Morgunblaðið - 25.04.2019, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 25.04.2019, Blaðsíða 46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2019 Stangarhyl 1 | 110 Reykjavík | Sími: 570-8600 Smyril Line Seyðisfjörður 4702808 | info@smyril-line.is | www.smyrilline.is Taktu bílinn með til Færeyja eða Danmerkur Bókaðu núna og tryggðu þér pláss FÆREYJAR 2 fullorðnir með fólksbíl verð á mann frá ÍSK 16.600 Vikulegar siglingar allt árið til Færeyja og Danmerkur DANMÖRK 2 fullorðnir með fólksbíl verð á mann frá ÍSK 30.750 Marta María mm@mbl.is „Þegar ég gekk í FKA fyrir tæp- um 20 árum, þá rúmlega 35 ára, snerist lífið aðallega um vinnuna og að sinna fjölskyldunni – þátt- taka mín í íslensku viðskiptalífi var í raun bundin við rekstur Pfaff. FKA gjörbreytti þessu því fljót- lega eftir að ég gekk í félagið sett- ist ég í stjórn og varð seinna for- maður. Þannig fór ég að hafa afskipti af og vilja breyta því um- hverfi sem við vorum í og með hverju árinu stækkaði tengsla- netið. FKA hefur því gert mjög mikið fyrir mig persónulega – þar hef ég eignast góðar vinkonur og gríðarlega gott tengslanet. FKA sýndi mér einnig að það var hægt að breyta hlutunum og var í raun ákveðinn stökkpallur inn í önnur störf í hagsmunagæslu fyrir at- vinnulífið sem ég seinna tók að mér fyrir FÍS, Samtök verslunar og þjónustu og Samtök atvinnulífs- ins,“ segir Margrét. Hvers vegna skipt- ir FKA máli? „Þó að okkur finnist hlutirnir ganga hægt er engu að síður mikill munur á þeirri stöðu sem blasir við okkur í dag og þegar FKA var stofnað fyrir 20 árum. Nægir að horfa til þeirra verkefna sem FKA hefur haft frumkvæði að til að sjá hverju félagið hefur áorkað og að mínu áliti vegur þar einna þyngst barátta félagsins að auka hlut kvenna í stjórnum fyrirtækja. Þá baráttu leiddi FKA en fékk seinna öfluga bandamenn með sér í lið og skipti miklu að fá Við- skiptaráð og SA með í baráttuna enda varð fjölgun kvenna í stjórn- um fyrirtækja fyrir vikið ekki sér- stakt baráttumál kvenna heldur varð að baráttumáli alls viðskipta- lífsins. En síðan má ekki gleyma að FKA er mjög góður vettvangur til að kynnast konum – en einnig körlum í atvinnulíf- inu – en gott tengslanet getur verið gulls ígildi,“ segir hún. Hvernig finnst þér kvennabaráttan hafa þróast á þessum 20 árum sem FKA hefur verið starfandi? „Ég sagði það í þakkarræðu minni á FKA-hátíðinni að kannski hefði mín kynslóð orðið værukær með aldrinum enda margir sigrar í höfn – og ítrekað er Íslandi hamp- að fyrir að vera fremst í heimi þegar kemur að jafnréttismálum – efst á flestum listum þegar jafn- rétti er vegið og mælt. En ég sagði einnig að við værum ekki best – við værum einfaldlega skást og það er himinn og haf á milli þess að vera best og vera skást. Við er- um því að skilja ungu kynslóðina eftir með risaverkefni því að mínu viti getur og á Ísland að taka af- gerandi forystu í jafnréttismálum á alheimsvísu. Við eigum ekki að sætta okkur við að vera efst í tossabekk – heldur eigum við að gera þetta af alvöru því með sam- hentu átaki getum við svo sann- arlega orðið dúxinn í jafnrétt- ismálum,“ segir Margrét. Margrét var heiðruð sérstaklega á FKA-hátíðinni sem haldin var á dögunum. Aðspurð hvernig henni hafi orðið við þegar hún fékk verð- launin segir hún að sér hafi hlýnað mikið um hjartaræturnar við þetta. „Ég get alveg viðurkennt að mér þykir sérstaklega vænt um þessa viðurkenningu enda alltaf litið á FKA sem „mitt“ félag og það er alltaf notalegt að fá klapp á bakið frá sínum félögum. En mér þótti sérstaklega vænt um tímasetn- inguna því FKA er 20 ára í ár og fjölskyldufyrirtækið okkar Pfaff fagnar 90 ára afmæli á sama tíma, þannig að mér þótti óneitanlega gaman að þetta skyldi lenda á þessum tímamótum. Svona viður- kenningar breyta kannski ekki miklu í hinu daglega lífi en beina þó í stutta stund athygli að þeim verkum sem þú hefur unnið að og þeim árangri sem náðst hefur. En ekki síst gaf viðurkenningin mér gott tækifæri til að brýna ungar konur í þeim verkefnum sem fram undan eru – því þó að mín kynslóð hafi náð að setja nokkrar sprungur í glerþakið verða þær að vera kyn- slóðin sem mölvar bévítans gler- þakið,“ segir hún. Hvert er besta ráðið sem þú hef- ur fengið varðandi vinnuna? „Vertu heilt yfir almennileg manneskja – komdu fram við fólk eins og þú vilt að það komi fram við þig og mundu að orðsporið verður það eina sem þú tekur með þér í gröfina. Það verða allir að græða í fyrirtækjarekstri en það er mikill munur á gróða og græðgi,“ segir hún. Margir sigrar í höfn Margrét Kristmannsdóttir, framkvæmdastjóri Pfaff, sem fagnaði 90 ára afmæli á dögunum, hefur verið áberandi í FKA síðan félagið var stofnað fyrir 20 árum. Margrét er FKA-viðurkenningarhafi 2019 og segir hún að félagið hafi breytt mjög miklu í íslensku samfélagi og það sé dýrmætt fyrir konur að hafa gott tengsla- net. Það þýði ekkert að vera á tossabekk þegar jafnréttismál séu annars vegar. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Morgunblaðið/JúlíusMorgunblaðið/Þorkell Morgunblaðið/Eggert Margrét Kristmannsdóttir FKA 2003 Hér tekur Svava Johansen forstjóri NTC við viðurkenningu. Með á myndinni eru Rannveig Rist, Jórunn Brynjólfsdóttir verslunar- eigandi, Elín Hirst, Helga Ingimundardóttir og Dagný Halldórsdóttir. FKA 2006 Hér tekur Ásdís Halla Bragadóttir, þá forstjóri BYKO, við viðurkenningu. Tengslanet Margrét Kristmannsdóttir ásamt Soffíu Johnson, Maríu Maríusdóttiur og Dagnýju Halldórsdóttur. FKA 2004 Hér eru Sigríður Erlends- dóttir, Ellen Snorradóttir, Vigdís Finn- bogadóttir og Helga Gröndal í hófi FKA.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.