Morgunblaðið - 01.03.2019, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 01.03.2019, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2019 Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann ✝ Berglind Hall-grímsdóttir fæddist í Reykja- vík 23. september 1976. Hún lést úr krabbameini á heimili sínu Sunnu- vegi 25, 15. febr- úar 2019. Foreldrar Berg- lindar eru Hall- grímur Jónasson, f. 17.4. 1952, verk- fræðingur, og Ingibjörg Edda Ásgeirsdóttir, f. 12.4. 1953, hjúkrunarfræðingur. Bræður hennar eru Jónas Hlynur, f. 27.5. 1982, hagfræðingur, og Ásgeir Örn, f. 17.2. 1984. Synir Jónasar eru Hallgrímur Helgi, f. 30.9. 2010, og Guðmundur Kári, f. 28.2. 2013. Eiginkona Ásgeirs Arnar er Hanna Borg Jónsdóttir, f. 30.10. 1985, lög- fræðingur. Börn þeirra eru Tumi, f. 30.5. 2012, Dagur, f. 22.10. 2014, og Fríða, f. 18.1. 2019. Eiginmaður Berglindar er Eðvarð Jón Bjarnason, f. 1.12. 1976 í Reykjavík, rekstrarhag- fræðingur og fjármálastjóri. Þau hófu sambúð fljótlega eftir stúdentspróf og bjuggu í Reykjavík, utan hluta árs 2010 Berglind starfaði hjá Med- careFlögu frá 2001 til 2006. Berglind starfaði í Landsbank- anum frá 2006, lengst af á fyr- irtækjasviði og var síðast for- stöðumaður fyrirtækjalausna. Berglind var virk í ýmiss konar félagsstarfi. Hún var for- seti Framtíðarinnar, málfunda- félags MR, veturinn 1995-1996. Hún sat í Háskólaráði Háskóla Íslands fyrir hönd Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, ár- in 1999-2001 og var í mörg ár ein helsta driffjöðurin í starfi félagsins. Berglind var pistla- höfundur á vefritinu Deiglan og þátttakandi í starfi þess fé- lagsskapar, bæði í tengslum við útivist og bókalestur. Hún sat í stjórn SUS 2007-2009. Berglind sat í stjórn Félags- stofnunar stúdenta árin 2002- 2005. Hún sat í stjórn RARIK 2006-2009 og í stjórn Sjúkra- trygginga Íslands frá 2014. Berglind var bókelsk og var meðal annars virk í bókaklúbbi með fyrrverandi vinnufélögum úr Flögu um langt árabil. Hún var mikil útivistarmanneskja, átti ættir að rekja til Aðalvíkur á Hornströndum og þar dvald- ist hún hluta úr hverju sumri. Berglind og fjölskylda hennar stunduðu skíði af ástríðu undanfarin ár og sat Berglind í stjórn skíðadeildar KR frá árinu 2016. Útför Berglindar verður gerð frá Víðistaðakirkju í dag, 1. mars 2019, klukkan 13. þegar þau dvöldu í Madríd. Dóttir Berglindar og Eð- varðs Jóns er Elsa Edda, f. 21.11. 2007. Móðir Eðvarðs er Elsa Friðrika Eðvarðsdóttir, f. 19.12. 1954, hjúkr- unarfræðingur. Faðir Eðvarðs Jóns er Bjarni Torfason, f. 28.3. 1951, hjartaskurðlækn- ir. Bróðir Eðvarðs er Birgir Torfi, f. 9.10. 1987, og hálf- systir þeirra er Bergþóra María Bjarnadóttir, f. 21.12. 2010. Berglind ólst upp í Hafnar- firði og var þar í grunnskóla. Hún lék handbolta með Hauk- um og var stuðningsmaður fé- lagsins alla tíð. Hún var í tón- listarskóla og lék á þverflautu með lúðrasveit tónlistarskól- ans. Hún lauk stúdentsprófi af eðlisfræðideild Menntaskólans í Reykjavík vorið 1996, B.Sc. prófi í véla- og iðnaðarverk- fræði árið 2000 og M.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði árið 2006 hvort tveggja frá Háskóla Ís- lands. Hún lauk prófi í verð- bréfamiðlun árið 2011. Elskuleg systir mín er fallin frá. Berglind var stóra systir mín og fyrirmynd. Hún var alveg ein- staklega lausnamiðuð og pragma- tísk í hverju sem hún tók sér fyrir hendur og skein þá í gegn fé- lagsfærni og greind hennar. Ótal sinnum leitaði ég til hennar eftir ráðum og lausnum og nánast und- antekningarlaust var hún fljót að benda á nokkrar mögulegar lausnir og jafnframt draga fram kosti og galla hverrar þeirra. Þegar hún greindist með krabbameinið varð okkur fljótt ljóst að hún ætlaði ekki að láta það stöðva sig. Ávallt tókst hún á við sjúkdóminn og vandamál hon- um tengd af ótrúlegu æðruleysi og hugrekki. Með klókindum, vilja og ótrúlegri baráttu tókst henni að skapa sér og öðrum lífs- gæði og góðar minningar á meðan hún barðist við krabbameinið. Viljinn og baráttan var slík að oft urðum við sem stóðum henni nærri full aðdáunar, orðlaus og bangin á sama tíma. Því miður hafði krabbameinið betur að lok- um en eftir standa frábærar minningar um elskulega systur mína og stóru frænku sona minna. Elska þig. Jónas Hlynur. Nú er hún elsku Berglind okk- ar farin. Eftir sitjum við með sorg í hjarta en á sama tíma hugsum við um gleðilegar minningar um ótrúlega konu. Hún var geislandi falleg með blik í auga, sparaði ekki ljúfa og bjarta brosið og var hláturmild með eindæmum. Það var alltaf svo bjart yfir henni og svo notalegt og gott að vera í kringum hana því hlýjan streymdi frá henni. Söknuðurinn er og verður mikill. Berglind var einstaklega góð fyrirmynd, fyrir bræður sína, dóttur og einfaldlega fyrir okkur öll. Hún var svo vel gefin og vel að sér í öllu en þó alltaf hógværðin uppmáluð. Allt sem hún tók sér fyrir hendur gerði hún framúr- skarandi vel. Hvort sem það var uppeldið, námið, vinnan, lestur góðra bóka, hálfmaraþon eða hvers kyns útivist, allt var gert af natni og áhuga með jákvæðni og gleði að vopni. Í Berglindi var að finna sér- staklega góðan hlustanda, hún var áhugasöm um allt sem maður hafði að segja og tryggur stuðn- ingsmaður. Við höfum verið að rifja upp heimsóknir hennar til okkar erlendis í gegnum árin, en við erum svo þakklát henni fyrir að hafa heimsótt okkur, ásamt Ewa og síðar Elsu Eddu, á alla fimm staðina þar sem við héldum heimili. Þetta eru einhverjar af dýrmætustu minningunum sem við eigum, ekki síst frá heimsókn- inni síðastliðið sumar þar sem við nutum lífsins saman í paradísinni við Gorges du Verdon í Suður- Frakklandi. Þá rifjum við upp dýrmætar minningar úr Aðalvík- inni, sem Berglind unni svo heitt. Þar sjáum við hana fyrir okkur siglandi kajaknum brosandi út að eyrum og skokkandi upp Darrann ásamt Elsu Eddu. Hvorug blæs úr nös. Berglind kaus alltaf að sjá það jákvæða í hlutunum og talaði aldrei illa um nokkurn mann. Þetta viðhorf hennar til lífsins kom svo sérstaklega vel fram í baráttunni við krabbann síðastlið- in 10 ár. Aldrei heyrðum við hana kvarta, ekki einu sinni. Það var bara áfram gakk og ekkert væl. Töffari og harðjaxl allt til enda og svona tókst henni að vinna ótal marga sigra með æðruleysið að leiðarljósi. Við eigum erfitt með að ímynda okkur hetjulegri bar- áttu, en hugrekki hennar, kraftur og dugnaður mun blása okkur byr í brjóst um alla framtíð. Já, Berg- lind var hetja. Elsku Berglind, við lofum að styðja við Ewa þinn og hjálpa honum að passa upp á elsku hjart- að þitt, Elsu Eddu. Við munum ávallt sakna þín og halda minn- ingu þinni á lofti. Takk fyrir allt. Þín Ásgeir Örn og Hanna Borg. Berglind frænka okkar skilur eftir sig tómarúm í stórfjölskyld- unni og frænkuhópnum. Berglind geislaði af hugrekki og hlýju, hún var eldklár og með einstaklega góða nærveru. Við erum þakklátar fyrir allar þær hlýju minningar sem við eig- um þegar litið er til baka á kveðjustund. Minningarnar eru margar, ófá fjölskylduboð á Hátröðinni, Aðal- víkurferðir, skóbúðin þar sem við ýmist spjölluðum á loftinu í há- deginu, afgreiddum í búðinni eða endurröðuðum í hillur fyrir afa. Það var góður skóli að vinna í skó- búðinni hjá afa og ömmu þar sem aldrei mátti láta verk úr hendi falla. Uppvöxturinn í skóbúðinni skilaði sér síðan í sameiginlegum áhuga á fallegum skóm. Berglind tókst á við veikindi sín af aðdáunarverðu æðruleysi og hugrekki, hennar verður sárt saknað. Við sendum Evva, Elsu Eddu, Ingibjörgu, Hallgrími, Jónasi, Ás- geiri, fjölskyldum þeirra og öllum sem eiga um sárt að binda okkar innilegustu samúðarkveðjur. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Drífa og Freyja. Ljós hefur slokknað. Nei … nei! Aðeins birtu er brugðið. Und- urblíð og falleg stúlka hefur haft vistaskipti, en hvergi nærri yfir- gefið okkur, sem eftir sitjum þög- ul og hnípin … yndislega dóttur, ljóslifandi eftirmynd móður sinn- ar, klettinn eiginmann sinn, nána fjölskyldu og vini. Með brosi sínu og hlýju umvefur hún okkur áfram, sem eitt augnablik finnst lífið illskeytt og ósanngjarnt, en minnumst síðan þess gleðitíma sem við fengum að njóta með henni og þökkum fyrir af auð- mýkt. Elsku Evvi, Elsa Edda, Elsa systir, Bjarni, Ingibjörg, Hall- grímur og aðrir nánir aðstand- endur. Takk fyrir Berglindi. Egill Eðvarðsson og fjölskylda. Bróðurdóttir mín hún Berglind er fallin frá í blóma lífsins. Orð fá ekki lýst þeirri sorg og söknuði sem sækir að okkur öllum. Á þessum erfiðu tímamótum er margs að minnast og margt að þakka fyrir. Berglind var elsta barnabarn foreldra okkar Hallgríms og sér- stakur augasteinn afa síns og ömmu. Börnin okkar voru á svip- uðum aldri og fjölskyldurnar héldu vel saman. Við hugsum með þakklæti til samverustundanna meðan börnin voru að alast upp og æ síðan. Ferðir í Aðalvík, á Snæfellsnes og víðar um landið eru minnisstæðar og börnin lærðu að meta útivist í íslenskri náttúru. Oft hafa verið rifjaðar upp minningar úr ógleymanlegri ferð á skíði til Austurríkis þar sem elstu börnin, Berglind og Jón, stungu foreldrana af í brekkun- um. Berglindi var mikið gefið. Hún var góður námsmaður, fór í MR, tók þátt í félagslífi og þar mynd- uðust sterk vináttutengsl í hópi góðra skólasystkina. Þau héldu úti vefsíðu um þjóðmálin og hafa haldið góðum tengslum síðan. Hún hafði sterkan metnað og sjálfstæðar skoðanir og ávann sér alls staðar traust. Á háskólaárun- um hófst samband hennar og Eð- varðs. Ég hef oft hugsað um það hví- lík gæfa það var fyrir þau bæði. Þau voru samstiga í lífinu og deildu áhugamálum. Þau ferðuð- ust töluvert, en frækilegust var líklega ferð þeirra á Mont Blanc sem þau skipulögðu sjálf án leið- sögumanns. Eftir að Elsa Edda dóttir þeirra fæddist hófst nýr kafli í lífi þeirra og fjölskyldna þeirra. Elsa Edda var fyrsta barnabarnið í báðum fjölskyldum þeirra, um- vafin hlýju og kærleika. Eftir að hún fæddist snerist tilveran mikið um samveru með henni, enda er Elsa Edda einstaklega elskuleg og vel gerð frænka. Berglind var sérstaklega glæsileg ung kona, há og grönn með bjartan augnsvip, hlýlegt bros og smitandi hlátur sem gladdi alla í kringum hana. Alltaf sama hlýjan og gleðin þegar ég hitti hana og oft hef ég hugsað um það hvílíkan sálarstyrk hún hafði. Þrátt fyrir það mótlæti sem fylgdi veikindum hennar var Berglind staðráðin í því að njóta lífsins til fulls meðan stætt væri. Uppgjöf var ekki til í hennar orðabók. Nú þegar ég hugsa til hennar er efst í huga þakklæti fyrir yndisleg kynni, gleði og hlýju sem alltaf var til staðar okkar á milli. Hugur okkar er nú hjá Evva og Elsu Eddu, foreldrum, bræðrum og fjölskyldum þeirra og tengda- fólki Berglindar, sem stóð ein- staklega þétt við hlið hennar. Missir þeirra er mikill. Við Steinn og fjölskylda okkar kveðjum Berglindi með miklum söknuði en minningarnar munu ylja okkur um ókomin ár. Jónína B. Jónasdóttir. Elsku Berglind vinkona er dáin, farin frá okkur alltof snemma. Þín verður sárt saknað í okkar góða hópi. Á sama tíma og söknuðurinn sækir að manni hugsar maður um allar þær góðu stundir sem við höfum átt saman og hvað það er sem þú skilur eftir. Þegar ég hugsa til þín færist bros fram á varirnar, því allar stund- irnar sem við höfum varið saman hafa verið gleðistundir. Lífsgleðin skein frá þér, elsku vinkona, alltaf brosandi og svo hláturmild, svo góður vinur og félagi. Við vinirnir höfum nú bardúsað ýmislegt sam- an. Við höfum háð marga kosn- ingabaráttuna í háskólanum, stundum unnið, stundum tapað, en alltaf staðið saman og aldrei tapað gleðinni. Einhverja bar- daga höfum við tekið saman í Sjálfstæðisflokknum, þá aðallega innan raða ungra sjálfstæðis- manna, svo fórum við vinir þínir að þvælast í prófkjör og alltaf stóðstu með okkur sama hvað okkur datt í hug að gera. Alltaf var hægt að leita til þín sem varst svo skynsöm og ráðagóð. Árin í Landsbankanum voru vægast sagt áhugaverð, það skiptust á skin og skúrir þann tíma sem við unnum saman en þetta voru sannarlega áhugaverð- ir tímar og á margan hátt ógleym- anlegir fyrir vikið. Þetta tímabil reyndi á og þá var maður þakk- látur fyrir að eiga góða vinnu- félaga eins og þig og félaga okkar á alþjóðasviði. Einna þakklátust er ég þó fyrir gönguferðirnar okkar saman, sér- staklega síðustu ferðina sem við fórum 2015 á Hornstrandir, sem átti að verða þvílík ofurmenna- ganga með allt á bakinu og gist úti í náttúrunni en endaði svo í sigl- ingu báðar leiðir og stuttri göngu. Áhugann á Hornströndum átt- um við sameiginlegan enda báðar ættaðar af svæðinu. Næsta ganga hópsins okkar er einmitt skipu- lögð á þínar slóðir í Aðalvík. Þú lagðir þitt af mörkum til að hjálpa okkur að skipuleggja þá göngu, sem þú reyndar labbaðir á 24 klst. en við ætlum okkur fimm daga í gönguna, sem segir talsvert um þann óbilandi kraft sem í þér bjó. Við munum hugsa fallega til þín og fjölskyldu þinnar í sumar þeg- ar við komum að ættaróðalinu þínu, kæra vinkona. Nú þegar komið er að kveðju- stund og ég hugsa til þín er mér þakklæti efst í huga, þakklæti fyr- ir að hafa kynnst þér, sem varst svo góð fyrirmynd. Framkoma þín, orð og gjörðir báru vott um einstaklega hlýja og góða mann- eskju sem vildi öllum vel. Elsku Evvi, Elsa Edda, fjöl- skylda og vinir, ég sendi ykkur mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Erla Ósk. Mig langar til að rita nokkur minningaorð um elsku vinkonu mína, hana Berglindi. Við kynnt- umst fyrir alvöru í MR þegar við störfuðum saman í stjórn Fram- tíðarinnar á árunum 1994-1995. Það var ýmislegt brallað á Fram- tíðarkompunni og þar var grunn- urinn lagður að ævarandi vináttu sem átti eftir að styrkjast enn frekar í gegnum vinahópinn á Deiglunni og í Vöku í Háskólan- um. Vorið 1995 tók Berglind við af mér sem forseti Framtíðarinnar og var þar með fimmta konan til að gegna því embætti í þá 112 ára sögu félagsins. Það var jafnframt í fyrsta og eina skiptið í sögu Framtíðarinnar sem konur hafa gegnt því embætti tvö ár í röð. Á háskólaárunum komu stjórn- unar- og leiðtogahæfileikar Berg- lindar enn frekar í ljós þegar hún starfaði af yfirvegun og skynsemi sem fulltrúi Vöku í Háskólaráði. Á þessum árum áttum við margar góðar stundir saman, m.a. í Vöku- ferðum til Helsinki, Tallinn og Kaupmannahafnar. Berglind var þannig gerð að jafnvel þó hún væri yngri en ég leit ég ávallt upp til hennar. Hún var afburðagreind, fáguð, glæsi- leg og brosmild stelpa sem ekki var annað hægt en að dást að. Berglind hafði mjög skýra sýn og ákveðnar skoðanir. Hún var alltaf málefnaleg og hún hafði þann einstaka hæfileika að setja fram skoðanir sínar á ákveðinn en mildan máta þannig að nánast ómögulegt var að vera henni ósammála. Í mínum huga var Berglind eðalblanda af Indiana Jones og Audrey Hepburn. Bókanördinn sem ávallt var tilbúinn í ævintýri og útivist en á sama tíma alltaf glæsileg og smekkvís. Það eru allmargir óslítanlegir strengir sem tengja okkur Berg- lindi saman, auk MR, Fram- tíðarinnar, Vöku og Deiglunnar eru það handboltinn og Horn- strandirnar sem við erum báðar ættaðar frá. Við kepptum hvor við aðra í handbolta fram á mennta- skólaaldur, hún í Haukum og ég í Gróttu. En eftir að við hættum í handboltanum vorum við alltaf í sama liðinu. Sumarið 2015 fórum við með vinum okkar á Deiglunni í ógleymanlega Hornstrandaferð þar sem við heimsóttum meðal annars Furufjörð. Ég er óendan- lega þakklát fyrir að fá að hafa upplifað þá ferð með Berglindi. Nú í sumar stefnir gönguarmur Deiglunnar á að heimsækja vík- ina hennar Berglindar, Aðalvík, og þar verður Berglindar sárt saknað. Eftir tuttugu og fimm ára langa vináttu finnst mér sárt að fá ekki fleiri góðar stundir með ynd- islegri vinkonu. Við áttum gott spjall í byrjun árs þar sem Berg- lind lumaði að sjálfsögðu á góðum ráðum varðandi gönguna í sumar og fannst leitt að þau yrðu ekki komin í tæka tíð í Aðalvík til að bjóða okkur upp á kaffi. Berglind var einstök fyrir- mynd í því hvernig hún tókst á við sinn sjúkdóm, hvernig hún mætti honum af hugrekki allt frá byrjun og hvernig hún sigraði í lífinu með því vera hún sjálf. Berglind var ávallt jákvæð, glaðvær og góð manneskja og ég á eftir að sakna hennar mikið. Elsku Evvi, Elsa Edda og nán- asta fjölskylda, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Minningin um einstaka vinkonu á eftir að lifa með okkur um ókomna tíð. Soffía Kristín. Leiðir okkar Berglindar lágu saman í Landsbankanum þar sem við höfum unnið saman undan- farin ár. Það var alltaf gaman að vinna með Berglindi. Hún heillaði mig og aðra sem með henni unnu með vinsemd og glaðlegri fram- komu, alltaf var stutt í brosið og hláturinn. Til vinnu var hún dugnaðar- forkur. Það stóð aldrei á svörum ef til hennar var leitað, úrræða- góð, klár og réttsýn. Ekki var verra að einstakir excel-hæfileik- ar hennar voru óspart nýttir þeg- ar þá kunnáttu þraut. Með árun- um óx vinskapur okkar Berglindar og fundum við honum meðal annars sameiginlegan far- veg í útihlaupum. Það vantaði aldrei upp á markmiðasetningu hjá Berglindi og áður en ég vissi af vorum við búnar að skrá okkur í fyrsta hálfmaraþonið, það dugði ekkert minna. Hlaupin urðu árleg og núna síðast fyrir tæpu ári þeg- ar við fórum í hálfmaraþon í Gautaborg. Þær stundir sem við áttum saman í hlaupunum þar sem við ræddum allt og ekkert eru dýrmætar minningar. Ég held ég geti sagt að Berglind hafi sjaldnast misst af hlaupum þrátt fyrir að vera í erfiðri lyfjameð- ferð. Stundum fórum við hratt yf- ir og stundum fórum við hægar yfir, en alltaf var hlaupið. Ótrú- legur styrkur og elja einkenndu Berglindi. Hún hugsaði alltaf vel um heilsuna og þeir voru ófáir djúsarnir og aðrir heilsudrykkir sem við fengum okkur í gegnum tíðina, við mismiklar undirtektir af minni hálfu. Berglind var frábær ferða- félagi eins og ég fékk að kynnast í þeim utanlandsferðum sem við fórum í. Tíminn var alltaf vel nýtt- ur, hvort sem það var farið út í morgunsárið að hlaupa eða leigð hjól og hjólað um borgina. Hún var fljót að átta sig á aðstæðum og setja sig inn í nýja hluti og það var alltaf eins og hún gjörþekkti stað- hætti þótt hún hefði ekki komið Berglind Hallgrímsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.