Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.02.2019, Page 27
Oftar en ekki þarf að greiða fyrir það að taka
frá tiltekið sæti í flugi. Stundum er það þann-
ig að meira er greitt fyrir sæti sem talin eru
sérlega góð, t.d. sæti með auknu fótarými.
Þegar ferðast er með börn viljum við að
sjálfsögðu hafa áhrif á það hvar fjölskyldan
situr og tryggja að allir séu saman en tvístrist
ekki um alla vél. En þegar við erum ein á ferð
er auðvitað vel hægt að spara sér það að
greiða fyrir val á sæti, nema fólk vilji með öll-
um ráðum forðast miðjusæti. Þá er það ein-
hvers virði og við greiðum fyrir það.
Svo má líka alveg meta þörf á þessu í sam-
hengi við lengd flugs. Nú þarf til dæmis að
greiða fyrir sæti í innanlandsflugi hér á landi.
Hjá Air Iceland Connect kostar 990 krónur
að velja gluggasæti og 790 krónur að velja
sæti við gang. Ef tveir ferðast saman þarf því
að greiða aukalega 1.780 krónur fyrir að
vera örugglega hlið við hlið á þessum 45
mínútum sem það tekur að komast frá
Reykjavík til Akureyrar. Það skiptir líklega
flesta meira máli að huga vandlega að sætis-
vali í lengri flugferðum.
Thinkstock
SÆTI VALIÐ
Viltu sitja hjá mér?
Sumum finnst ómissandi
að sitja við glugga og
greiða þá fyrir. Í innan-
landsflugi kostar nú 990
kr. að sitja við glugga.
24.2. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is
Nýja vörulínan 2019
er komin!
Kertastjaki
stærð: 40x99x11,5
Verð 16.900 kr.
Körfur
6 stærðir
Verð 2.100-
10.900 kr.
Kríta- og segultafla
Stærð 50x70 cm
Verð 15.995 kr.
Seglar í krukku
12 stk.
Verð 2.795 kr.
Verð 15.900 kr.
Verð 17.900 kr.
WIcharge
3 litir
Verð 5.795 kr.
Verð 5.600 kr.
Það má færa rök fyrir því að meiri sanngirni sé í
því að klippa fargjöldin niður og greiða sér-
staklega fyrir hverja tösku. Þetta nýtist vel þeim
sem pakka létt.
Thinkstock
FARANGURSHEIMILD
Ekki borga fyrir töskur
sem ekki fara með
Það að þurfa að greiða sérstaklega fyrir
farangur, í stað þess að hann sé innifal-
inn í öllum flugmiðum líkt og áður var,
nýtist vel þeim sem eru vanir að ferðast
létt. Það margborgar sig að skoða flug-
fargjöld vel og lesa sér til um hvað er
innifalið í verði. Þannig má forðast að
borga fyrir farangur eða þjónustu sem
ekki er þörf á.
Tökum sem dæmi fjögurra manna
fjölskyldu sem skreppur í sólarferð. Ef
aðeins þarf að taka léttan fatnað er
kannski ekki þörf á nema tveimur tösk-
um, í stað fjögurra. Þá þarf að hafa í
huga að bókunarvélar flugfargjalda eru
almennt þannig úr garði gerðar að bóka
þarf alla í sömu bókun á sama fargjald.
Það getur því verið snjallt að bóka ódýr-
asta fargjald fyrir alla fjölskylduna, með
engri farangursheimild, en bæta svo
tveimur töskum við þegar boðið er að
kaupa farangursheimild síðar í ferlinu.
Á heimleið væri svo hægt að kaupa
fleiri töskur, bóka annars konar fargjald
með meiri farangursheimild, ef fólk sér
fram á að versla í ferðinni og vill geta
haft möguleikann á meiri farangri til
baka.
Hverjar svo sem þarfir fólks eru þá er
alltaf góð hugmynd að prófa sig áfram í
bókunarvélum og skoða hvaða fargjald
kemur best út miðað við þarfir ferða-
langa.