Morgunblaðið - 25.04.2019, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 25.04.2019, Blaðsíða 30
30 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2019 VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfða 8. - 110 Reykjavík Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is Mikið úrval varahluta í Ifor Williams kerrur og allar aðrar gerðir af kerrum, ásamt úrvals viðgerðarþjónustu Ifor Willams Kerrur í öllum stærðum og útfærslum Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Leiðtogar 37 ríkja og embættismenn frá tugum annarra landa taka þátt í þriggja daga fundi sem hefst í Pek- ing í dag og er haldinn til að ræða umdeilda framkvæmdaáætlun Kín- verja sem nefnd hefur verið Belti og braut. Gert er ráð fyrir að Kínverjar reyni á fundinum að draga úr gagn- rýni sem áætlunin hefur sætt, meðal annars vegna ásakana um að fram- kvæmdirnar auki skuldabyrði fá- tækra samstarfsríkja. Samkvæmt áætluninni er stefnt að miklum fjárfestingum í vegum, járn- brautum, höfnum, flugvöllum og öðr- um mannvirkjum í 65 löndum í Asíu, Evrópu og Afríku með það fyrir aug- um að greiða fyrir viðskiptum og að- gangi Kínverja að mikilvægum markaðssvæðum og hráefnum til iðnaðar. Xi Jinping, forseti Kína, hrinti áætluninni í framkvæmd árið 2013 og heildarverðmæti verkefnanna sem boðuð hafa verið nemur 3,67 billjónum dollara, jafnvirði tæpra 450 billjóna króna, að því er frétta- veitan Reuters hefur eftir sérfræð- ingum í heimsviðskiptum. Stjórnvöld í Peking segja að kínversk fyrirtæki hafi fjárfest fyrir andvirði 90 millj- arða dollara (tæpra 11.000 milljarða króna) í löndum sem taka þátt í áætl- uninni og veitt lán að andvirði 200- 300 milljarða dollara (24.000 til 36.000 milljarða króna) á árunum 2013 til 2018. Samstarfsríki í skuldagildru? Stjórnvöld í Bandaríkjunum og fleiri vestrænum löndum hafa sakað Kínverja um að hafa aukið skulda- byrði fátækra ríkja með því að veita þeim lán til að fjármagna óarðbær verkefni í tengslum við Belti og braut og telja að meginmarkmiðið með áætluninni sé að styrkja stöðu Kína sem heimsveldis. Fyrir- komulagið er oft þannig að kínversk- ur banki veitir samstarfsríki lán til að fjármagna ákveðin byggingar- verkefni og landið gerir síðan samn- ing við kínverska verktaka um fram- kvæmdina og rekstur mannvirkisins. Samstarfsríkið þarf síðan að greiða afborganir af láninu í áratugi og í sumum tilvikum þarf það einnig að greiða kínverska fyrirtækinu þókn- un fyrir rekstur mannvirkisins, að sögn The Wall Street Journal. Til að mynda hafa íbúar Afríkuríkja kvart- að yfir því að verktakarnir noti marga kínverska verkamenn við framkvæmdirnar í stað þess að ráða heimamenn. Nokkrir vestrænir embættismenn hafa jafnvel sakað Kínverja um að hegða sér eins og ný- lenduveldi í Afríku til að efla efnahag Kína. Kínversk stjórnvöld neita þessu og segja að fjárfestingarnar og lánin stuðli að auknum hagvexti í fátækum löndum og segja ekkert hæft í því að samstarfsríki þeirra lendi í „skulda- gildru“ eins og haldið hefur verið fram á Vesturlöndum. Belti og braut greiði fyrir auknum milliríkja- viðskiptum og komi þannig öllum heiminum til góða. Ágreiningur milli Evrópuríkja Leiðtogar 37 ríkja sitja fundinn í Peking, þeirra á meðal Vladimír Pút- ín Rússlandsforseti. Bandaríkja- stjórn ákvað að senda ekki neinn embættismann frá Washington á fundinn og flest ríki Evrópu sendu ekki leiðtoga sinn, heldur ráðherra efnahagsmála. Nokkrir leiðtogar að- ildarríkja Evrópusambandsins ákváðu þó að mæta á fundinn og flestir þeirra gerðu það til að ergja leiðtoga ESB, að því er fréttaveitan AFP hefur eftir fréttaskýrendum. Á meðal leiðtoganna á fundinum eru Giuseppe Conte, forsætisráð- herra samsteypustjórnarinnar á Ítalíu, Viktor Orbán, forsætisráð- herra Ungverjalands, Sebastian Kurz, kanslari Austurríkis, og sósíal- istinn Alexis Tsipras, forsætisráð- herra Grikklands. Ítalía varð fyrsta G7-ríkið til að undirrita samning um þátttöku í Braut og belti þegar Xi Jinping heimsótti landið í mars. Sú ákvörðun ítölsku samsteypustjórnarinnar reitti bandarísk stjórnvöld til reiði og ráðamenn nokkurra samstarfsríkja Ítalíu í ESB og NATO gagnrýndu hana. Þeir sögðu hana meðal annars geta orðið til þess að Kínverjar fengju tangarhald á samgöngu- mannvirkjum á Ítalíu og aðgang að hernaðarlega mikilvægri tækni. Heimildir: Ríkisfjölmiðlar í Kína Áform Kínverja um Belti og braut Stefnt er að miklum fjárfestingum í járnbrautum, vegum og höfnum í 65 löndum frá Asíu til Evrópu og Afríku með það fyrir augum að greiða fyrir viðskiptummilli Kína og annarra landa Helstu leiðir, hafnir og borgir Xian Hangzhou Lanzhou Peking Urumqi Bichkek Almaty Astana Samarcande Kashgar IslamabadTehran Istanbúl Moskva Rotterdam Feneyjar Aþena Mombasa Djibbútí KolkataGwadar Colombo Jakarta Hanoi Zhanjiang Kuala Lumpur Siglingaleiðir Vegir Járnbrautir Duisburg Belti og braut í brennidepli  Leiðtogar og fulltrúar tuga landa sitja fund um umdeilda framkvæmdaáætlun kínverskra stjórn- valda  Evrópuríki greinir á um þátttöku í áætluninni  Sögð styrkja stöðu Kína sem heimsveldis
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.