Fréttablaðið - 10.05.2019, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 10.05.2019, Blaðsíða 18
Ferrell viðurkenndi að hann væri mikill aðdáandi keppninnar og horfði reglulega á. Benedikt Bóas Hinriksson benediktboas@frettabladid.is Margt er farið að skýrast með Eurovision-mynd Wills Ferrell. Samkvæmt erlendum fjölmiðlum er Rachel McAdams sögð ætla að taka að sér aðalhlutverkið í myndinni. Hún er þekkt fyrir hlutverk sitt í The Notebook, Mean Girls og Spot- light, svo nokkrar myndir séu nefndar. Ferrell sló í gegn meðal Eurovision-aðdáenda þegar hann birtist skyndilega í Portúgal og spjallaði við íslenska hópinn. Staðfest hefur verið að tökur muni halda áfram í Tel Avív og að leikar- inn ætli að mæta aftur á svæðið. Netflix gefur myndina út en ekki er komin dagsetning á hana. Ferrell viðurkenndi að hann væri mikill aðdáandi keppninnar og horfði reglulega á. Hann mun skrifa handritið sjálfur ásamt Andrew Steele sem hefur séð um að skrifa fyrir SNL. Jessica Elbaum og Adam McKay verða einnig við stjórnartaumana. David Dobkin mun leikstýra en hann sat í leik- stjórastólnum í Wedding Crashers. Vinnutitillinn er ekkert sérlega flókinn því þar er verið að vinna með Eurovision. Í Portúgal blandaði hann geði við íslenska hópinn og spjallaði meðal annars við Ara Ólafs- son söngvara, sem söng framlag Íslands í keppninni. Samkvæmt fréttum sagði Ari honum nokkra brandara sem Ferrell hló að. Eiginkona Ferrells er sænsk, Viveca Paulin, og hefur hann sagt að áhugi hans á keppninni hafi kviknað 1999 þegar þau fóru í sænskt Eurovision-partí. Síðan þá hefur hann kveikt á sjónvarpinu í hvert sinn sem hann getur. Vitað er að ísraelska sjónvarpið hefur boðið honum að stíga á svið á seinna undanúrslitakvöldinu en ekki hefur fengist staðfest hvort hann hafi þekkst boðið. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hugmynd hefur verið viðruð um að gera kvikmynd um Eurovision. Árið 2007 ætlaði Dan Bazer, sem gerði Borat, að skrifa handrit að Eurovision – the movie. Snillingur- inn Sacha Baron Cohen átti meira að segja að leika aðalhlutverkið. Það varð þó ekkert úr þeirri mynd. Will Ferrell verður með Hatara í Ísrael Eurovision-aðdáandinn Will Ferrell mun mæta til Ísraels til að halda áfram tökum á mynd sinni um keppn- ina sem Netflix áætlar að gera. Hann verður því í skotlínu Hatara í Ísrael. Will Ferrell er einhver albesti grínleikari heims. Hér er hann í hlutverki Rons Burgundy. NORDICPHOTOS/GETTY Netta kom sá og sigraði í fyrra með sínu magnaða lagi. Hin ísraelska Dana International gæti komið við sögu í myndinni. Mögnuð kona með magnaða sögu. Það hefur margt skrýtið og skemmtilegt komið á svið í Eurovision en yfirleitt er mesta fjörið fyr- ir utan sviðið. Hér er það Lordi frá Finnlandi að stíga á sviðið. Ari Ólafsson og Will Ferrell á keppninni í fyrra. Ferrell er mikill aðdáandi Eurovision og hefur verið í hartnær 20 ár. 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 0 . M A Í 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U R 1 0 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :2 5 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 F 8 -2 C A C 2 2 F 8 -2 B 7 0 2 2 F 8 -2 A 3 4 2 2 F 8 -2 8 F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 5 6 s _ 9 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.