Morgunblaðið - 01.03.2019, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 01.03.2019, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2019 Aðalfundur Festi hf. Aðalfundur Festi hf. verður haldinn fimmtudaginn 21. mars 2019 klukkan 10.00 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10-14, Kópavogi. Dagskrá fundarins 1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári. 2. Skýrsla forstjóra og ársreikningur kynntur. 3. Staðfesting ársreiknings fyrir síðastliðið reikningsár og tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað félagsins. 4. Ákvörðun tekin um greiðslu arðs vegna rekstrarársins 2018. 5. Tilnefningarnefnd kynnir skýrslu sína og tillögur. 6. Stjórnarkjör. 7. Tillaga stjórnar um skipun tveggja einstaklinga í tilnefningarnefnd. 8. Kjör endurskoðanda eða endurskoðunarfirma. 9. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna, undirnefnda stjórnar og tilnefningarnefndar. 10. Tillaga stjórnar að starfskjarastefnu félagsins. 11. Tillaga tilnefningarnefndar um breytingar á starfsreglum nefndarinnar. 12. Tillaga stjórnar um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum. 13. Önnur mál löglega upp borin. Tillögur a) Ársreikningur (liður 3) Stjórn leggur til að ársreikningur fyrir árið 2018 verði samþykktur. b) Arðgreiðsla (liður 4) Stjórn leggur til við aðalfund að ekki verði greiddur út arður vegna rekstrarársins 2018. c) Tillögur tilnefningarnefndar (liður 5) tilnefningarnefnd leggur til óbreytta stjórn félagsins. Í stjórn eru: Margrét Guðmundsdóttir Þórður Már Jóhannesson Guðjón Reynisson Kristín Guðmundsdóttir Björgólfur Jóhannsson d) Tilnefningarnefnd Stjórn leggur til við aðalfund að Sigrún Ragna Ólafsdóttir og Tryggvi Pálsson verði kjörin í tilnefningarnefnd. e) Þóknun til stjórnar (liður 9) Stjórn leggur til við aðalfund að stjórnarlaun komandi starfsárs verði sem hér segir: Stjórnarformaður fái kr. 740.000 ámánuði. Varaformaður stjórnar fái kr. 555.000 ámánuði. Aðrir stjórnarmenn fái kr. 370.000 ámánuði. Fulltrúar í starfskjaranefnd fái kr. 52.000 ámánuði og formaður starfskjaranefndar kr. 103.000 ámánuði. Fulltrúar í endurskoðunarnefnd fái kr. 82.000 ámánuði og formaður endurskoðunarnefndar kr. 145.000 ámánuði. Formaður fjárfestingaráðs fái kr. 145.000 ámánuði. Formaður tilnefningarnefndar fái kr. 145.000 ámánuði, nefndarmaður kr. 123.000 ámánuði og fulltrúi stjórnar Festi í nefndinni fá kr. 82.000 ámánuði. Lagt er til að þóknun til tilnefningarnefndar fyrir starfsárið 2018/2019 verði að formaður nefndarinnar kr. 1.680.000, kjörinn fulltrúi fái kr. 1.440.000 og fulltrúi stjórnar fái kr. 960.000. f) Starfskjarastefna (liður 10) Stjórn leggur til að starfskjarastefna frá fyrra ári verði samþykkt óbreytt. Aðrar upplýsingar Öll skjöl og tillögur sem lögð verða fyrir aðalfund verður aðfinna á vefsíðu félagsinswww.festi.is/fjarfestatengsl. Þarmá einnig finna skýrslu Tilnefningarnefndar. Hluthöfumstendur einnig til boða að nálgast skjölin í höfuðstöðvum félagsins aðDalvegi 10-14, Kópavogi, virka dagamilli klukkan9:00-16:00. Fundurinn fer framá íslensku og verða fundargögn jafnframt á íslensku. Hluthafar geta látið umboðsmann sækja hluthafafundinn fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja framskriflegt umboð. Ekki verður hægt að greiða atkvæðimeð rafrænumhætti á fundinum. Hluthöfumgefst kostur á að greiða atkvæði ummál semeru á dagskrá fundarins bréflega. Skal beiðni umslíka atkvæðagreiðslu hafa borist skrifstofu félagsins eða á netfangið hluthafar@festi.is eigi síðar enfimm dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 10.00 laugardaginn 16.mars 2019. Hluthafar eiga rétt á því að fá ákveðinmál tekin tilmeðferðar á hluthafafundi ef þeir gera umþað skriflega eða rafræna kröfu. Óski hluthafi eftir að komamáli eða tillögu á dagskrá hluthafafundar skal slík beiðni hafa borist skrifstofu félagsins eða á netfangið hluthafar@festi.is eigi síðar en tveimur vikum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 10.00fimmtudaginn 7.mars 2019. Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar viku fyrir fundinn. Tilnefningarnefnd leggur til óbreytta stjórn félagsins á komandi starfsári. Sú tillaga takmarkar ekki frekari framboð til stjórnar. Samkvæmt63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995ber að tilkynna um framboð til stjórnar skriflegameðminnst fimmsólarhringa fyrirvara fyrir aðalfund, eða fyrir kl. 10.00 laugardaginn 16.mars 2019. Framboðumskal skila á skrifstofu Festi hf., Dalvegi 10-14, Kópavogi, eða á netfangið hluthafar@festi.is. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund.Hluthafar eiga rétt á að krefjast hlutfallskosningar eðamargfeldiskosningar við stjórnarkjör í tvo sólarhringa frá því að stjórn kunngerir niðurstöður framboða til stjórnar, ef ekki er sjálfkjörið. Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent frá klukkan9.30 á aðalfundardegi. Stjórn Festi hf. „Það er alltaf gaman hjá okkur á bjórdaginn,“ segir Sophus Sigþórs- son, veitingamaður á Kringlukránni. Hátíðarstemning verður víða á veitingastöðum í dag og kvöld í tilefni 30 ára afmælis bjórdagsins. Þennan dag árið 1989 var áratugalöngu banni við bjórsölu aflétt og landsmenn gátu nálgast drykkinn vinsæla á ný, eins og rakið var í Morgunblaðinu í gær. Af þessu tilefni ætla margar krár og veitingastaðir að bjóða upp á sérstök tilboð og dagskrá. Bruggsmiðjan Kaldi heldur mikla bjórhátíð á Ár- skógssandi í dag og kvöld sem þegar er uppselt á. Aðeins tvær krár hafa verið í óbreyttum rekstri allar götur síðan á Bjórdaginn; Kringlukráin og Rauða ljónið á Eiðistorgi. Á báðum stöðum verður 30 ára gamalt verð á bjórnum; 350 krónur fyrir stórt glas. Ókeypis verður inn á dansleik með Geirmundi á Kringlukránni í kvöld. Fleiri staðir taka þátt í veisluhöld- unum, til að mynda American Bar í Austurstræti, Stúdentakjallarinn, Mónakó, Gullöldin í Grafarvogi og MicroBar. Þá mun Session Craft Bar í Bankastræti, sem alla jafna selur vandaðan handverksbjór, selja hinn þýska bjór Löwenbräu á krana. Lö- wenbräu var mest seldi bjórinn í ÁTVR ásamt Egils Gulli fyrsta dag- inn sem bjórinn var leyfður. Sophus á Kringlukránni segir að skemmtanahald og menningin í kringum það hafi breyst mikið á þess- um þrjátíu árum. Kringlukráin var opnuð 1. mars 1989 og fyrst um sinn voru 70 prósent af veltunni drykkjar- sala, aðallega bjór. Í dag komi 70 pró- sent veltunnar frá sölu matar. Hann segir að gaman sé að selja bjórinn á gamla verðinu. „Við vorum einmitt að fara í gegnum hvernig verðið á bjór hafi þróast. Frá 1989 og fram að hruni hækkaði verðið hlut- fallslega mjög lítið og árið 2008 kost- aði bjórinn 790 krónur. Nú er bjórinn kominn í 1.200-kall og sums staðar kostar hann 1.400.“ hdm@mbl.is 30 ára gam- alt verð á bjórnum  Bjórdeginum víðs- vegar fagnað í dag Morgunblaðið/RAX Bjórdagurinn Stíft var fagnað á Gauki á Stöng 1989 og stemningin verður eflaust jafn góð í kvöld. Kópavogsbær er kominn í samstarf við OECD, Efnahags- og framfara- stofnun Evrópu, í tengslum við inn- leiðingu bæjarfélagsins á Heims- markmiðum Sameinuðu þjóðanna. Fulltrúar OECD komu af því til- efni til þriggja daga vinnufundar í Kópavogi í vikunni ásamt fulltrúum frá Viken-héraði í Noregi. Viken er ásamt Kópavogi og fimm öðrum sveitarfélögum eða landshlutum um heim allan þátttakandi í verk- efni OECD sem hefur það að mark- miði að búa til samanburðarhæfar mælingar milli sveitarfélaga á al- þjóðavísu sem nýtast við innleið- ingu heimsmarkmiðanna. Þá gefst þátttakendum í verkefninu færi á að deila þekkingu og reynslu af því hvernig staðið er að staðfærslu og innleiðingu Heimsmarkmiðanna. „Samstarfið mun nýtast okkur við að gera árangurmælikvarða svo við getum mælt hvernig til hefur tekist í kjölfar samþykktar á heild- arstefnu Kópavogsbæjar þar sem yfirmarkmiðin eru Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Mælikvarð- arnir munu svo nýtast til að gera rekstur sveitarfélagsins og áætl- anagerð alla markvissari sem síðan skilar sér í betra samfélagi fyrir alla Kópavogsbúa,“ segir Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, í tilkynningu frá bænum. Þá daga sem hópurinn dvaldi hér á landi fékk hann kynningu á þeim mælingum og þeirri aðferðafræði sem hefur verið lögð til grundvallar í Kópavogi. Þá fundaði hópurinn með fulltrúum fyrirtækja, stofnana, félagasamtaka og ráðuneyta. Fara í samstarf við OECD Heimsmarkmið Þau voru á vinnufundum í vikunni, frá vinstri: Auður Finnbogadóttir, verkefnastjóri stefnumótunar, Stina Heikkila frá OECD, Gunn Nygard frá Viken, Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri, Elisabeth Gerill frá Viken, Stefano Marta frá OECD, og Páll Magnússon bæjarritari.  Kópavogur innleiðir heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna Frá og með 1. mars 2019 hækkar verð á áskrift að Morgunblaðinu. Full mánaðaráskrift, sem felur í sér sjö blöð í viku, aðgang að vefútgáfu Morgunblaðsins, aðgang að Hljóð- mogganum, auk snjalltækjaútgáfu, kostar þá 7.240 kr. Áskriftarverð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.