Fréttablaðið - 10.05.2019, Page 6
Það er okkur í hag
að vera ekki að
birta þessar upplýsingar.
Frosti Sigurjónsson, talsmaður
Orkunnar okkar
Þó að þetta séu bara
tugir milljóna í
þetta sinn þá geta þetta
orðið hundruð milljóna eða
milljarðar síðar.
Eyþór Arnalds,
oddviti Sjálf-
stæðisflokksins í
Reykjavík
Grunn- og framhaldsnámskeið um NPA
Í samræmi við ákvæði reglugerðar 1250/2108, um notendastýrða
persónulega aðstoð (NPA), auglýsir félagsmálaráðuneytið eftir um-
sóknum um þátttöku væntanlegra notenda, aðstoðarmanna og um-
sýsluaðila á grunn- og framhaldsnámskeið um NPA.
Félagsmálaráðuneytið skipuleggur námskeiðin í samráði við hags-
munaaðila og munu grunnnámskeiðin vera haldin a.m.k. fjórum
sinnum árið 2019. Ekki liggur enn fyrir hver fjöldi framhaldsnám-
skeiða verður árið 2019 en það ræðst af fjölda umsækjenda.
Hvert grunnnámskeið tekur 16 klst. og skiptist á tvær vikur. Fyrri
vikuna verður kennt í tvo daga, frá kl. 09.00–13.00 og seinni vikuna
tvo daga, frá kl. 09.00–13.00.
Hvert framhaldsnámskeið tekur fjórar klst. fyrir notendur og ef not-
endur ætla einnig að annast umsýslu þá bætast við aðrar fjórar klst.
og verða þá alls átta.
Fyrsta grunnnámskeiðið verður haldið í húsnæði Framvegis Skeif-
unni 10b dagana 28. til 29. maí og 3. til 4. júní. Umsækjendum er
bent á að sækja um á vefsíðu Framvegis. https://www.framvegis.is/
Fólk sem býr á landsbyggðinni hefur tækifæri til þess að sækja þessi
námskeið hjá símenntunarstöðvum víðs vegar um landið.
Námskeiðslýsingu er hægt að nálgast á vefsíðu NPA hjá félagsmála-
ráðuneytinu á slóðinni https://www.stjornarradid.is/default.aspx?Pa-
geID=ca9c3fef-de0f-4ce0-96de-5bc7378b75d2
Þeir ganga fyrir á námskeiðinu í maí sem eru að gera sína fyrstu
samninga á árinu 2019.
Umsóknarfrestur er til 20. maí 2019.
Fleiri grunn- og framhaldsnámskeið munu vera haldin frá september
til nóvember 2019.
Félagsmálaráðuneytinu, 9. maí 2019.
Félagsmálaráðuneytið
merki á íslensku og ensku
Skjaldarmerki í 5lit með silfur í krossi – til smækkunar
í CMYK
Offsetprentun og öll almenn prentun. Ekki ætlað skjámiðlum.
Til nota í bréfsefni ráðuneytisins.
FÉ LAGS MÁLARÁÐ U N EYT IÐ
Ministry for Social Affairs
FÉ LAGS MÁLARÁÐ U N EYT IÐ
REYKJAVÍK Borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins setja fyrirvara um
að skrifa undir ársreikning Reykja-
víkurborgar fyrir árið 2018. Telja
þeir nauðsynlegt að álit endurskoð-
unarnefndar Reykjavíkurborgar
um réttaráhrifin liggi fyrir áður en
hann er afgreiddur endanlega.
Stefnt er að því að skrifa undir árs-
reikninginn á fundi borgarstjórnar
á þriðjudaginn. Samkvæmt heim-
ildum er álit endurskoðunarnefndar
tilbúið en verður ekki opinberað
fyrr en á fundi borgarráðs á fimmtu-
dag í næstu viku.
Eyþór Arnalds, oddviti Sjálf-
stæðisf lokksins, segir réttast að
setja fyrirvara um að óvissa sé með
réttarfarsleg áhrif undirritunar.
„Við viljum ekki samþykkja ein-
hverjar gjörðir sem kunna að vera
ólögmætar, bæði í braggamálinu og
í öðrum málum,“ segir Eyþór.
Fram kemur í minnisblaði fjár-
málaskrifstofu borgarinnar frá því
í mars síðastliðnum að undirritun
ársreiknings jafngildi því að sam-
þykkja öll fjárútlát sama hvort þau
hafi farið fram úr fjárheimildum.
Fram kom í skýrslu innri endur-
skoðunar, sem kom út rétt fyrir jól,
að braggaverkefnið við Nauthólsveg
100 hafi farið 73 milljónir króna
fram úr fjárheimildum. Segir Eyþór
einnig f leiri greiðslur falla þarna
undir, sem komu fram í skýrslu
innri endurskoðunar frá því fyrr í
vor um Mathöllina við Hlemm og
þrjú önnur verkefni.
„Við vildum fá niðurstöðu í það
hvort þetta sé rétt, því ef það dugar
einfaldlega undirskrift frá borgar-
fulltrúum þá þarf ekkert eftirlit eða
heimildir. Þá væri hægt að greiða út
og láta borgarfulltrúa kvitta undir
það ári síðar,“ segir Eyþór. Sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins er
álitið tilbúið, aðspurður hvort það
sé tilviljun að álitið verði ekki lagt
fram fyrr en eftir undirritun árs-
reikningsins segir Eyþór það vera í
það minnsta óheppilegt.
„Það er enn þá tími fram á þriðju-
daginn að leiðrétta þetta þannig að
við fáum upplýsingarnar, en eins og
þessu er stillt upp er verið að bíða
með að fá niðurstöðu endurskoð-
unarnefndar þangað til eftir að búið
er að staðfesta ársreikninginn.“
Segir Eyþór því nauðsynlegt að
setja fyrirvara. „Það er óheimilt
samkvæmt sveitarstjórnarlögum
að borga út án heimildar. Það er
mjög skýrt. Ef við samþykkjum
slíkan gjörning þá erum við búin að
setja fordæmi. Þó að þetta séu bara
tugir milljóna í þetta sinn þá geta
þetta orðið hundruð milljóna eða
milljarðar síðar ef það dugar bara
að kvitta undir ársreikninginn.“
arib@frettabladid.is
Setja fyrirvara við
ársreikning borgarinnar
STJÓRNMÁL „Það er Landsvirkjun,
sem þjóðin á, í hag að halda upp-
lýsingum um raforkuverð fyrir sig
og það hræðir ekki samningsaðil-
ana að fá upplýsingar um hvað
keppinautar þeirra eru að kaupa
rafmagnið á heldur er það þeim í
hag,“ sagði Frosti Sigurjónsson á
fundi með utanríkismálanefnd um
þriðja orkupakkann í gær. Frosti var
gestur nefndarinnar ásamt nokkr-
um félögum sínum í samtökunum
Orkan okkar.
Það var Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir, þingmaður Viðreisnar,
sem spurði Frosta um afstöðu hans
til aukinnar kröfu í orkupakkanum
um gagnsæi og upplýsingagjöf um
raforkuverð.
„Hvort sem við erum sammála
um samkeppni á orkumarkaði eða
ekki, þá er með orkupakkanum
meðal annars verið að þrýsta á
gagnsæi og upplýsingaöf lun sem
skiptir gríðarlega miklu máli varð-
andi raforkuverð til heimila,“ sagði
Þorgerður og bætti við athuga-
semd um að stórnotendur óttuðust
nákvæmlega þetta; aukið gagnsæi,
enda geti verið að þeirra samnings-
staða gagnvart ríkisfyrirtækjum
verði ekki eins góð fyrir vikið.
Frosti svaraði Þorgerði með þeim
hætti að það væri ekki í þágu hags-
muna þjóðarinnar að gagnsæi ríkti
um raforkuverð til stóriðjunnar.
„Það er okkur í hag að vera ekki að
birta þessar upplýsingar og reyna
að ná sem bestum samningum við
hvern og einn og standa sterkar
aðþessu sem þjóð, þannig getum
við fengið hærra verð fyrir orkuna,“
sagði Frosti.
Fulltrúar Landsvirkjunar og
Landsnets komu einnig á fund
nefndarinnar og innti Bryndís Har-
aldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, þá eftir því hverjir hefðu
helst hag af því að innleiða ekki
orkupakkann. Hörður Arnarson,
forstjóri Landsvirkjunar, svaraði
því þannig til að ákveðin stóriðju-
fyrirtæki sæju hag sinn í því að
það myndi veikja samningsstöðu
Landsvirkjunar gagnvart þeim.
Fulltrúar beggja ríkisfyrirtækj-
anna lýstu því einnig á fundinum
að frá því innleiðing evrópska orku-
regluverksins hófst hefði samnings-
staða þeirra styrkst verulega og arð-
semi þeirra fyrir þjóðarbúið aukist.
Ekki virtust þó allir gestir nefnd-
arinnar á þeirri skoðun að Lands-
virkjun ætti að leita bestu samn-
inga. Þannig gagnrýndi varaforseti
ASÍ, Vilhjálmur Birgisson, Lands-
virkjun fyrir fyrir mjög hátt verð á
raforku til Elkem á Grundartanga.
Fundurinn sem stóð frá kl. 13 til
18 var opinn fjölmiðlum. Athygli
vakti að enginn þingmanna Mið-
flokksins var á fundinum en Gunn-
ar Bragi Sveinsson er aðalmaður í
utanríkismálanefnd. Varamaður
hans í nefndinni er Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson. Hvorugur
þeirra var við þingstörf þegar fyrri
umræða um málið fór fram í þingsal
en Miðflokkurinn hefur lagst hart
gegn því.
Eini þingmaðurinn úr hópi þeirra
sem lýst hafa andstöðu við málið og
sat fundinn í gær var Inga Sæland,
formaður Flokks fólksins.
Meðal annarra gesta fundar-
ins var fyrrverandi dómari EFTA-
dómstólsins og var hann spurður
ítarlega um ýmsar fullyrðingar sem
deilt hefur verið um í umræðunni
hér á landi um orkupakkann.
Fulltrúar Orkunnar okkar sátu
fyrir svörum nefndarinnar í tæpa
eina og hálfa klukkustund. Nokkrir
nefndarmenn hrósuðu þeim fyrir
skjóta uppbyggingu fjöldasamtaka
um málið en brýndu einnig fyrir
þeim að vanda sig í umræðunni og
halda ekki á lofti villandi eða röng-
um staðhæfingum. Þorgerður Katr-
ín sagði þetta ekki í fyrsta skipti
sem alið er á ranghugmyndum og
hræðsluáróðri og rifjaði upp þegar
annar orkupakkinn var á dagskrá.
Þá hafi forystumenn í Framsóknar-
f lokknum verði lagðir í einelti og
ríkisstjórnin öll setið undir miklum
ákúrum um að raforkuverð myndi
stórhækka og við værum að gefa
orkuna frá okkur.
adalheidur@frettabladid.is
Orkan okkar andvíg
gegnsæi um orkuverð
Frosti Sigurjónsson, segir ekki til hagsbóta að auka gegnsæi um raforkuverð.
Landsvirkjun eigi að nýta upplýsingaleynd í samningum. Forstjóri Lands-
virkjunar segir stóriðju helst hafa hag af því að innleiða ekki orkupakkann.
Umræður voru fjörugar á fundinum og þurfti formaðurinn að stýra fundi af nokkurri festu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
DÓMSMÁL Lögreglu verður skylt að
upplýsa þolanda kynferðisbrots um
framgang málsins meðan á rann-
sókn stendur og fær réttargæslu-
maður að spyrja ákærða spurninga
fyrir dómi. Þetta er meðal tillagna
stýrihóps um úrbætur að því er
varðar kynferðislegt ofbeldi.
Hildur Fjóla Antons-
dót t ir, dok torsnemi í
réttar félagsfræði, kynnti
tillögurnar á ráðstefnu um
réttarstöðu þolenda kyn-
ferðisof beldis í Háskól-
anum í Reykjavík.
„Að vita lítið eða
ekkert um framgang
lög reg lu r a nnsók na r
getur valdið brotaþolum miklum
kvíða og óöryggi, og jafnvel sett
þá í hættu. Þetta getur verið langt
angistarferli,“ sagði Hildur Fjóla,
en hún hefur rannsakað málið með
viðtölum við þolendur. Það sé ekki
aðeins niðurstaða sakamáls sem
skipti þolendur máli heldur
hvernig staðið sé að málinu.
Benti hún á að nú sé það ekki
skylda af hálfu lögreglu að
upplýsa þolanda um framgang
málsins og getur það leitt til
þess að þolandi veit ekkert
hvar málið er statt fyrr en
það er ýmist fellt niður eða
dómur fellur. Nefndi hún
einnig að þolendur hefðu
viljað sitja í réttarsal þegar ákærði
ber vitni.
Í erindi sínu nefndi Hildur Fjóla
að í Noregi hafi staða þolenda verið
styrkt árið 2008. Er það nú grunn-
skilyrði að þolendur hafi eitthvað
að segja um mál sem þeir eiga aðild
að. Má brotaþoli nú bera vitni við
byrjun réttarhalda og því sitja í
gegnum þau öll. Einnig getur réttar-
gæslumaður spurt spurninga fyrir
hönd þolanda og fær þolandi einnig
að ávarpa dóminn. Þórdís Kolbrún
R. Gylfadóttir dómsmálaráðherra
fór yfir aðgerðir stjórnvalda á fund-
inum. Sagði hún það skýran vilja að
taka á málum þolenda kynferðis-
afbrota af festu. – ab
Lögregla þurfi að upplýsa þolendur
Hildur Fjóla
Antonsdóttir.
1 0 . M A Í 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
0
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
F
8
-3
6
8
C
2
2
F
8
-3
5
5
0
2
2
F
8
-3
4
1
4
2
2
F
8
-3
2
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
9
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K