Morgunblaðið - 01.03.2019, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2019
Góð
heyrn
glæðir samskipti
ReSound LiNX Quattro
eru framúrskarandi heyrnartæki
Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is
Erum flutt í
Hlíðasmára 19
Fagleg þjónusta hjá
löggiltum heyrnarfræðingi
Með þeim færðu notið minnstu smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna.
Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða, tvöfalt stærra minni og eru
sérlega sparneytin.
Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum tækjum.
Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með takka á tækjum. Eru með
rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan hátt, eða með einnota rafhlöður.
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
BMW225XE IPERFORMANCE
nýskr. 02/2017, ekinn 12 Þ.km, bensín/rafmagn,
sjálfskiptur. TILBOÐ 4.270.000 kr.
Raðnúmer 259005
RENAULT GRAND SCENIC BOSE EDITION
nýskr. 11/2018, ekinn 8 Þ.km, dísel, sjálfskiptur, 7
manna, hlaðinn aukabúnaði. Verð 5.190.000 kr.
Raðnúmer 259171
ÓSKUM EFTIR BÍLUMÁ SÖLUSKRÁ - LAUS STÆÐI
SUZUKI VITARA GLX AWD
nýskr. 04/2017, ekinn 22 Þ.km, bensín, sjálfskiptur,
glerþak, leður o.fl. Einkabíll! Verð 3.790.000 kr.
Raðnúmer 259124
VOLVO XC90 T8 INSCRIPTION
Árg. 2017, ekinn 33 Þ.km, bensín/rafmagn,
sjálfskiptur, glerþak, 22“ álfelgur o.fl. TILBOÐ
7.950.000 kr. staðgreitt. Raðnúmer 259150
LR RANGE ROVER EVOQUE SE DYNAMIC
nýskr. 06/2017, ekinn 16 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur,
glerþak o.fl. Verð 6.990.000 kr.
Raðnúmer 259145
Bílafjármögnun Landsbankans
Guðmundur Spartakus Ómarsson mætti í
fyrsta sinn fyrir dóm hér á landi í gær og gaf
skýrslu þegar aðalmeðferð í dómsmáli sem
hann höfðaði gegn Atla Má Gylfasyni, fyrrver-
andi blaðamanni Stundarinnar, hófst í Lands-
rétti.
Málið snýst um umfjöllun Atla Más um Frið-
rik Kristjánsson sem hvarf sporlaust í Suður-
Ameríku árið 2013, auk umfjöllunar þess efnis
að Guðmundur væri umsvifamikill í fíkniefna-
heiminum í Paragvæ, þar sem hann er búsett-
ur. Atli Már var sýknaður í Héraðsdómi
Reykjaness í maí í fyrra en Guðmundur áfrýj-
aði þeim dómi til Landsréttar. Neitaði Guð-
mundur því alfarið í skýrslutöku fyrir Lands-
rétti að þekkja Friðrik eða hafa hitt hann. Þá
neitaði hann því að vera nokkuð viðriðinn fíkni-
efnasmygl eins og Atli Már hefði haldið fram í
umfjöllun sinni.
„Fjölmiðlar voru búnir að sprengja það upp
að ég átti að hafa gert þetta,“ sagði Guðmund-
ur, sem sagðist hafa verið sviptur ærunni.
Hann hefði aldrei verið tengdur fíkniefna-
smygli og vegna umfjöllunar íslenskra fjöl-
miðla væri viðskiptalífi hans á Íslandi lokið,
sama hvernig þetta mál færi.
RÚV, sem fjallaði einnig um málið á sínum
tíma, samdi við Guðmund Spartakus í máli
hans gegn miðlinum og greiddi honum 2,5
milljónir í sakarkostnað og miskabætur.
Íslenskir miðlar gengu lengra
Gunnar Ingi Jóhannsson, lögmaður Atla
Más, spurði Guðmund hvers vegna fréttir
RÚV mættu standa en ekki fréttaflutningur
Atla Más. Guðmundur sagði að hann teldi
sáttagreiðslu RÚV hafa verið viðurkenningu á
að um rangan fréttaflutning hefði verið að
ræða. Fjölmiðlar í Paragvæ hafa einnig fjallað
um málið, en Guðmundur sagðist ekki vera
fjárhagslega búinn undir annað mál gegn
þeim.
„Íslenskir miðlar hafa gengið miklu lengra
en paragvæskir. Ég tel að ábyrgðin liggi hjá ís-
lensku miðlunum. Hér er skaðinn mestur og
það er mjög kostnaðarsamt að standa í þessu.
Ég berst í bökkum,“ sagði Guðmundur.
Handtekinn að áeggjan fjórða valdsins
Meðal þess sem Vilhjálmur H. Vilhjálmsson,
lögmaður Guðmundar Spartakusar, tók fyrir í
málflutningi sínum voru hrottalegar lýsingar á
því hvernig Friðrik átti að hafa verið myrtur í
Paragvæ. „Það sem bjó að baki þessum frétta-
flutningi var ekkert annað en auglýsinga-
mennska til þess að búa til tekjur fyrir Stund-
ina,“ sagði Vilhjálmur í málflutningi sínum.
Guðmundur sagðist einu sinni hafa verið
handtekinn vegna hvarfs Friðriks, það var við
komuna til Íslands haustið 2016 og hefði hann
verið spurður um tengsl sín við hvarf Friðriks í
umræddri skýrslutöku. Guðmundur sagðist
ekki vita hvar Friðrik væri niðurkominn og að
hann hefði aldrei verið eftirlýstur vegna máls-
ins. Hann sagði enga handtökuskipun hafa leg-
ið fyrir, heldur hefði hann þarna verið hand-
tekinn að áeggjan fjölmiðla.
Guðmundur Spartakus krefst þess að um-
mælin í umfjöllun Atla Más verði dæmd dauð
og ómerk, auk þess sem hann krefst 10 millj-
óna í miskabætur, auk vaxta. Atli Már fer fram
á að málinu verði vísað frá dómi.
Neitaði allri aðild að mannshvarfi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Stefndi Atli Már Gylfason og Gunnar Ingi
Jóhannsson, lögmaður hans, í Landsrétti.
Guðmundur Spartakus Ómarsson mætti fyrir dóm í fyrsta sinn og gaf skýrslu fyrir Landsrétti í gær
Höfðar dómsmál fyrir umfjöllun um meint fíkniefnaumsvif og aðild að hvarfi Friðriks Kristjánssonar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Áfrýjandi Guðmundur Spartakus Ómarsson í
Landsrétti í gærmorgun.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Samgöngustofa hefur kveðið upp úr-
skurð vegna kvörtunar flugfarþega
sem taldi sig hafa orðið fyrir marg-
víslegum truflunum í tveimur flug-
ferðum í júlí og ágúst í fyrra. Féllst
Samgöngustofa ekki á að viðkom-
andi ætti rétt á skaðabótum vegna
umræddra truflana.
Annars vegar var um að ræða flug
frá Dublin til Keflavíkur en hins veg-
ar frá Keflavík til Seattle þremur
dögum síðar. Í umfjöllun Samgöngu-
stofu kemur fram að í báðum tilvik-
um var notast við smærri loftför til
flugferðanna en tilgreint var við
kaup farmiðanna með Icelandair.
Orsakaði það að sæti kvartenda og
ferðafélaga hans breyttust úr
gluggasæti og gangsæti í gluggasæti
og miðjusæti innan sama farrýmis.
Fékk 30.000 vildarpunkta
Icelandair greiddi kvartanda
30.000 vildarpunkta vegna óþæginda
sem hann kynni að hafa orðið fyrir
en hafnaði frekari bótum.
„Í skilmálum IA er með skýrum
hætti tekið fram að reynt sé eftir
fremsta megni að verða við öllum
sætisbeiðnum en ekki sé hægt að
staðfesta einstök sæti. Þá tekur IA
það skýrt fram að í umræddu máli
hafi kvartandi aldrei verið niður-
færður á lægra farrými og var ein-
ungis um óhjákvæmilega tilfærslu
sæta innan sama farrýmis að ræða
sem stafaði af því að loftför af minni
stærð voru starfrækt í umræddum
ferðum. Þá hafi sætisnúmer haldist
óbreytt við breytinguna,“ segir í nið-
urstöðu Samgöngustofu. Þriggja
mánaða kærufrestur er á ákvörðun
Samgöngustofu.
Ósáttur við að fá
ekki gluggasæti
Farþegi kvartaði til Samgöngustofu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flug Farþegi kvartaði til Sam-
göngustofu þegar sæti breyttust.