Morgunblaðið - 25.04.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2019
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
595 1000
HEILLANDI HEIMUR
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
b
á
f
i
Verð frá kr.
319.995
MEÐ 10.000 kr. BÓKUNARAFSLÆTTI TIL 3. MAÍ
ðg
etu
SpánarogPortúgals
Madrid – Salamanca – Dourodalurinn – Braga – Porto
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Viðbyggingin sem áformað er að
byggja við Stjórnarráðshúsið í
miðbæ Reykjavíkur gæti verið tilbú-
in árið 2023. Stefnt er að því að
skóflustunga að byggingunni verði
tekin eftir tvö ár.
Þetta segir Guðrún Ingvarsdóttir,
forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins,
sem hefur yfirumsjón með verkinu.
Hún segir að nú sé verið að semja við
arkitektastofuna Kurt og Pí um fulln-
aðarhönnun verksins. Stofan fékk
fyrstu verðlaun í samkeppni um við-
bygginguna, en samningar hafa
dregist þar sem framkvæmd sam-
keppninnar var kærð til kæru-
nefndar útboðsmála. Nefndin hefur
nú úrskurðað að ekkert sé í vegi fyrir
því að semja við arkitektastofuna.
Viðbyggingin verður um 1.200 fer-
metrar og á að hýsa flestar skrif-
stofur forsætisráðuneytisins, funda-
rými og aðstöðu fjölmiðla. Í tengslum
við verkið er gert ráð fyrir því að
endurskoðað verði innra skipulag
Stjórnarráðshússins og húsið tengt
við viðbygginguna.
Ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir
Stjórnarráðslóðina. Guðrún segir að
hafinn sé undirbúningur að deili-
skipulagstillögu í samvinnu við borg-
aryfirvöld. Þeirri vinnu ætti að ljúka
innan hálfs árs. Þá stendur til að
fram fari fornleifarannsókn á bygg-
ingarsvæðinu. Ekki er ljóst hvort það
verður á þessu ári eða næsta. Um er
að ræða rannsókn á rótuðum mann-
vistarlögum undir núverandi yf-
irborðslögnum og hins vegar rann-
sókn á eldri mannvistarleifum sem
kunna að leynast þar undir. Óskað
var eftir tilboðum í rannsóknina í
nóvember í fyrra, en eftir er að vinna
úr málinu.
Samkvæmt frumathugun sem
Framkvæmdasýsla ríkisins gerði ár-
ið 2017 má ætla að kostnaður við
byggingu 1.200 fermetra húss við
Stjórnarráðshúsið geti numið allt að
milljarði króna. Kostnaður á þó eftir
að skýrast frekar.
Gæti verið tilbúin árið 2023
Unnið af fullum krafti að undirbúningi viðbyggingar við Stjórnarráðshúsið
Nýtt deiliskipulag fyrir lóðina unnið Fornleifarannsókn í ár eða á næsta ári
Tölvuteikning/Framkvæmdasýsla ríkisins
Viðbygging Tölvugerð mynd sem sýnir hvernig byggingin gæti litið út séð
frá Bankastræti. Tengigangur verður við Stjórnarráðshúsið.
Miðasala á tónleika bresku hljóm-
sveitarinnar Duran Duran fer vel af
stað. „Við erum mjög ánægðir með
ganginn í þessu,“ segir Björgvin Þór
Rúnarsson, kynningarstjóri Mono
sem annast tónleikana.
Almenn sala miða hófst í gær-
morgun á miðasöluvefnum Tix.is en
daginn áður gafst félögum í aðdá-
endaklúbbi hljómsveitarinnar og
fólki á póstlista Tix að kaupa miða í
forsölu. Þórarinn segir að miðasalan
sé komin vel af stað og áætlaði að í
gær væri um helmingur miðanna
seldur.
Tónleikarnir verða í Laugardals-
höll 25. júní næstkomandi. Hljóm-
sveitin hefur áður haldið tónleika
hér á landi. Það var í Egilshöll fyrir
14 árum.
Um 10 þúsund miðar á tónleikana
eru í boði.
Duran Duran Hljómsveitin í dag,
Roger Taylor, John Taylor, Simon
Le Bon og Nick Rhodes.
Miðasala
byrjar vel
Um helmingur
miða er seldur
Karlmaður með erlent ríkisfang sem
búsettur er hér á landi lést í umferð-
arslysi skammt frá Húnaveri í
Langadal í Austur-Húnavatnssýslu
seint í fyrrakvöld.
Maðurinn var ökumaður bifreiðar
á suðurleið sem lenti út af veginum
um klukkan tíu um kvöldið og valt
margar veltur. Hann var einn í bíln-
um. Reyndist maðurinn alvarlega
slasaður og báru lífgunartilraunir
ekki árangur, samkvæmt upplýs-
ingum lögreglu. Var hann úrskurð-
aður látinn á vettvangi.
Mikið björgunarlið fór á vettvang,
meðal annars frá Brunavörnum
A-Húnavatnssýslu. Óskað var að-
stoðar þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Banaslys
í Langadal
Hjálmar Sigmarsson, fyrrverandi
bóndi á Hólakoti í Unadal í Skaga-
firði, fagnaði 100 ára afmæli sínu í
gær. Hann dvelur nú á hjúkr-
unardeild Heilbrigðisstofnunar
Norðurlands á Sauðárkróki. Á ann-
að hundrað manns mættu í afmæl-
isveisluna, mest fjölskylda hans en
hann á yfir 90 afkomendur.
Hjálmar var fæddur árið 1919 á
bænum Svínavallakoti í Unadal,
fjórði í röð átta bræðra. Flutti á
fyrsta ári með foreldrum sínum að
Þverá í Hrolleifsdal, síðar að Bjarna-
stöðum í Unadal og loks á Hofsós og
þar ólust bræðurnir upp.
Hjálmar hafði áhuga á búskap og
tók þriðjung jarðarinnar Ennis í
Hofshreppi á leigu og hóf þar bú-
skap. Hann keypti jörðina Hólkot í
Unadal árið 1944, byggði upp jörð-
ina og bjó þar lengst af.
Eiginkona Hjálmars, Guðrún
Hjálmarsdóttir, lést á síðasta ári, ní-
ræð að aldri. Þau eignuðust 10 börn.
Hjálmar fagnar 100 ára
afmæli í faðmi fjölskyldunnar
Skagfirðingur Hjálmar Sigmarsson fagnaði 100 ára afmælinu í gær.
Hlýnun andrúmsloftsins ræður því að Snæfells-
jökull verður að öllum líkindum að mestu horf-
inn um miðja þessa öld. Þetta segir Þorsteinn
Þorsteinsson jöklafræðingur á Veðurstofu Ís-
lands. Vísindamenn og fleiri fóru í leiðangur á
jökulinn sl. mánudag og mældu snjóalög vetr-
arins auk þess að gera ýmsar fleiri athuganir.
Fékk mannskapurinn hið besta veður; glamp-
andi sólskin svo sást vel inn eftir Snæfellsnesi,
um Borgarfjörð og yfir Faxaflóann.
Allar niðurstöður sýna að Snæfellsjökull gefur
hratt eftir, en hann er nú um 10 ferkílómetrar að
flatarmáli en var meira en helmingi stærri fyrir
rúmri öld. Til stendur að auka mælingar á jökl-
inum í framtíðinni. »6
Ljósmynd/Jón Björnsson
Telja Snæfellsjökul verða horfinn um miðja öldina