Kraftur - 01.01.2015, Síða 26

Kraftur - 01.01.2015, Síða 26
26 Kraftur 1. tbl. 2015 Aðventukvöld Krafts fór fram þann 4. desember í húsa- kynnum Ráðgjafarþjónustunnar í Skógarhlíðinni. Að þessu sinni var hin árlega jólastund félagsins veglegri en oft áður þar sem boðið var uppá létt jólahlaðborð með síldar- salati, paté, flatkökum og hangikjöti, rúgbrauði, laufa- brauði, piparkökum, konfekti og auðvitað vantaði ekki jólablönduna, Malt og Appelsín. Dúndufréttir hófu leikinn kl. 18.00 en það var fyrirtækið Dalpay sem bauð okkur uppá þessa frábæru hljómsveit og auk þess fékk félagið að gjöf geisladiska með hljómsveitinni sem það hefur selt í fjár- öflunarskyni. Jóhanna Hannesdóttir las upp út bók sinni 100 heilsuráð til langlífis og jólahappdrættið okkar sló öll met að þessu sinni – enda fengu nánast allir happdrættis- vinning. Bjarki Már Sigvaldason og Ástrós Rut eiginkona hans og nýkjörin stjórnarkona í Krafti, seldu falleg kerti til styrktar Neyðarsjóði Krafts og svo voru bolirnir okkar glæsilegu til sölu, ásamt geisladiskunum með Dúndurfrétt- um. Mæting var mjög góð og rúmlega 70 manns á öllum aldri skemmtu sér konunglega. Kraftur færir Dalpay, og öllum þeim góðu styrktaraðilum sem lögðu til happdrættis- vinninga og veitingar, alúðarþakkir. Aðventustund Krafts Viðburðir Viðburðir Krafts Bjarki og Ástrós seldu kerti til styrktar Krafti Dúndurfréttir héldu uppi fjörinu Aðventustundin var vel sótt

x

Kraftur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kraftur
https://timarit.is/publication/982

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.