Morgunblaðið - 01.03.2019, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 1. M A R S 2 0 1 9
Stofnað 1913 51. tölublað 107. árgangur
HÚÐFLÚR OG
LÍKAMSGÖTUN
Í KÖNNUN
ÞVOTTASTÖÐ
Á BYGGINGA-
SVÆÐUM
JÓNSMESSU-
DRAUMUR
FRUMSÝNDUR
VINNUVÉLAR 16 SÍÐUR KONFEKTKASSI 30TJÁNING 12
Kjaraviðræður
» Efling og félögin sem eru í
samfloti í kjaraviðræðum við
Samtök atvinnulífsins slitu
viðræðum hjá Ríkissáttasemj-
ara 21. febrúar og hófu und-
irbúning verkfallsaðgerða.
Hótelverkfallið er fyrsta að-
gerðin.
» Ríkissáttasemjari hefur
ekki boðað til sáttafundar frá
því viðræðum var slitið.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Félagsmenn Eflingar – stéttarfélags
á hótelum og gististöðum samþykktu
tillögu um að hótelþernur fari í verk-
fall föstudaginn 8. mars, frá klukkan
10 að morgni til miðnættis, með at-
kvæðum 89% þeirra sem neyttu at-
kvæðisréttar. Verkfallið nær til um
700 starfsmanna sem vinna við
hreingerningar og þrif herbergja.
Atkvæðagreiðslunni lauk klukkan
10 í gærkvöldi og þá hófst talning at-
kvæða. Lágu niðurstöður fyrir rétt
fyrir miðnætti.
Á kjörskrá voru 7.950 félagsmenn
Eflingar. 862 greiddu atkvæði og var
þátttaka því tæp 11%.
769 samþykktu verkfallsboðunina,
67 voru á móti og 26 tóku ekki af-
stöðu. Verkfallsboðunin var sam-
þykkt með 89% atkvæða. Af þeim
sem tóku afstöðu voru 92% með
verkfalli en 8% á móti.
Efling mun afhenda Samtökum at-
vinnulífsins verkfallsboðunina í dag,
strax og skrifstofur verða opnaðar.
Haft er eftir Sólveigu Önnu Jóns-
dóttur, formanni Eflingar, í frétta-
tilkynningu um niðurstöðuna að hún
sé byr undir báða vængi í komandi
baráttu. Félagsmenn hafi talað og
segist hún stolt af þeim sem hafi sent
skýr og kröftug skilaboð með at-
kvæðum sínum.
SA mótmælir
Samtök atvinnulífsins telja at-
kvæðagreiðsluna ólögmæta og hafa
höfðað mál gegn Eflingu fyrir fé-
lagsdómi. Reiknað er með að niður-
staða málsins liggi fyrir áður en til
verkfalls kemur.
Vinnustöðvunin tekur til allra
þrifa, hreingerninga og frágangs
herbergja og annarrar gistiaðstöðu,
þar með talið á göngum, salernum og
í sameiginlegu rými, á öllum hótelum
og gistihúsum á félagssvæði Efling-
ar.
Hótelþernur í verkfall
Verkfall Eflingar á hótelum 8. mars var samþykkt með 89% atkvæða 862
greiddu atkvæði en 7.950 voru á kjörskrá Sólveig Anna stolt af félagsmönnum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Talning Fulltrúar í kjörstjórn hefja talningu atkvæða, Þórir Guðjónsson, Magnús M. Norðdahl, Andrea Helgadóttir og Ólöf Helga Adólfsdóttir.
Austurhluti
Evrópu var til
skamms tíma
nánast ókannað
landsvæði fyrir
íslenska atvinnu-
menn í knatt-
spyrnu. Einn og
einn hafði slæðst
þangað, svo sem
Hannes Þ. Sig-
urðsson til Rússlands og Kasak-
stans og Garðar Gunnlaugsson til
Búlgaríu, en nú hefur þeim fjölgað
hratt sem semja við félög í aust-
anverðri álfunni. Árni Vilhjálms-
son er nú kominn til Úkraínu,
fyrstur Íslendinga, sem nú leika
víðar um lönd en nokkru sinni
fyrr. » Íþróttir
Austur-Evrópa
heillar Íslendinga
Árni Vilhjálmsson
Skuldir ríkissjóðs lækkuðu um 48
milljarða síðastliðinn þriðjudag með
því að skuldabréfið RIKB 19 var
greitt upp. Innlendar skuldir ríkis-
sjóðs voru um 717 milljarðar í lok
janúar en eru nú rúmir 673 milljarð-
ar.
Björgvin Sighvatsson, forstöðu-
maður Lánamála hjá Seðlabanka Ís-
lands, segir aðspurður að eftir þessa
afborgun hafi hrein skuld ríkissjóðs
lækkað um 0,4%. Hún var 20,3% í
janúar og gæti því verið komin undir
20% í fyrsta sinn á þessum áratug.
Björgvin segir að á móti gjalddag-
anum komi útgáfa ríkissjóðs í verð-
tryggðum flokki skuldabréfa, RIKS
26, ásamt útgáfu á ríkisvíxli í mán-
uðinum. M.t.t. þessa lækkuðu skuld-
irnar um 44 milljarða í febrúar. Þá
kunni gengissveiflur að hafa áhrif á
stöðu erlendra lána.
Áðurnefnt skuldabréf, RIKB 19,
var upphaflega gefið út 2009 en bréf-
ið stóð í 83 milljörðum í ágúst 2017.
Hefur ríkissjóður greitt það upp á 18
mánuðum. Sú fjárhæð er á við kostn-
að við nýjan meðferðarkjarna Land-
spítalans og er þá ekki tekið tillit til
greiðslu ríkissjóðs af vöxtum en ár-
legir nafnvextir flokksins eru 8,75%.
baldura@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Seðlabankinn Lánamál ríkisins
hafa yfirlit yfir ríkisskuldirnar.
Lækkuðu
um 48
milljarða
Ríkið borgaði
upp tugmilljarða
skuldabréf
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Undir miðnætti í gærkvöldi barst til-
kynning frá WOW air þess efnis að
þótt félagið hefði ekki náð samkomu-
lagi við Indigo Partners um fjárfest-
ingu þess síðarnefnda í WOW air,
hefði verið ákveðið að halda vinnu í
samkomulagsátt áfram til 29. mars.
Felur það í sér mánaðar framleng-
ingu á fyrra samkomulagi. Heimildir
Morgunblaðsins herma að WOW air
hafi óskað eftir því við eigendur
skuldabréfa á hendur félaginu að
þeir samþykktu, til eins mánaðar, að
viðhalda þeim breytingum sem fall-
ist hafði verið á að gerðar yrðu á
skuldabréfaútgáfunni við aðkomu
Indigo Partners að félaginu.
WOW air greiddi starfsfólki sínu
ekki út laun í gær, á síðasta degi ný-
liðins mánaðar, en félagið hefur haft
þann háttinn á undanfarin misseri að
greiða út laun á þeim degi þótt kjara-
samningur kveði ekki á um að það
þurfi að gera fyrr en fyrsta dag
hvers mánaðar.
Mannauðsstjóri félagsins sendi
starfsfólki orðsendingu þar sem
sagði m.a.: „Því miður náðum við
ekki að klára launavinnsluna í dag og
borga út launin. Laun verða því
greidd út á morgun.“ Morgunblaðið
leitaði skýringa á því hvað hefði orð-
ið þess valdandi að ekki var hægt að
ljúka við launavinnsluna en félagið
brást ekki við fyrirspurn blaðsins.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins stranda viðræðurnar milli
WOW air og Indigo Partners á
ágreiningi um hver endanleg eign-
arhlutdeild Skúla Mogensen, for-
stjóra og stofnanda WOW air, verði í
félaginu þegar upp verður staðið. Þá
munu samningsaðilar einnig vinna
að því að koma skikki á með hvaða
hætti framtíðarskipulagi félagsins
og áherslum verði háttað. Indigo
Partners hefur gefið það út að það sé
reiðubúið að fjárfesta allt að 75 millj-
ónir dollara, jafnvirði um 9 milljarða
íslenskra króna í WOW air. Hins
vegar mun fjárfestingin fyrst í stað
felast í formi lánveitingar til allt að
tíu ára með breytirétti í hlutafé. Ís-
lensk löggjöf kemur hins vegar í veg
fyrir að Indigo Partners eignist
meirihluta í félaginu þar sem það er
ekki í eigu aðila innan Evrópska
efnahagssvæðisins.
Bréf Icelandair Group hækkuðu
um 7,5% í hundraða milljóna við-
skiptum í Kauphöll Íslands í gær.
WOW air fær mánaðarfrest
Laun starfsfólks ekki greidd út í gær Bréf Icelandair Group hækkuðu um 7,5%