Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.02.2019, Síða 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.02.2019, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.2. 2019 S taðan í kjaramálum er ekki góð núna og jafnvel má segja að hún sé dapur- leg. En þetta er þó ekki óvænt staða, jafnvel miklu fremur fyrirsjáanleg. Hvað styður þá fullyrðingu? Það ger- ir til dæmis þróunin á almennum markaði síðustu misserin. Með hverri viku liðins árs mátti merkja vaxandi ótta og kvíða. Sé horft til sölu bifreiða í janúar 2018 og janúar 2019 þá segir það mikla fall allt sem segja þarf. Engin venjubundin ástæða stendur til slíks falls. Hvaðanæva úr viðskiptalífinu bárust svipaðar eða sambærilegar fréttir. Ekkert er eins mikilvægt þar og traust og stöðugleiki. Bankahrunið tíu ára gamla kenndi fólkinu marga lexíuna. Ein þeirra var sú að þeir fóru hvað verst út úr því áfalli sem stóðu í viðskiptum miðjum. Höfðu til dæmis keypt sér stærri húseign m.a. með verð- tryggðu láni án þess að hafa selt minni eignina, sem talið var með réttu að væri auðseljanleg þegar stökk- ið stóra var tekið. Sumir í slíkri stöðu enduðu með því að tapa hvoru tveggja og standa laskaðir eftir. Bílaviðskipti eru ekki jafnvogandi og þau sem snú- ast um þakið yfir höfuð fjölskyldunnar. En einnig í þeim efnum er þó nauðsynlegt að hafa fast land und- ir fótum. Ferðamenn sem ætla sér að eyða drjúgum hluta sparifjár í spennandi ferð til skrítins staðar í norður- höfum vilja ekki að spennan snúist einnig um að þar kunni allt að loga í verkföllum. Tæpt var teflt Smám saman hefur komið í ljós að teflt var á mjög tæpt vað í síðustu samningum á almenna mark- aðnum. SA hlupu þá á sig með því að láta hluta af þeim samningum verða afturvirkan, sem var meiri- háttar afleikur og stílbrot. Mjög mörg fyrirtæki hafa fundið fyrir því allt síð- asta ár að sú samningagerð gekk mjög nærri þeim. Kostur starfsmanna þeirra hefur þrengst eftir því sem liðið hefur á það ár þótt taxtar og samningar hafi að sjálfsögðu verið virtir. Fyrirtækin hafa frest- að aðgerðum sem hefðu getað treyst stöðu þeirra og þar með starfsmannanna til lengri framtíðar. Þau hafa rembst við að draga svo lengi sem fært væri að fækka sínu fólki. Það er ekki eingöngu fyrir velvild og virðingu fyrir góðum starfsmönnum og mat á því hversu mikilvægir þeir eru hverju fyrirtæki. Það vita allir að þurfi að grípa til uppsagna á góðu fólki veikir það starfsanda innan fyrirtækisins og flóknara verð- ur að setja af stað álitleg verkefni þegar kalla þarf til nýtt og óþjálfað fólk með allri þeirri óvissu og aðlögunartíma sem fylgir. Klisjur kæfa svör Órólega deildin svarar spurningum sem hrópa á skiljanleg svör með áratuga gömlum útslitnum klisj- um, aftan úr þeirri afskrifuðu tilveru sem verst reyndist almenningi úti um allan heim og einkum „al- þýðunni“ sem klisjukarlar og -kerlingar þykjast nú líma sig við. Þar til þetta fólk tók að gera sig gildandi voru enn bærilega góðar líkur á að samningarnir síðustu, sem fóru út á ystu nöf, héldu í raun og tryggðu því að raunhæfur kaupmáttur yxi hraðar hér en þekkist í nokkru nágrannalandi okkar. Mörg fyrirtæki eru fyrir nokkru tekin að fækka fólki til að geta greitt þeim sem áfram verða sam- kvæmt hinum metnaðarfullu samningum. Eins og staðan er nú orðin stefnir í að kaupmáttarsigurinn sem þótti vinnast með síðustu samningum fjúki út um gluggann ásamt þeim nýja. Fólkið, sem náði undir sig risafélögum með 8-17% fylgi, segir nú að raunhæft sé að laun allra almennra launamanna hækki um 60% næstu þrjú árin eða um 50% umfram verðbólgu! Þessar upplýsingar komu fram í Kastljósi í fyrradag og formaður Eflingar, sem þar var og talaði mest, gerði engar athugasemd- ir við þær, þótt henni væri ítrekað gefið færi á því. Hafa reiknikarlarnir, sem hafa sogið sig inn á skrifstofur þessara ólánsömu félaga, virkilega reikn- að þetta út og látið það fylgja að þetta væri ekki galið þótt það virtist vera það? Skrítið útspil, en kannski skiljanlegt Það vakti verulega undrun að ríkisstjórnin skyldi „spila út“ sínu „tilboði“ á þessari stundu og án stað- fastrar vitneskju um að það sem hún byði, sem margt orkaði tvímælis, yrði viðurkennt sem algjör lokapunktur málsins. Það getur ekki verið neinn ágreiningur um að það er aðila vinnumarkaðar að ljúka sinni samningagerð, ekki annarra. Meginreglan er að ríkisvaldið haldi sig þar til hlés. Mörg fordæmi eru þó fyrir því að ríkisstjórnin samþykki nauðug að láta skattgreiðendur borga með samningagerðinni. Fráleitt er hins vegar að láta ósvífna aðila á vinnu- markaði komast upp með að reyna að hrifsa til sín lýðræðislegt vald af ríkisstjórn á hverjum tíma. Á hinn bóginn má viðurkenna að ríkisstjórninni var vandi á höndum. Hún hefur sjálfsagt vitað eins og flestir aðrir að það lið, sem hefur stuðningslítið kom- ist yfir mikið vald í verkalýðshreyfingunni, hafi aldr- ei ætlað sér að gera kjarasamninga núna án þess að fá að vinna þau skemmdarverk sem hugur þeirra stendur til. Launþegar í landinu eiga því miður eftir að fara sárir frá þessu borði. Miðað við helstu áherslur leiðtoganna, a.m.k. í orði kveðnu, væri miklu eðlilegra að þeir sneru sér til sveitarfélaganna en rík- isins. Flest þeirra, eins og höfuðborgin, eru með alla sína skatta í toppi og ættu því að vera aflögufær. Allt bendir nú til þess að stefnan sé tekin áratugi aftur í tímann, til fortíðar vitlausu kjarasamning- anna, sem seinkuðu nútímavæðingu þjóðarinnar um langa hríð. Nú verður að vona að þetta afturhaldsskeið standi skemur en síðast. Þegar er orðið óhjákvæmilegt að tjónið sem lagt var upp með að vinna verði tilfinnan- legt fyrir marga og einkum þá það fólk sem minnst svigrúmið hefur til að bjarga sér. Sjóðstjórar öreiganna Sjóðir launþegahreyfingarinnar eru bólgnir og þá er ekki verið að nefna þá sjóði sem eru ríkastir alls; líf- eyrissjóðina, sem eiga nánast ráðandi hlut í öllum fyrirtækjum í kauphöllinni. Þar á meðal eru sjúkra- sjóðir og verkfallssjóðir, en skynsamleg stefnumótun hefur tryggt að þeim hefur ekki þurft að eyða þótt meiri kaupmáttur hafi verið sóttur en nokkru sinni fyrr. Meira vit væri að sækja um heimildir til ríkis- Dýrkeyptir lærlingar spreyta sig Reykjavíkurbréf22.02.19

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.