Fréttablaðið - 10.05.2019, Page 11

Fréttablaðið - 10.05.2019, Page 11
Í DAG Þórlindur Kjartansson Yfirlit yfir aomu ársins 2018 2018 2017 Efnahagsreikningur (í milljónum kr.) A deild V deild B deild Samtals Samtals Eignahlutir í félögum og sjóðum 42.190 7.505 3.539 53.234 48.049 Skuldabréf 120.833 21.493 9.913 152.239 107.655 Bundnar bankainnstæður 6.059 1.078 0 7.137 1.448 Kröfur 1.031 183 188 1.402 22.871 Óefnislegar eignir 127 23 0 150 146 Varanlegir rekstrar„ármunir 121 21 0 142 104 Handbært fé 1.469 261 962 2.692 12.978 Skuldir -346 -61 -203 -610 -2.693 Hrein eign til greiðslu lífeyris 171.484 30.503 14.399 216.386 190.559 Breyting á hreinni eign (í milljónum kr.) Iðgjöld 9.885 2.926 1.736 14.547 50.373 Lífeyrir -2.859 -248 -2.564 -5.671 -4.517 Hreinar „árfestingatekjur 10.326 1.791 788 12.905 12.639 Rekstrarkostnaður -330 -56 -126 -512 -426 Aðrar tekjur 0 0 6 6 0 Breyting á hreinni eign til greiðslu lífeyris 17.022 4.413 -160 21.275 58.069 Hrein eign frá fyrra ári 154.462 26.090 10.007 190.559 128.475 Sameining við Lífeyrissjóð starfsmanna Kópavogsbæjar/ER 0 0 4.552 4.552 4.015 Hrein eign til greiðslu lífeyris 171.484 30.503 14.399 216.386 190.559 Kennitölur Nafnávöxtun 6,3% 6,3% 4,7% 6,2% 7,9% Hrein raunávöxtun 3,0% 3,0% 1,4% 2,9% 6,0% Raunávöxtun (5 ára meðaltal) 4,3% 4,3% 3,7% 4,2% 4,5% Raunávöxtun (10 ára meðaltal) 3,6% 3,6% 3,6% 2,0% Hrein eign umfram heildarskuldbindingar -15.144 -860 -12.555 Virkir sjóðfélagar 12.892 4.583 217 17.692 16.665 Fjöldi lífeyrisþega 4.306 1.144 1.686 7.136 6.512 Hrein eign umfram áfallnar skuldbindingar 14,6% 1,2% Hrein eign umfram heildarskuldbindingar -4,9% -1,2% Sigtúni 42 I 105 Reykjavík I sími 540 0700 I li¤ru@li¤ru.is Ársfundur 2019 Bi rt m eð fy rir va ra u m p re nt vil lu r. Ársfundur Brúar lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga verður haldinn mánudaginn 27. maí kl. 16.30 í húsakynnum sjóðsins að Sigtúni 42, Reykjavík. Allir sjóðfélagar, fulltrúar launagreiðenda og viðkomandi sté¦arfélaga eiga ré¦ til fundarsetu á ársfundinum. Sjóðfélagar eru hva¦ir til að mæta á fundinn. Reykjavík 30. apríl 2019 Stjórn Brúar lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga Dagskrá 1. Skýrsla stjórnar 2. Ársreikningur 2018 3. Tryggingafræðileg athugun 4. Fjárfestingastefna sjóðsins kynnt 5. Kynningar á breytingum samþykkta sjóðsins 6. Önnur mál Allar árhæðir í milljónum króna Dómgæslustörf í íþróttum eru að jafnaði fremur van-þakklát. Helvítis dómar- arnir þurfa að vera tilbúnir til þess að leyfa alls konar skömmum og svívirðingum að rigna yfir sig frá leikmönnum, þjálfurum og áhorfendum. Þeir eiga enga aðdáendur. Þeir eiga heldur ekki neinn möguleika á því að koma út úr leikjum sem sigurvegarar og verða yfirleitt ekki frægir nema að endemum. Það er bara þegar þeir klúðra einhverju sem athyglin beinist að þeim. Þetta er mjög ólíkt veruleika leik- manna. Ef knattspyrnukonu tekst að skora úr ólíklegri stöðu með yfirburðasparktækni, eða körfu- boltamaður neglir niður þristi í ójafnvægi um leið og brotið er á honum þá gera áhorfendur sitt allra besta til þess að rífa þakið af húsinu eða feykja burt skýjunum af himn- inum með fagnaðarlátum sínum. Þegar dómara tekst að dæma réttilega um mjög erfitt atriði þá hleypur hann ekki sigurhring á vellinum, rífur sig úr bolnum og dansar við hornfánann. Réttur dómur er einfaldlega það sem ætlast er til. Enginn fagnar honum. Þrátt fyrir þetta finnst alltaf fólk sem er tilbúið að sinna dómara- störfum í íþróttum. Og í öllum helstu íþróttum á Íslandi er mikill metnaður í dómgæslunni. Dóm- arar undirbúa sig fyrir tímabil með námskeiðahaldi, úthaldsæfingum, prófum og margs konar funda- haldi. Þeir leggja sig hart fram um að sinna hlutverki sínu vel og af trúmennsku þótt þakkirnar séu oft af skornum skammti. Heiðarleg mistök Allir vita að íþróttamenn gera mistök. Þeir skjóta framhjá úr opnum færum, brenna af vítum á ögurstundu, gefa boltann á and- stæðinginn, gleyma að dekka menn í hornspyrnum og þar frameftir götunum. Stór mistök geta snúið allri stríðsgæfu liðanna og sum geta framkallað reiði og pirring samherja og aðdáenda. En að láta sér detta í hug að leikmaður klúðri vísvitandi er óhugsandi. Slík svik væru ekki bara við liðið og áhorf- endur heldur við leikinn sjálfan. Dómarar gera líka mistök og mjög oft finnst leikmönnum og áhorfendum hárréttur dómur vera kolrangur. Flestir dómarar læra fljótt á ferlinum að einangra sig frá hávaða leiksins. Þeir læra að vega og meta hvenær rétt er að hlusta á kvabbið í leikmönnum, hvenær er óhætt að viðurkenna vafa og hvenær þeir þurfa að að setja alla sína sannfæringu í dóm sem þeir geta ekki í hjarta sínu verið 100% vissir um að sé réttur. Almennt þurfa dómarar því að koma sér upp nokkuð hörðum skráp. Þeir þurfa að hafa skilning á því að leikmennirnir eru í harðri keppni og hafa lagt sig alla fram um að ná árangri. Góðir dómarar kippa sér því oftast ekki mikið upp við það þótt leikmenn fórni stundum höndum og rífist og skammist yfir einstökum dómum. Eitt er það þó sem leikmenn mega aldrei segja við dómara og varðar nánast alltaf umsvifa- lausri brottvísun. Það er ef leik- maður lætur sér detta í hug að saka dómara um að svindla viljandi andstæðingnum í hag. Með því er nefnilega ekki bara verið að saka dómarann um svindl, heldur um Í liði með leiknum sjálfum svik. Dómararnir eru nefnilega í liði þótt þeir geti hvorki unnið eða tapað í sínum leik. Þeir eru í liði með leiknum sjálfum. Svindlað á kerfinu Góðir íþróttamenn vita mætavel að þótt þeir geti orðið reiðir út í dómara þá gæti leikurinn ekki farið fram án þess að einhver gætti ekki bara sinna eigin hags- muna heldur leiksins sjálfs. Jafn- vel skapbráðustu íþróttamenn vita það innst inni að þótt þeir vilji fyrir alla muni sigra þá þurfa þeir líka að halda með leiknum sjálfum. Jafnvel bestu dómarar í íþróttum ættu fullt í fangi með að dæma leiki ef leikmennirnir hirtu nákvæmlega ekkert um dreng- skap og leikreglur. Allir þurfa að taka sinn hluta af ábyrgðinni á leiknum sjálfum ef vel á fara. Þessi hugsun á miklu víðar erindi en inni á keppnisvelli íþróttanna. Stjórnmálamaður sem notar viljandi ósannindi til að afla sér stuðnings er ekki bara að svindla á mótherjum sínum. Hann er að skemma stjórnmálin sjálf. Blaðamaður sem er ósanngjarn og viljandi hlutdrægur í skrifum sínum er ekki aðeins að svíkja les- endur sína. Hann er að grafa undan hlutverki fjölmiðla í lýðræðislegu samfélagi. Viðskiptamógúlar sem gera allt sem þeir geta til að losa sig sjálfa og fyrirtæki sín undan skattgreiðslum eru ekki bara að hlunnfara ríkisvaldið. Þeir ógna tiltrú samfélagsins á það skipulag markaðsfrelsis sem gerir auðæfi þeirra möguleg. Engin sæmd felst í því að vinna með svindli. Allir þeir sem keppa í lífi eða leik eða taka þátt í samfélagi með öðru fólki þurfa að halda bæði með sjálfum sér, sínu liði og leiknum sjálfum. S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11F Ö S T U D A G U R 1 0 . M A Í 2 0 1 9 1 0 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :2 5 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 F 8 -3 6 8 C 2 2 F 8 -3 5 5 0 2 2 F 8 -3 4 1 4 2 2 F 8 -3 2 D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 9 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.