Morgunblaðið - 25.04.2019, Síða 46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2019
Stangarhyl 1 | 110 Reykjavík | Sími: 570-8600
Smyril Line Seyðisfjörður 4702808 |
info@smyril-line.is | www.smyrilline.is
Taktu bílinn með
til Færeyja eða
Danmerkur
Bókaðu
núna og
tryggðu
þér pláss
FÆREYJAR
2 fullorðnir með fólksbíl
verð á mann frá
ÍSK 16.600
Vikulegar siglingar
allt árið til Færeyja
og Danmerkur
DANMÖRK
2 fullorðnir með fólksbíl
verð á mann frá
ÍSK 30.750
Marta María
mm@mbl.is
„Þegar ég gekk í FKA fyrir tæp-
um 20 árum, þá rúmlega 35 ára,
snerist lífið aðallega um vinnuna
og að sinna fjölskyldunni – þátt-
taka mín í íslensku viðskiptalífi var
í raun bundin við rekstur Pfaff.
FKA gjörbreytti þessu því fljót-
lega eftir að ég gekk í félagið sett-
ist ég í stjórn og varð seinna for-
maður. Þannig fór ég að hafa
afskipti af og vilja breyta því um-
hverfi sem við vorum í og með
hverju árinu stækkaði tengsla-
netið. FKA hefur því gert mjög
mikið fyrir mig persónulega – þar
hef ég eignast góðar vinkonur og
gríðarlega gott tengslanet. FKA
sýndi mér einnig að það var hægt
að breyta hlutunum og var í raun
ákveðinn stökkpallur inn í önnur
störf í hagsmunagæslu fyrir at-
vinnulífið sem ég seinna tók að
mér fyrir FÍS, Samtök verslunar
og þjónustu og Samtök atvinnulífs-
ins,“ segir Margrét.
Hvers vegna skipt-
ir FKA máli?
„Þó að okkur
finnist hlutirnir
ganga hægt er
engu að síður mikill
munur á þeirri
stöðu sem blasir við
okkur í dag og þegar
FKA var stofnað
fyrir 20 árum.
Nægir að
horfa til
þeirra
verkefna
sem
FKA hefur haft frumkvæði að til
að sjá hverju félagið hefur áorkað
og að mínu áliti vegur þar einna
þyngst barátta félagsins að auka
hlut kvenna í stjórnum fyrirtækja.
Þá baráttu leiddi FKA en fékk
seinna öfluga bandamenn með sér
í lið og skipti miklu að fá Við-
skiptaráð og SA með í baráttuna
enda varð fjölgun kvenna í stjórn-
um fyrirtækja fyrir vikið ekki sér-
stakt baráttumál kvenna heldur
varð að baráttumáli alls viðskipta-
lífsins. En síðan má ekki gleyma
að FKA er mjög góður vettvangur
til að kynnast konum – en
einnig körlum í atvinnulíf-
inu – en gott tengslanet
getur verið gulls ígildi,“
segir hún.
Hvernig finnst þér
kvennabaráttan hafa
þróast á þessum 20 árum sem
FKA hefur verið starfandi?
„Ég sagði það í þakkarræðu
minni á FKA-hátíðinni að kannski
hefði mín kynslóð orðið værukær
með aldrinum enda margir sigrar í
höfn – og ítrekað er Íslandi hamp-
að fyrir að vera fremst í heimi
þegar kemur að jafnréttismálum –
efst á flestum listum þegar jafn-
rétti er vegið og mælt. En ég sagði
einnig að við værum ekki best –
við værum einfaldlega skást og
það er himinn og haf á milli þess
að vera best og vera skást. Við er-
um því að skilja ungu kynslóðina
eftir með risaverkefni því að mínu
viti getur og á Ísland að taka af-
gerandi forystu í jafnréttismálum
á alheimsvísu. Við eigum ekki að
sætta okkur við að vera efst í
tossabekk – heldur eigum við að
gera þetta af alvöru því með sam-
hentu átaki getum við svo sann-
arlega orðið dúxinn í jafnrétt-
ismálum,“ segir Margrét.
Margrét var heiðruð sérstaklega
á FKA-hátíðinni sem haldin var á
dögunum. Aðspurð hvernig henni
hafi orðið við þegar hún fékk verð-
launin segir hún að sér hafi hlýnað
mikið um hjartaræturnar við
þetta.
„Ég get alveg viðurkennt að mér
þykir sérstaklega vænt um þessa
viðurkenningu enda alltaf litið á
FKA sem „mitt“ félag og það er
alltaf notalegt að fá klapp á bakið
frá sínum félögum. En mér þótti
sérstaklega vænt um tímasetn-
inguna því FKA er 20 ára í ár og
fjölskyldufyrirtækið okkar Pfaff
fagnar 90 ára afmæli á sama tíma,
þannig að mér þótti óneitanlega
gaman að þetta skyldi lenda á
þessum tímamótum. Svona viður-
kenningar breyta kannski ekki
miklu í hinu daglega lífi en beina
þó í stutta stund athygli að þeim
verkum sem þú hefur unnið að og
þeim árangri sem náðst hefur. En
ekki síst gaf viðurkenningin mér
gott tækifæri til að brýna ungar
konur í þeim verkefnum sem fram
undan eru – því þó að mín kynslóð
hafi náð að setja nokkrar sprungur
í glerþakið verða þær að vera kyn-
slóðin sem mölvar bévítans gler-
þakið,“ segir hún.
Hvert er besta ráðið sem þú hef-
ur fengið varðandi vinnuna?
„Vertu heilt yfir almennileg
manneskja – komdu fram við fólk
eins og þú vilt að það komi fram
við þig og mundu að orðsporið
verður það eina sem þú tekur með
þér í gröfina. Það verða allir að
græða í fyrirtækjarekstri en það
er mikill munur á gróða og
græðgi,“ segir hún.
Margir sigrar í höfn
Margrét Kristmannsdóttir, framkvæmdastjóri Pfaff, sem fagnaði 90 ára afmæli á
dögunum, hefur verið áberandi í FKA síðan félagið var stofnað fyrir 20 árum.
Margrét er FKA-viðurkenningarhafi 2019 og segir hún að félagið hafi breytt mjög
miklu í íslensku samfélagi og það sé dýrmætt fyrir konur að hafa gott tengsla-
net. Það þýði ekkert að vera á tossabekk þegar jafnréttismál séu annars vegar.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Morgunblaðið/JúlíusMorgunblaðið/Þorkell
Morgunblaðið/Eggert
Margrét
Kristmannsdóttir
FKA 2003 Hér tekur Svava Johansen forstjóri NTC við viðurkenningu.
Með á myndinni eru Rannveig Rist, Jórunn Brynjólfsdóttir verslunar-
eigandi, Elín Hirst, Helga Ingimundardóttir og Dagný Halldórsdóttir.
FKA 2006 Hér tekur Ásdís Halla
Bragadóttir, þá forstjóri BYKO,
við viðurkenningu.
Tengslanet Margrét Kristmannsdóttir
ásamt Soffíu Johnson, Maríu Maríusdóttiur
og Dagnýju Halldórsdóttur.
FKA 2004 Hér eru
Sigríður Erlends-
dóttir, Ellen
Snorradóttir,
Vigdís Finn-
bogadóttir og
Helga Gröndal í
hófi FKA.