Morgunblaðið - 01.03.2019, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 01.03.2019, Blaðsíða 26
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. 26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2019 Ferðaþjónustan er skemmtilegur starfsvettvangur. Fjölbreytniner mikil, samkeppnin fjölbreytileg og sífellt eitthvað nýtt ogspennandi að glíma við. Rauði þráðurinn í þessu öllu er þó sam- skipti við fólk; samstarf og finna þannig leiðir að einhverju skemmti- legu. Lífið er eitt stórt ferðalag,“ segir Ingi Þór Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar Nonna Travel, en hann er 48 ára í dag. Ingi Þór er fæddur og uppalinn í Reykjavík. „Ég vasaðist í mörgu þegar ég var strákur, var til dæmis mikið í íþróttum. Handboltinn heill- aði og ég spilaði mörg ár með Víkingi. Hélt svo áfram í boltanum eftir að ég flutti til Noregs árið 1994. Ég bjó í Osló í alls sex ár og lærði við- skipta- og markaðsfræði við háskólann þar,“ segir Ingi Þór, sem eftir heimkomuna starfaði hjá hugbúnaðarfyrirtæki og seinna í bygging- ariðnaði. Árið 2007 var hann svo ráðinn forstöðumaður sölu- og mark- aðssviðs Flugfélags Íslands og var þar í níu ár. „Flugfélagsárin voru skemmtilegur tími þar sem mér gafst kostur á að kynnast fólki um allt landið og svo í Færeyjum og Grænlandi. Þegar ég svo ákvað að venda mínu kvæði í kross með kaupunum á Nonna Tra- vel árið 2016 bjó ég að því, enda seljum við mikið ferðir til vestnorrænu landanna þar sem ég tel vera mikil sóknarfæri í ferðaþjónustu,“ segir Ingi Þór sem býr fyrir norðan en er væntanlegur suður um helgina. Er þá ætlunin að gera eitthvað skemmtilegt með börnunum, sem eru Þór- unn Hekla 22 ára, Aron Snær 17 ára og Ísak Nói 12 ára. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Fjölbreytni „Lífið er eitt stórt ferðalag,“ segir Ingi Þór Guðmundsson. Sífellt eitthvað nýtt og spennandi Ingi Þór Guðmundsson er 48 ára í dag 86 ÁRA Starfsmannafatnaður fyrir hótel og veitingahús Hótelrúmföt og handklæði fyrir ferðaþjónustuna Eigum allt fyrir: • Þjóninn • Kokkinn • Gestamóttökuna • Þernuna • Vikapiltinn • Hótelstjórnandann Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | sími 525 8210 | eddaehf@eddaehf.is | www.eddaehf.is Allt lín fyrir: Hótelið • Gistiheimilið Bændagistinguna • Airbnb Veitingasalinn • Heilsulindina Þvottahúsið • Sérverslunina S veinbjörn Hafberg Þóris- son fæddist 1. mars 1949 í Hvammi á Akranesi en fluttist til Reykjavíkur 1952. „Ég átti heima í Balbókampi 11 við Kleppsveg í 16 ár. Ég var í sveit frá sex ára aldri, fyrst á Skrauthólum á Kjalarnesi. Þar kynntist ég fyrst kúabúskap og síðan hef ég alltaf ver- ið við bústörf og er bóndi í Reykjavík, eina starfrækta lögbýlinu í sjálfri borginni. Síðan var ég í sveit á Odds- stöðum í Lundarreykjadal og Lauf- skálum í Stafholtstungum í Borgar- firði og Syðri-Steinsmýri í Meðallandi.“ Hafberg gekk í gagnfræðaskóla verknáms og fór síðan 16 ára til Nor- egs í garðyrkjunám og lauk því frá Gjennestad gartnerskole árið 1970. Hafberg vann um tíma við að selja pottaplöntur í Noregi en kom síðan heim og vann sem skrúðgarðyrkju- Hafberg Þórisson garðyrkjumaður – 70 ára Morgunblaðið/Rósa Braga Í Lambhaga Hafberg er núna að byggja gróðrarstöð í Mosfellsdal, jafnstóra og er í Lambhaga. Kenndi Íslendingum að borða salat Brúðhjónin Hauður Helga og Hafberg á brúðkaupsdaginn 16. nóvember 2018. Aðalbjörg Jónsdóttir og Guðmundur Vignir Sigurbjarnason eiga 50 ára brúðkaupsafmæli í dag. Þau gengu í hjónaband 1. mars 1969 í Nes- kirkju og gaf séra Jón Thorarensen þau saman. Árnað heilla Gullbrúðkaup Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.