein og aðstandendur þess. Þar starfa þrír sér-
hæfðir starfsmenn, tveir hjúkrunarfræðingar og félags-
ráðgjafi. Auk þess er Kraftur með aðstöðu í húsakynnum
Ráðgjafarþjónustunnar og á í góðu samstarfi við Ráðgjafar-
þjónustuna
Þegar komið er í fyrsta sinn í húsakynni Ráðgjafarþjónust-
unnar minnir margt þar á hlýlegt kaffihús. Gestgjafarnir
taka á móti fólki með bros á vör og kaffiilmur fyllir vitin
í notalegu andrúmslofti þar sem sjá má fallega listmuni á
veggjum og kertaljós á borðum sem jafnan eru þéttskipuð
glaðlegu og hressilegu fólki á öllum aldri.
Hlýlegt andrúmsloft
„Við leggjum mjög mikið upp úr því að hafa hlýlegt og
heimilislegt andrúmsloft hér og reynum að láta öllum líða
vel sem hingað koma,“ segir Sigrún Lillie Magnúsdóttir,
forstöðumaður Ráðgjafarþjónustunnar sem er hjúkrunar-
fræðingur að mennt. „Það segir sig sjálft að flestir sem
hingað koma hafa persónulega reynslu af krabbameini eða
eru aðstandendur. Það skiptir afar miklu máli að fólk hafi
tök á að sækja sér daglega ráðgjöf og stuðning og sjáum við
hér hvað jafningjastuðningur er máttugur,“ útskýrir Sigrún
Lillie en auk hennar starfa Gunnjóna Una Guðmunds-
dóttir, félagsráðgjafi, og Auður E. Jóhannsdóttir, hjúkrunar-
fræðingur í Ráðgjafarþjónustunni. Aðspurð um starfsemina
segir Sigrún Lillie hana vera í stöðugri þróun og aðsókn-
in hafi farið ört vaxandi undanfarin ár. „Þeir sem
nýta sér þjónustu okkar eru á öllum stigum sjúkdómsins,
þ.e. fólk sem er í greiningarferlinu, nýgreindir, í meðferð
– jafnvel að endurgreinast og svo auðvitað aðstandendur
sem eru stór hópur notanda þjónustu okkar,“ segir Sigrún
um leið og hún leggur á borð fyrir hópinn sem þá stund-
ina er rétt að ljúka Qi-gong hugleiðslu og nýtur veitinga og
samveru í kjölfarið.
Sigrún heldur áfram: „Það er stór hópur fólks sem kemur
hingað nær daglega og sá hópur fer stækkandi ár frá ári.
Það hefur komið mér á óvart hversu margir af þeim sem
nýta þjónustuna eru að koma löngu eftir að meðferð er
lokið. Þessir einstaklingar hafa ekki leitað eftir aðstoð á
meðan á meðferð stóð og standa frammi fyrir því að hafa
ekki fundið jafnvægi í lífinu eftir þær breyttu aðstæður
sem greining krabbameins veldur. Það er aldrei of seint að
leita sér aðstoðar með fræðslu, ráðgjöf og stuðningi.
Hér er boðið uppá stuðningsviðtöl við félagsráðgjafa,
sérhæfða hjúkrunarfræðinga og að auki djúpslökun fyrir
utan almenna ráðgjöf um hvaðeina er varðar krabba-
mein.“ Sigrún bætir við að allir séu velkomnir í Ráðgjafar-
þjónustuna og enginn sé spurður um ástæður þess að
hann komi. „Af reynslunni vitum við að þeir sem hingað
leita þurfa á því að halda og reynslan hefur einnig sýnt að
þeir sem einu sinni koma hingað, koma gjarnan aftur.
Segir Sigrún Lillie Magnúsdóttir
forstöðumaður Ráðgjafarþjónustu KÍ
Viðtal
Ragnheiður Davíðsdóttir
Sigrún Lillie Magnúsdóttir
„Hingað eru
allir hjartanlega
velkomnir“