Morgunblaðið - 25.04.2019, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2019
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fasteignaþróunarfyrirtækið Rauðs-
vík hefur sett á sölu 70 íbúðir í nýju
fjölbýlishúsi á Hverfisgötu 85-93.
Salan sætir tíðindum á íslenskum
fasteignamarkaði enda sjaldgæft að
svo margar nýjar íbúðir komi í sölu í
miðborg Reykjavíkur.
Þær verða afhentar í ágúst.
Að sögn Sturlu Geirssonar, fram-
kvæmdastjóra Rauðsvíkur, er með-
alverð íbúðanna um 708 þúsund
krónur á fermetrann. Í húsinu eru 57
tveggja herbergja íbúðir, 12 þriggja
herbergja og ein fjögurra herbergja.
Stærð íbúða er á bilinu 44-122 fer-
metrar og verðið frá 37,9 milljónum
til 87,9 milljóna fyrir 122 fm þakíbúð.
Bílastæði fylgir öllum íbúðum nema
um annað sé samið. Þær afhendast
fullbúnar en án gólfefna í megin-
rýmum. Bílakjallari er undir húsinu
en akleiðin í hann er milli Bjarna-
borgar og fyrirhugaðs Radisson
Red-hótels á Skúlagötu 26.
Á jarðhæð fjölbýlishússins verður
þjónusta sem setja mun mikinn svip
á þennan hluta Hverfisgötu.
Arkitekt hússins er Arkþing.
Endurgerðu sögufrægt hús
Jafnframt stendur til að setja á
sölu tvær íbúðir á miðhæð og í risi á
Hverfisgötu 84. Húsið hefur verið
endurgert en þar var meðal annars
verslunin Varmá á sínum tíma.
Á jarðhæð verður þjónusta.
Í haustbyrjun er svo áformað að
hefja sölu 24 íbúða og atvinnurýmis á
Hverfisgötu 92 og svo á 5-6 íbúðum á
Hverfisgötu 88-90 í kjölfarið. Þar
verður einnig atvinnurými.
Fasteignasölurnar Eignamiðlun
og Miklaborg eru með íbúðirnar í
sölu. Opið hús verður um helgina.
Framkvæmdir við húsið hófust
árið 2017. Með framkvæmdunum
verður til ný göngugata milli Lauga-
vegs og Hverfisgötu. Hún hefur ekki
fengið nafn.
Fram kemur á vefsíðu verkefnis-
ins, Vitaborg.is, að Hverfisgata 85-
93 sé hluti af heildaruppbyggingu á
hluta Baróns- og Laugavegsreits
með nýjum göngustígum, uppgerð-
um eldri húsum auk nýbygginga.
Áformaðar séu listskreytingar á
svæðinu í samvinnu við borgina.
Hefja sölu á 70 íbúðum
á Hverfisgötu 85-93
Fyrstu íbúðirnar á þéttingarreit í borginni koma á markað
Tölvuteikning/Onno
Hverfisgata 85-93 Bílakjallari er undir húsinu. Á jarðhæð verður atvinnuhúsnæði. Húsið breytir götumyndinni.
Hverfisgata 88-90 Áætluð verklok og afhending íbúða er í febrúar 2020.
Hverfisgata 92 Áformað er að hefja sölu íbúða í þessum húsum í haust.
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
2019 Ram Limited 3500
Nýtt útlit 2019!
Litur: Perlurauður/ svartur að innan (einnig til Granite
Crystal) Nýr 6,7L Cummins Turbo Diesel, togar 1000
pund! Aisin sjálfskipting, upphitanleg og loftkæld sæti,
hiti í stýri, sóllúga, nýr towing technology pakki.
VERÐ
11.790.000 m.vsk
2019 Chrysler Pacifica Hybrid
Limited
Glæsilegur 7 manna bíll. Einn með öllu, t.d. hita/
kæling í sætum, glerþak, leðursæti, bakkmyndavél,
Dvd spilari, Harman Kardon hljómflutningskerfi o.fl
o.fl. 3,6 L Hybrid.
VERÐ
8.490.000 m.vsk
2019 GMC Denali 3500
Litur: Silver, svartur að innan.
6.6L Duramax Diesel, 445 HÖ,
2019 Módel, Vel útbúinn bíll t.d. upphitað stýri, BOSE
hátalarakerfi, dual alternators, upphituð og loftkæld
sæti, geymsla undir aftursæti, heithúðaður pallur og
kúla í palli (5th wheel pakki) og fleira.
VERÐ
11.360.000 m.vsk
2018 Ford F-150 Platinum
Ekinn 10.000 km. Litur: Platinum white / svartur að
innan. Upphækkaður, tölvubreyting 431 hö, lok á
palli, Ceramic húðaður. Quad-beam LED hedlights,
bakkmyndavél, heithúðaður pallur, sóllúga, fjarstart,
20” felgur. 3,5 L Ecoboost (V6), 10-gíra, 431 hestöfl,
470 lb-ft of torque
VERÐ
11.790.000 m.vsk
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma
Meðalverð á grásleppu sem seld er
á markaði er nú 290 krónur á kíló,
en var í fyrra 205 krónur. Það kem-
ur því á óvart að bátum á grásleppu
hafi aðeins fjölgað um 10 milli ára,
en alls hafa 159 bátar hafið veiðar,
segir á heimasíðu Landssambands
smábátaeigenda.
Þrátt fyrir fleiri báta á grá-
sleppuvertíð en í fyrra og að fleiri
dagar hafi verið nýttir er afli nán-
ast sá sami og á sama tíma fyrir ári.
Vertíðin hófst 20. mars og mega
leyfishafar róa í 44 daga samfellt
frá því að netin eru lögð og er veiði-
tíminn fyrir norðan og austan langt
kominn. Mestum afla hafði í byrjun
vikunnar verið landað á Bakkafirði
eða 182 tonnum, 174 tonnum á
Drangsnesi og 168 tonnum á
Hólmavík. Alls hefur grásleppuafla
verið landað á 33 stöðum.
Aflahæsti báturinn var kominn
yfir 40 tonn. Hlökk ST var með 41,5
tonn, Hólmi ÞH 39 tonn og Sund-
hani ST með 38,3 tonn. Alls voru sjö
bátar komnir með yfir 30 tonn. Á
sama tíma í fyrra höfðu níu bátar
náð 30 tonnum og aflahæstur þá
var kominn með um 45,9 tonn.
Hátt verð en lítil fjölgun báta á grásleppu