Morgunblaðið - 07.03.2019, Side 1
F I M M T U D A G U R 7. M A R S 2 0 1 9
Stofnað 1913 56. tölublað 107. árgangur
Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500
Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
Wizar
HÆGINDASTÓLL
Fyrir lífsins ljúfu stundir.
Verð frá 199.900
Litir:
Efni: Leður/tau
360° snúningur | Innbyggður fótaskemill
Hallanlegt bak | Stillanlegur höfuðpúði
SLEGIÐ Í BJÖLLU
Í KAUPHÖLLINNI
Á DEGI KVENNA
BÓK SEM
RYÐUR
BRAUTINA
ÁKVAÐ AÐ
BREYTA BÖLINU
Í BLESSUN
HAGÞENKIR 58 K100 24 SÍÐNA BLAÐAUKIVIÐSKIPTAMOGGINN
Nýir sjúkrabílar hafa ekki verið
teknir í notkun hér á landi síðan í
janúar 2016. Tilboð í útboði Ríkis-
kaupa vegna kaupa á 25 nýjum
sjúkrabílum verða opnuð 14. mars
eftir ítrekaðar frestanir.
Rauði krossinn skrifaði rekstrar-
aðilum sjúkrabíla 4. mars um stöð-
una varðandi endurnýjun sjúkrabíl-
anna. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins kemur þar m.a.
fram að búið væri að kaupa minnst
37 sjúkrabíla ef samningur RKÍ og
ríkisins, sem var handsalaður fyrir
rúmum tveimur árum, hefði komist
í framkvæmd. »38
Morgunblaðið/Eggert
Sjúkraflutningar Ríkið hyggst taka við
rekstri sjúkrabíla af Rauða krossinum.
Engir nýir sjúkrabíl-
ar síðan árið 2016
Meðal þeirra fjögurra sem hafa nú
greinst með mislinga hér á landi er
barn sem hefur verið í einangrun á
Barnaspítala Hringsins undanfarna
daga. Ásgeir Haraldsson, yfirlæknir
á Barnaspítala Hringsins, staðfesti
þetta í samtali við mbl.is í gær.
Til stóð að útskrifa barnið, sem er
ellefu mánaða gamalt, af spítalanum
í gær eða næstu daga. Að sögn Ás-
geirs voru veikindi barnsins þess
eðlis að það þurfti að dvelja á spít-
alanum, á meðan hitt barnið sem
greindist var ekki eins veikt og er
því í einangrun heima hjá sér.
Ekki er útilokað að fleiri eigi eftir
að greinast með mislinga hér á landi.
Fjöldi smitaðra nú er sá mesti
sem greinst hefur með sjúkdóminn
frá árinu 1977.
Þeir sem hafa smitast eru búsettir
á Austurlandi og á höfuðborgar-
svæðinu. Að sögn Péturs Heimis-
sonar, umdæmislæknis sóttvarna á
Austurlandi, er nú unnið að því að
finna þá sem taldir eru hafa orðið út-
settir fyrir smiti á svæðinu. »10
Í einangrun
á Barna-
spítalanum
Fjöldi tilvika er sá
mesti í rúm 40 ár
Börn í skrautlegum búningum gengu víða um í
gær, sungu og fengu góðgæti að launum. Þeim
sem litu inn í verslunina Myconceptstore við
Laugaveg var vel tekið. Starfsfólkið þar hafði
líka klætt sig í búninga í tilefni af öskudeginum
og skemmti sér konunglega.
Í vestrænni kristni markar öskudagur upphaf
lönguföstu sem stendur til páska. Föstuna átti að
nota til íhugunar og aðhalds, t.d. í mat.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skrautlega klætt fólk á öllum aldri fagnaði öskudegi
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Það er ljóst að leikskólarnir verða
óstarfhæfir ef allar þessar uppsagn-
ir taka gildi og þá er ekkert annað í
stöðunni en að senda börnin heim,“
segir Friðbjörg Gísladóttir, leik-
skólakennari á Hólaborg í Breið-
holti, í samtali við Morgunblaðið.
Vísar hún í máli sínu til tillögu
skóla- og frístundasviðs Reykjavík-
urborgar þess efnis að sameina
skuli yfirstjórn tveggja leikskóla,
Suðurborgar og Hólaborgar, í Suð-
urhólum í Breiðholti. Friðbjörg seg-
ir hvorki starfsfólki né foreldrum
hafa verið kynnt þessi tillaga áður
en hún var samþykkt. Þess í stað
var sendur út tölvupóstur sem til-
kynnti um ákvörðunina og verður
hún tekin fyrir á fundi borgarráðs í
dag.
Mikil andstaða er meðal starfs-
fólks leikskólanna við fyrirhugaða
sameiningu. Hafa nú alls tíu starfs-
menn Suðurborgar og Hólaborgar
sagt upp eða íhuga að segja upp. Af
þeim sem sagt hafa upp í Suður-
borg eru þrír leikskólakennarar,
þar af einn með deildarstjórn og
annar sem sinnir starfi sérkennslu-
stjóra. Einnig eru fjórir starfsmenn
til viðbótar með uppeldismenntun
sem hafa sagt upp störfum eða
íhuga að segja upp.
Í Hólaborg eru þrír starfsmenn
búnir að segja upp og sinna tveir
þeirra deildarstjórn.
Foreldri barns á Suðurborg sem
Morgunblaðið ræddi við segir for-
eldra þar almennt sátta við núver-
andi fyrirkomulag. „Við teljum það
vera algjöra ókurteisi af hálfu
Reykjavíkurborgar að vera að
raska þessu góða starfi,“ segir sá.
Gætu orðið óstarfhæfir
Tíu starfsmenn tveggja leikskóla í Breiðholti hafa sagt upp eða íhuga uppsögn
Gagnrýna tillögu skóla- og frístundasviðs um að sameina yfirstjórn leikskólanna
Vilji borgarinnar
» Skóla- og frístundasvið vill
sameina yfirstjórn Suður-
borgar og Hólaborgar í Breið-
holti.
» Fallið er frá fyrri áformum
um fulla sameiningu skólanna.
» Sviðið segir innra starf leik-
skólanna munu haldast
óbreytt en starfsfólk segir það
ekki líklegt.
M Hvetja borgarfulltrúa »6