Fréttablaðið - 10.05.2019, Side 54

Fréttablaðið - 10.05.2019, Side 54
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Benedikt Bóas Hinriksson benediktboas@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is Einkaþjálfarinn Svava Sig-bertsdóttir hefur gert það gott undanfarið sem þjálfari í Bretlandi með þjálfunarkerfi sitt, The Viking Method. Við gerð þess not- aði hún áralanga reynslu í að sníða þjálfunar- og æfingakerfi sem er vænlegt til árangurs. Svava hafði starfað sem einkaþjálfari um skeið þegar hún fór að átta sig á mikilvægi þess að rækta andlegu hliðina þegar fólk var í leit að meira en líkamlegri hreysti. Hún áttaði sig á að það var einfaldlega ekki nóg að hreyfa sig og borða hollt, væri hugarfarið ekki á réttum stað. Svava býr í London en þar þjálfar hún margar af stærstu stjörnum Breta, sem sumar líta á hana sem góðan vin. Nú á dögunum kom út fyrsta bók Svövu þar sem hún fer yfir grundvöll hugmyndafræðinn- ar á bak við The Viking Method. Í bókinni er líka fjöldinn allur af upp- skriftum og leiðbeiningum til að fá sem mest út úr mataræðinu. Í Frétta- blaði morgundagsins verður viðtal við Svövu þar sem hún ræðir lífið í London, harkið fyrstu árin og útúr- snúninga bresku götupressunnar. Meðfylgjandi eru nokkrar upp- skriftir úr bók Svövu, en hún leggur mikið upp úr einfaldri og fljótlegri matargerð þar sem flest er leyfilegt nema kúamjólk. Meira um það í blaðinu á morgun. Rjómakennd papriku- og karrísúpa 1 tsk. kókosolía 1 blaðlaukur 4 paprikur, rauðar eða gular, fræ- hreinsaðar og niðurskornar 4 hvítlauksgeirar 1 msk. karrí 400 g vegan rjómaostur 180 g chili-sósa 1 grænmetisteningur blandaður við hálfan lítra af vatni 250 ml mjólkurlaus rjómi, t.d. úr soja eða kókoshnetum Paprikuduft Sjávarsalt og nýmalaður pipar Fyrst fer kókosolían á pönnu sem er nóg stór fyrir allt sem fara á í súpuna. Láttu hana á miðlungshita. Bættu svo blaðlauknum á pönnuna og leyfðu honum að stikna í nokkr- ar mínútur, hrærið í á meðan beðið er eftir því að hann mýkist. Næst er paprikunum bætt út í og hrært vel í svo þær baðist vel í olíunni. Leyfið þessu að malla í nokkrar mínútur í viðbót. Þá er hvítlaukurinn og karríið sett út í, hrært vel saman og látið steikjast í 1 mínútu. Setjið rjóma- ostinn út í ásamt soðinu, rjómanum og paprikukryddinu (eftir smekk). Kryddið með saltinu og piparnum. Látið þetta sjóða í 5 mínútur á meðan hrært er reglulega í pott- inum. Að lokum er öllu blandað saman með töfrasprota. Fíkjusalat Þetta salat segir Svava vera mjög gott fyrir beinin, ríkt af kalki, C-vítamíni og magnesíum en samt bragðgott og létt. Rifið grænkál Epli, skorið í þunnar sneiðar Valhnetur, niðurskornar Fíkjur, skornar í báta Granateplafræ Öllu blandað vel saman. Gott er að blanda reyktum makríl saman við eða brúnum hrísgrjónum. Berjaþeytingur Loka – fullur af andoxunarefnum 70 grömm bláber 70 grömm hindber 5 jarðarber, skorin í helminga 70 grömm mangó Þumalstærð af engifer Allt sett í blandara með smá slettu af vatni. Vatni bætt við eftir hentisemi til að ná réttri þykkt og áferð. Bók Svövu, The Viking Method, fæst í Eymundsson og á Amazon.uk. steingerdur@frettabladid.is Einfaldar uppskriftir Svövu Sigbertsdóttur einkaþjálfara Svava bjó til þjálfunarkerfið The Viking Method, þar sem hún leggur áherslu á að fólk þjálfi og hugsi eins og víkingar. Hún vill að fólk borði einfaldan en hollan mat. Hér eru nokkrar hollar en bragðgóðar uppskriftir frá henni. Svava segir að það sé gott að bæta kjúklingi í súpuna fyrir þá sem það vilja. MYND/NORDICPHOTOS Salatið er fullt af kalki, C-vítamíni og magnesíum. MYND/SMITH & GILMOR LTD Þeytingurinn er einfaldur og fljótlegur en fullur af andoxunarefnum. MYND/SMITH & GILMOR LTD 1 0 . M A Í 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R26 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 309kr. SÚRDEIGS PIZZA DEIG 220g ÞÚ FINNUR SUPER1 Á ÞREMUR STÖÐUM HALLVEIGARSTÍG 1 FAXAFENI 14 SMIÐJUVEGI 2 OPIÐ 10:00 - 22:00 ALLA DAGA MJÖG GOTT - MJÖG GOTT - MJÖG GOTT VERÐ HEFUR ÞÚ PRÓFAÐ AÐ GRILLA PIZZU? HÁGÆÐA PIZZA SÚRDEIG FERSKT OG FLOTT HÁGÆÐA PIZZA SÚRDEIG FERSKT OG FLOTT 299kr. PIZZADEIG FÍNT 400g 299kr. PIZZADEIG HEILHVEITI 400g 399kr. PIZZADEIG GLÚTEINFRÍTT 260g 149kr. PIZZASÓSA 280g199kr. PIZZASÓSA LÍFRÆN 280g 1 0 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :2 5 F B 0 5 6 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 F 8 -1 D D C 2 2 F 8 -1 C A 0 2 2 F 8 -1 B 6 4 2 2 F 8 -1 A 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 5 6 s _ 9 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.