Fréttablaðið - 10.05.2019, Qupperneq 35
Við byrjuðum með
þriggja daga ferðir
út í Fjörður. Þá komu
eingöngu Íslendingar en
síðan óx þetta og dafnaði
með auknum fjölda
erlendra túrista.
Stefán Helgi Kristjánsson
Stefán Helgi Kristjánsson bóndi segir að ferðaþjónustan hafi gengið ágætlega í vetur
en aðalvertíðin sé að hefjast og
bókunarstaðan góð, svipuð og
undanfarin ár. „Flestir viðskipta-
vinir eru erlendir ferðamenn en
einstaka Íslendingar koma og
við viljum gjarnan fá f leiri. Við
úthýsum engum,“ segir Stefán
Helgi glaðbeittur en hann hefur
rekið ferðaþjónustuna frá árinu
1985 eða löngu áður en þetta orð
var fundið upp, eins og hann orðar
það. „Við byrjuðum með þriggja
daga ferðir út í Fjörður. Þá komu
eingöngu Íslendingar en síðan óx
þetta og dafnaði með auknum
fjölda erlendra túrista. Við byrj-
uðum með 15 hesta en þeir eru 180
í dag,“ útskýrir Stefán.
„Við bjóðum upp á teymingu
fyrir börn og allt upp í sex daga
ferðir austur á Raufarhöfn og Mel-
rakkasléttu. Þá er gist í Öxarfirði.
Ég hef alltaf farið með í ferðirnar
og geri það enn þótt ég sé farinn að
eldast,“ segir hann.
Hundar, kettir og hænur
„Eftir að Vaðlaheiðargöngin voru
opnuð erum við orðin útnári.
Grenivík er endastöð á leiðinni út
fjörðinn. Það hefur dregið mikið
úr bílaumferð fram hjá okkur eftir
að göngin komu. Áður voru menn
komnir hálfa leið hingað þegar
þeir fóru yfir Víkurskarðið á leið
austur. Það þyrfti að merkja leiðina
til Grenivíkur betur þegar fólk
kemur að austan,“ segir Stefán en
vonast til þess að fólk geri sér ferð
inn í þessa fallegu sveit í sumar og
fái sér reiðtúr hjá Pólar Hestum.
Á bænum er rekin gistiþjónusta
fyrir þá sem koma í reiðtúra. Stefán
er með bæði innlent og erlent
starfsfólk en hestarnir eru tamdir
á staðnum. Þá er hann auk hesta
með 200 fjár, hunda, ketti, hænur,
kanínur og fleira sem vekur athygli
ferðamanna. „Fólk heilsar oft
hundinum fyrst þegar það kemur
hingað,“ segir hann léttur í bragði.
Reiðtúrar yfir í Mývatnssveit
Þegar Stefán er spurður hvaða
ferðir séu vinsælastar hjá honum er
hann fljótur til svars. „Það eru reið-
túrar yfir í Mývatnssveit og austur
á Melrakkasléttu. Það er sex daga
ferð og hefur verið gríðarlega vin-
sæl. Sömuleiðis hefur verið vinsælt
að koma hingað og fara í styttri
ferðir, til Grenivíkur og kringum
Höfðann en þaðan er fallegt útsýni
út Eyjafjörðinn. Hægt er að bóka
slíka ferð með stuttum fyrirvara.
Á þessum stöðum eru mjög góðar
reiðleiðir. Margir sem koma til
okkar hafa aldrei sest á bak áður
en hafa virkilega gaman af svona
ferðalagi. Þeir sem eru vanir taka
lengri túra,“ segir hann.
Góðar gönguleiðir
Stefán segir að best sé að bóka
ferðina fyrirfram. Þá eru hest-
arnir tilbúnir þegar fólk kemur
á staðinn. „Við erum með alla
f lóruna í hestum, jafnt fyrir byrj-
endur, trausta og góða gæðinga,
sem lengra komna. Það er gott
verð hjá okkur á reiðtúrunum og
við bjóðum alltaf upp á kaffi og
kökur af þeim loknum. Síðan erum
við með mínígolf og silungsveiði.
Grýtubakkahreppur og Grenivík
eru að verða falin paradís eftir að
göngin komu í Vaðlaheiðina. Hér er
falleg sveit sem býður upp á mikla
afþreyingarmöguleika. Margir
verða dolfallnir yfir fegurðinni hér.
Maður sér ekki allan fjallahringinn
frá Akureyri. Laufás er fallegur
staður og er á leiðinni hingað. Víða
er hægt að fá gistingu, fara í kajak-
ferðir, versla og fara út að borða.
Hér eru líka margar góðar göngu-
leiðir sem við getum bent á og
fuglalíf fjölskrúðugt í mýrlendinu
hér,“ segir Stefán og bendir á að
vinsælt sé að fara í jeppaferðir
norður í Fjörður, Hvalvatnsfjörð og
Flateyjardal þar sem er eyðibyggð
en þangað hefur verið talsverð
umferð af Íslendingum.
Hægt er að bóka ferð hjá Pólar
Hestum á heimasíðunni www.
polarhestar.is eða hringja í síma
463 3179. Fylgist með á Facebook.
Reiðtúrar um fallegar sveitir
Pólar Hestar er ein af elstu hestaleigum landsins, staðsett á bænum Grýtubakka 2 sem er 4 km
frá Grenivík. Hjá Pólar Hestum er boðið upp á lengri og styttri reiðtúra um fallegar sveitir þar sem
fegurð fjallahringsins blasir við reiðmönnum. Ferð í Mývatnssveit hefur verið mjög vinsæl.
Hjá Pólar Hestum eru farnar vinsælar hestaferðir.
Það er gott að njóta sveitalífsins. Hér virðir Stefán Helgi fyrir sér sveitina sína. Það eru 180 hestar á bænum sem henta fyrir bæði óvana og vana hestamenn.
Grýtubakki 2 er í 4 kílómetra fjarlægð frá Grenivík.
KYNNINGARBLAÐ 17 F Ö S T U DAG U R 1 0 . M A Í 2 0 1 9 LANDSBYGGÐIN
1
0
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
F
8
-5
4
2
C
2
2
F
8
-5
2
F
0
2
2
F
8
-5
1
B
4
2
2
F
8
-5
0
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
9
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K