Kraftur - 01.01.2015, Page 19

Kraftur - 01.01.2015, Page 19
19 Kraftur 1. tbl. 2015 Það þykir okkur vænt um,“ segir hún. Aðspurð um kostn- að fólks við þjónustuna segir hún hana vera að mestu leyti endurgjaldslausa utan þess sem fólk greiði fyrir einstaka námskeið og má þar nefna að greitt er fyrir námskeið í núvitund, námskeið í hugrænni atferlismeðferð og við svefnvanda. Einnig hefur verið náið samstarf við endur- hæfingarteymi Landspítalans með námskeiðslotur sem snúa að mörgum þáttum krabbameins. „Hér eru reglulega námskeið í hugrænni atferlismeðferð og af og til námskeið í Núvitund en þau námskeið eru niðurgreidd og kosta aðeins brot af því sem slík námskeið myndu kosta á hinum almenna markaði. Við bjóðum einnig uppá kaffi, te frá Tefélaginu, brauð frá Brauðhúsinu í Grímsbæ og viðbit frá Mjólkursamsölunni en þessi fyrirtæki styrkja okkur og gestir okkar greiða ekkert fyrir það.“ Fjölbreytt starfsemi Sigrún nefnir einnig hópavinnu fyrir ekkjur og ekkla í sam- starfi við Nýja dögun, námskeið fyrir konur sem hafa bjúg á handlegg eftir brjóstnám og hádegisfyrirlestra sem eru haldnir annan hvern miðvikudag um allt milli himins og jarðar. „Þótt flest þau námskeið tengist að einhverju leyti heilbrigðismálum höfum við einnig boðið uppá námskeið allt annars eðlis eins og t.d. spænskunámskeið, Gott útlit– betri líðan, Rakstursnámskeið fyrir karla eða námskeið í skapandi skrifum, svo eitthvað sé nefnt. Allt er þetta án kostnaðar fyrir gesti,“ segir Sigrún brosandi og talar um að fólk, sem hefur reynslu af krabbameini á einn eða annan hátt, þurfi líka að hvíla hugann frá veikindunum og takast á við allt aðra hluti. „Við höfum einnig boðið konum, sem greinst hafa með brjóstakrabbamein, uppá flugukastveiði sem við nefnum „Kastað til bata“ en það verkefni hefur verið í gangi síðastliðin 5 ár. Annað verkefni sem við bjóðum upp á er „Karlarnir og kúlurnar“ en þar er körlum boðið upp á fræðslu og ekki síst að fara á golfvöllinn í góðum félags- skap. Þessi verkefni eru samstarfsverkefni Brjóstaheilla - Samhjálpar kvenna, Góðra hálsa, Frískra manna, Framfarar, Krabbameinsfélagsins og Krafts,“ segir Sigrún og nefnir einnig nýjasta verkefnið sem er samstarf Krabbameins- félagsins við FítonsKraft, sem er ný þjónusta á vegum Krabbameinsfélags Íslands og Krafts. „FítonaKraftur er endurhæfingar- íþrótta- og útivistar- hópur fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein. Því starfi er stýrt af Atla Má Sveinssyni, sem er með MA gráðu í íþróttafræði með sérhæfingu á sviði fólks sem greinst hefur með krabbamein. Í FítonsKrafti stundar fólk endurhæfingu og útivist undir handleiðslu sérfræðings á þeim hraða og miðað við þær forsendur sem fyrir hendi eru hjá hverjum og einum. Við erum mjög ánægð með samstarfið við Kraft í þessu verkefni sem hefur farið afar vel af stað og notið mikillar hylli.“ Viljum koma til móts við ólíkar kröfur Þegar hér er komið sögu er salurinn í hinni hlýlegu Ráð- gjafarþjónustu að fyllast – enda fyrirlestur að hefjast í hádeginu. Sigrún og hennar fólk ganga á milli gesta sem þegar hafa komið sér fyrir með veitingar og bíða þess að fyrirlestur dagsins hefjist. Að lokum nefnir hún alla stuðningshópa Krabbameinsfélagsins sem eiga náið sam- starf við Ráðgjafarþjónustuna og vinna ómetanlegt starf í sjálfboðavinnu í þágu krabbameinsveiks fólks og aðstand- enda þess. „Hingað eru allir hjartanlega velkomnir alla virka daga frá 09.00 – 16.00 til þess að þiggja það sem við höfum uppá að bjóða eða bara njóta samsvista við aðra,“ segir Sigrún og aðspurð um framtíðarsýn Ráðgjafarþjónust- unnar segir hún: „Það er mikilvægt að halda áfram að koma til móts við þær ólíku þarfir sem fólk hefur eftir greiningu krabbameins. Markmið okkar er alltaf að aðstoða einstaklinginn við að finna nýjar leiðir til að takast á við breyttar aðstæður. Það er svo ótal margt hægt að gera og við erum svo lánsöm að njóta samstarfs við svo marga aðila sem gera okkur það kleift. Ein gerum við lítið en með samvinnu margra er svo ótal margt hægt að gera,“ segir forstöðumaðurinn og hjúkrunarfræðingurinn í Ráðgjafarþjónustunni að lok- um og sest með gestum sínum og hlustar á áhugaverðan fyrirlestur um heilsusamlegar neysluvenjur. Boðið er upp á Qi-gong, í Ráðgjafarþjónustunni

x

Kraftur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kraftur
https://timarit.is/publication/982

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.