Kraftur - 01.01.2015, Page 23
23
Kraftur
1. tbl. 2015
Bókaumfjöllun
Ógnþrungið
ævintýri
Ástin, drekinn og dauðinn heitir
ný bók eftir Vilborgu Davíðsdóttur
Í bókinni lýsir hún vegferð sinni og eiginmanns hennar,
Björgvins Ingimarssonar, með sjúkdómi sem þau vissu
að myndi draga hann til dauða og fyrsta árinu eftir að
hún varð ekkja. Í fyrsta hluta bókarinnar segir Vilborg frá
því þegar Björgvin greinist með krabbamein í heila árið
2006 og velheppnaðri meðferð sem hann gekkst undir í
Edinborg þar sem fjölskyldan var þá búsett. Fimm árum
síðar tók meinið sig upp aftur og hálfu ári eftir það var
Björgvin allur. Bókin er fleyguð bloggpistlum sem Vilborg
skrifaði og vöktu mikla athygli á sínum tíma.
Ástin, drekinn og dauðinn veitir í senn innsýn í veröld
krabbameinsins og djúpa sorg þess sem hefur elskað og
misst. En hún er ekki síður óður til kærleikans, hvatning
til að lifa í árvekni og sættast við að dauðinn er órjúfan-
legur hluti af lífinu. Vilborg hefur hlotið lof fyrir skáld-
sögur sínar þar sem sterkar konur fyrri alda takast á við
örlög sín. Hér lendir hún sjálf í ógnþrungnu ævintýri
sem lætur engan ósnortinn. Bókin hefur hlotið afar góðar
viðtökur lesenda og gagnrýnenda sem eru á einu máli um
að þetta sé bók sem láti engan ósnortinn en um leið ómet-
anleg fyrir alla þá sem ganga í gegnum mikla sorg. Um
það vitna ótal ummæli um bókina. Kraftur mælir af öllu
hjarta með þessari bók sem ætti í raun að vera skyldu-
lesning á hverju heimili.
„Afskaplega raunsæ, falleg og algjörlega væmnislaus
lýsing á því hvernig það er að ganga í gegnum það að
maðurinn sem þú elskar greinist með banvænan sjúkdóm
… sterkasti hlutinn í bókinni er e.t.v. eftir að hann deyr …
Ég er mjög „impressed“ af þessari bók … Ég held að það
geti allir samsamað sig og fundið styrk í þessari bók – ein-
mitt út af þessu æðruleysi: Þetta er bara eitt af því sem
lífið réttir manni og maður bara vinnur úr því eins vel og
maður getur. Afrek.“ Friðrika Benónýsdóttir / Kiljan
„Úrvinnsla Vilborgar á þessu efni er einstaklega vönduð
og skemmst er frá því að segja að bókin sker hvaða harð-
jaxl sem er í hjartað. Hún er vel skrifuð og aldrei væmin,
myndræn og skáldleg og um leið er hún ofurraunsæ … Sorg
og dauða fylgir ekki bara táraflóð, sorg og reiði heldur
líka æðruleysi og nýr lærdómur. Um það fjallar Vilborg
ákaflega vel og viturlega. Áttatíu lítrar er víst meðaltalið
af tárum sem við fellum yfir ævina og hluta þeirra mun
lesandinn vafalítið fella við lestur þessarar fallegu bókar.“
Steinunn Inga Óttarsdóttir / Kvennablaðið
Vilborg Davíðsdóttir, rithöfundur.
Kápa bókarinnar, Ástin, drekinn og dauðinn