Morgunblaðið - 17.01.2019, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna
Eplaedik hefur verið notað sem heilsubótarefni í aldaraðir,
bæði sem forvörn sem og vegna læknandi eiginleika.
Auk eplaediks innheldur Apple Cider ætiþistil, túnfífil og
kólín sem getur elft meltinguna, haft góð áhrif á lifrina
og leitt til eðlilegs niðurbrots á fitu.
Svo er króm sem er gott fyrir blóðsykursjafnvægið
og slær þannig á sykurlöngun.
Eplaedik
– lífsins elexír
• Hreinsandi • Vatnslosandi • Gott fyrir meltinguna • Getur lækkað blóðsykur
• Getur dregið úr slímmyndun • Gott fyrir þvagblöðru, lifur og nýru.
Aðeins ein tafla á dag og ekkert bragð!
Stuðningsmenn Íslands í handbolta
hafa vakið mikla og verðskuldaða at-
hygli á heimsmeistaramótinu sem
fram fer í Danmörku og Þýskalandi
þessa dagana. Um síðustu helgi er
talið að hátt í 1.000 stuðningsmenn
hafi fylgt liðinu eftir á fyrstu tveim-
ur leikjunum í München, gegn Króa-
tíu og Spáni, en síðan hefur eitthvað
fækkað í hópnum.
Engu að síður er fjölmennur og
dyggur hópur eftir. Fyrir honum fer
Sérsveitin, stuðningsmannasveit
landsins, bláklædd og vel vopnum
búin af lúðrum og ásláttarhljóð-
færum. Þannig hafa Íslendingar tek-
ið hraustlega undir þegar þjóðsöng-
urinn hefur verið leikinn, eða
Ferðalok á undan leikjunum.
Góðir sigrar hafa náðst í vikunni
gegn Barein og Japönum, þar sem
„strákarnir okkar“ hafa verið vel
studdir í stúkunni í München.
Riðlakeppninni lýkur í dag hjá Ís-
lendingum með mikilvægum leik
gegn Makedóníu. Fari Ísland með
sigur af hólmi er sæti tryggt í milli-
riðli.
Leiðin liggur til Kölnar
Milliriðillinn, sem Ísland gæti lent
í, verður leikinn í þýsku borginni
Köln. Þangað gæti því leið stuðn-
ingsmanna legið næst og í raun
skiptir litlu hvernig leikurinn fer í
dag; Íslendingar munu alltaf fara
næst til Kölnar, en þar verður einnig
spilaður leikur um 13. til 16. sætið á
HM. Verður það hlutskipti Íslands
ef Makedónía kemst í milliriðil á
kostnað okkar manna.
Líflegir
áhorf-
endur
AFP
Áfram Ísland Einu marka Íslands á HM fagnað innilega í stúkunni, en hátt í 1.000 stuðningsmenn hafa fylgt landsliðinu eftir í Þýskalandi.
Fánaberi Íslenski fáninn hefur verið áberandi á áhorfendapöllunum.
Skrautlegur Einn meðlima Sérsveitarinnar, stuðningsmannasveitar lands-
liðsins, skrýddur fánalitunum, en sveitin hefur vakið verðskuldaða athygli.
Efnilegur Stuðningsmenn Íslands á
HM eru á öllum aldri.
HM í handbolta