Fréttablaðið - 10.05.2019, Síða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 0 7 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 1 0 . M A Í 2 0 1 9
Fréttablaðið í dag
SKOÐUN Sigurður Ingi Jóhanns-
son skrifar um umferðaröryggi. 10
SPORT Stjörnur Ajax eru eftir-
sóttar eftir gott gengi í Meistara-
deildinni. 14
MENNING Málað á bökkum
MeToo-fljóts, Hallgrímur Helga-
son sýnir málverk og teikningar
í Tveimur hröfnum. 20
LÍFIÐ Þrír af
fremstu tón-
listarmönnum
landsins skipa
tríóið GÓSS.
Þau voru að gefa
út ábreiðu af lagi
Bubba Morthens. 24
PLÚS 2 SÉRBLÖÐ l FÓLK
l LANDSBYGGÐIN
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
• Sex 30 milljóna króna vinningar á tvöfaldan miða
eða 15 milljónir króna á einfaldan miða
• Drögum út meira en 51 þúsund vinninga á árinu
Vinningar í hverri viku - Happdrætti DAS
Mestu vinningslíkurnar
- skynsamlegasti kosturinn
Vikulegir útdrættir
Fanney Davíðsdóttir er skynsöm og spila
r í Ha
ppd
ræt
ti D
AS
Kauptu miða á das.is eða í síma 561 77 57
Nýtt happdrættisár hefst í maí
Þúsundir háskólanema hafa á síðustu vikum þreytt lokapróf. Nú sér hins vegar fyrir endann á prófatörninni enda lýkur almennum lokaprófum í Háskóla Íslands í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
STJÓRNMÁL Allt leikur nú á reiði-
skjálfi innan Framsóknarflokksins
vegna innleiðingar þriðja orku-
pakkans. Andstæðingar málsins
eru sagðir beita sér af mikilli hörku
innan flokksins; bæði á samfélags-
miðlum, fundum og mannamótum.
Hart er tekist á í lokuðum hópum
flokksins á Facebook og eru þunga-
vigtarmenn sem mark er tekið á
innan grasrótarinnar sagðir hóta því
að segja sig úr flokknum og ganga til
liðs við Miðflokkinn taki þingmenn
flokksins ekki rétta afstöðu í málinu.
Þingmenn og ráðherrar f lokksins
eru sagðir ákveðnir í afstöðu sinni
með ríkisstjórninni en heimildir
blaðsins herma að vel finnist fyrir
þrýstingi andstæðinga málsins, þótt
um háværan minni hluta sé að ræða.
„Ég er ekki að fara neitt,“ segir
Frosti Sigurjónsson, leiðtogi og
helsti talsmaður Orkunnar okkar,
aðspurður um orðróminn. Hann
segir að á meðan hann nái eyrum
forystumanna flokksins og talsam-
band sé á milli þrífist hann vel innan
Framsóknarflokksins.
Frosti mætti á fund utanríkis-
málanefndar í gær til að gera grein
fyrir sjónarmiðum Orkunnar okkar.
Fundurinn var opinn fjölmiðlum en
athygli vakti að fulltrúi Miðflokks-
ins í utanríkismálanefnd, Gunnar
Bragi Sveinsson mætti ekki og held-
ur ekki varamaður hans í nefndinni,
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Margir gestir komu á fund
nefndarinnar auk fulltrúa Ork-
unnar okkar, þeirra á meðal fyrr-
verandi forseti EFTA-dómstólsins,
Carl Bau den bacher, sem Sigmund-
ur Davíð hefur lýst miklu dálæti á
enda maðurinn sem skrifaði dóm
EFTA-dómstólsins í Icesave-málinu.
Silja Dögg Gunnarsdóttir, þing-
maður Framsók nar f lok k sins,
segir að þótt umræðan sé hávær
í f lokknum sé meirihluti f lokks-
manna þögull um málið enda sé það
bæði flókið og torskilið. Margir fylg-
ist þó með á hliðarlínunni án þess að
blanda sér í umræðuna.
„Við erum auðvitað fyrst og
fremst Framsóknarf lokkur en
ekki afturhaldsafl,“ segir Silja Dögg
um afstöðu sína og annarra þing-
manna flokksins til málsins. Hún
vísar til þess að f lokkurinn hafi
sprottið úr Samvinnuhreyfingunni
og áherslan á samvinnu gildi ekki
bara um samvinnu við aðra flokka
heldur samvinnu við aðrar þjóðir
líka. – aá / sjá síðu 6
Orkan skekur Framsókn
Grasrót Framsóknarflokksins er sögð óánægð með afstöðu þingflokksins til þriðja Orkupakkans. Frosti Sigur-
jónsson fer þar fremstur í flokki en segist ekki á förum úr flokknum. Þingflokkurinn einhuga með málinu.
1
0
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
F
8
-0
A
1
C
2
2
F
8
-0
8
E
0
2
2
F
8
-0
7
A
4
2
2
F
8
-0
6
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
5
6
s
_
9
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K